Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.07.1938, Side 7

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.07.1938, Side 7
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR Mwnið að búa yður undir aukna rafmagnsnotkun nœsta vetur♦ Kynnið yður gjaldskrá Rafmagnsveitunnar: B. Rafmagn til almennrar heimilisnotkunar. Þar sem orkan er aðallega notuð til suðu eða hitunar í heimilum, má selja hana: 1. Um tvenna mæla, annan til ljósa, hinn til suðu eða hitunar. Á ljósamæl- inn reiknast ljósagjald samkvæmt A 1., á hinn mælinn 10 aurar á kWh. 2. Um einn mæli á 45 aura á kWh fyrir 36 fyrstu kWh ársnotkun á hvert herbergi íbúðar, og 25 aura á kWh fyrir alla notkun þar fram yfir. 3. Um einn kWh-mæli fyrir alla notkun í heimilinu á 7 aura hver kWh fyrir 1500 fyrstu kWh og 4 aura hver kWh fyrir alla notkun umfram, og auk þess skal greiða fastagjald 12 kr. á ári fyrir hvert íbúðar- herbergi heimilisins. 4. Um einn kWh-mæli fyrir alla notkun í heimilinu á 6 aura hver kWh, og auk þess fastagjald 15 kr. á ári fyrir hvert íbúðarherbergi heimilisins. Ársleiga af einum mæli er innifalin í fastagjaldinu eftir taxta sam- kvæmt B 3 og B 4. Skilyrði fyrir sölu samkvæmt gjaldskrárliðum B 3 og B 4 eru: a. að í íbúðinni sé notuð rafmagnseldavél með að minnsta kosti 2 suðu- hellum, enda sé önnur þeirra ekki minni en 1500 wött, og með steik- arofni, nema um einhleypingsíbúðir með sérmæli sé að ræða, eða sér- stakar íbúðir án eldhúss, eða b. að í þess stað ábyrgist notandi 1500 kWh minnstu notkun rafmagns á ári. — 1 einhleypings íbúðum með sérmæli, eða sérstökum íbúðum án eldhúss, þarf eigi ofanskráð skilyrði um steikarofn, og ábyrgðin um minnstu notkun þarf eigi að vera hærri en 600 kWh á ári. 5. Um hemilmæla á 300 krónur hvert árskW og auk þess 10 aura á kWh fyrir umframnotkun, nema þar sem rafmagnseldavél er notuð á sama hátt og skilyrði er sett fyrir í gjaldskrárliðum B 3 ogB4,þarskaireikna umframnotkun á 7 aura kWh. Hemilstillingin skal vera minnst 500 wött að viðbættum 100 wöttum fyrir hvert íbúðarherbergi fram yfir tvö. 1 útreikningi á f jölda herbergja í íbúð skal aðeins telja stofur og svefn- herbergi o. þ. h. en ekki eldhús, baðherbergi, göng eða geymslur. Borðstofueldhús skal telja sem herbergi. Herbergi minna en 5 m2 skal telja sem hálft, en stærri en 25 m2 sem tvö.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.