Árbók knattspyrnumanna - 01.01.1939, Page 17

Árbók knattspyrnumanna  - 01.01.1939, Page 17
liðið nokkur ár, þangað til félögin hefðu leitt saman hesta sina opinberlega, ef önnur atvik liefðu ekki ráðið. Vorið 1911 var fullgerður gamli íþróttavöll- urinn á Melunum og þá skyldi fara fram alls- lierjar-íþróttamót, er hefjast skyldi á aldaraf- mæli Jóns forseta. Viku fyrir afmælið var völl- urinn vígður. Fóru forstöðumenn vallarins þess á leit við félögin, sem að honum stóðu (en meðal þeirra voru K.R. og Fram, en ekki hin knattspyrnufélögin), að þau léðu aðstoð sína iil þess að íþróttasýningarnar yrðu sem fjöl- hreyttastar. Létu Frammenn j)á til leiðast að leika við kappana í K. R., en þeir tóku mótherj- ana ekkert hátiðlega og tcfldu ekki fram öllum beztu mönnum sínum. Þau óvæntu úrslit urðu á þessum leik, að félögin skildu jöfn (0—0). Nú töldu Frammenn sér alla vegi færa og tilkynntu þátttöku sína í iþróttamótinu; styrktu þeir þá liðið með nokkrum skólapiltum, sem þá gengu i félagið. En K.R. átti líka talsvert betra lið en það, sem ieikið hafði fyrsta kapplcikinn, og hugðu þeir nú á hefndir. Leikar fóru svo á mótinu, að Fram sigraði með 2—1, eftir mjög skemmtilegan og liarðan og tvisýnan leik. Ur- slitamarkið kom á síðustu mínútu, og var leikur ekki liafinn aftur. Dómari á þessum leikjum og öll næstu árin var Ólafur Rósenkranz. Með þessu leikjum var isinn brotinn og síðan hefir ekkert ár liðið svo, að ekki liafi verið keppt í knattspyrnu hér í höfuðstaðnum. P. S. 15

x

Árbók knattspyrnumanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók knattspyrnumanna
https://timarit.is/publication/683

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.