Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 15

Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 15
BANKABLAÐIÐ á haldið, að þetta yrði til mikils ávinn- ings, bæði fyrir starfsmennina og bank- ana. — Að 10 árum liðnum, þegar 10 af starfsmönnum Landsbankans og 5 af starfsmönnum Útvegsbankans hefðu notið góðs af lærdómsríkum og þrosk- andi kynnum af starfsháttum erlendra banka, og jafnframt aukið tungumála- kunnáttu sína, má vænta þess að starfs- lið bankanna verði, sem heild, betur fært um að leysa störf sín af hendi en áður og allur ávinningur starfsmannanna í þeim efnum er jafnframt ávinningur bankanna sjálfra. Z. Snarl. Fyrir nokkru ákvað framkvæmdar- stjórn Landsbanka íslands að veita 2. ílokks fulltrúastöðu við innheimtudeild bankans. Sú vinsæla nýbreytni var tek- ín upp, að staðan var auglýst til um- sóknar meðal starfsmanna bankans. — Umsækjendur urðu 15, en staðan er óveitt enn. Brynjólfur Þorsteinsson, fulltrúi í Landsbanka íslands, átti 20 ára starfs- afmæli hinn 8. apríl s. 1. Vegna aldurs hafa þessir starfsmenn Landsbanka íslands látið af störfum 30. júní s. 1.: Snæbjörn Arnljótsson og Bjarni Hjaltested. Höfðu þeir báðir notið al- mennra vinsælda meðal starfsbræðra sinna. Samband íslenzkra bankamanna gekkst fyrir ársskemmtun bankamanna að Hót- el Borg 16. marz s. 1. og skemmtiför í Laugardal 30. maí. Fór hvorttveggja fram hið bezta. 15 Allskonar húsgögn fyrirliggjandi og smíðuð eftir pöntun. Friðrik Þorsteinsson Skólavörðustíg 12 Þeir, sem leggja áherzlu á góðar vörur — en þó ódýrar — ættu að reyna viðskiptin við Verzlunin Björn Kristjánsson, Jón Björnsson & Co.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.