Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 4

Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 4
\ Kristjánsson með 251 atkv. og var það hæsta atkvæðatala er nokkur einstaklingur fékk. Nr. 2 var kjörinn Trausti O Thorberg með 125 atkv. og nr 3 Ólafur G. Þórhallsson með 88 atkv. Hezti píanóleikarinn var kjörinn Carl Bill- ich með 237 atkv., nr. 2 var kjörinn Baldur Kristjánsson með 148 atkv. og nr. 3 og 4 þeir Aage Lorange og Arni Isleifs með 70 atkv. hvor. Auk þess fengu þeir Henry Rassmus og Steinþór Steingrímsson atkvæði. Bezti kontrabassisti var kjörinn Bjarni Böð- vars með 97 atkv., nr. 2 varð Þórhallur Stefánsson með 71 atkv. og nr. 3 Einar B. Waage, er hlaut 65 atkvæði. Auk þess fékk Baldur Böðvars atkvæði. Bezti trommuleikarinn var kjörinn Guð- mundur R. Einarsson með 193 atkv., nr 2 var kjörinn Jóhannes Eggertsson með 128 atkv. og nr. 3 var kjörinn Þorsteinn Eiríksson með 74 atkv. Auk þess fengu þeir Poul Bern- burg, Karl Karlsson og Höskuldur Stefáns- son atkvæði. Bezti útsetjarinn var kjörinn Carl Billich með 88 atkv., nr. 2 varð Gunnar Egils með 57 atkv. og nr. 3 var kjörinn Árni ísleifs með 36 atkvæðum. Einnig fengu atkvæði þeir Bjarni Böðvars, Aage Lorange og Björn R. Einarsson. Bezti söngvarinn var kjörinn Björn R. Einarsson með 105 atkv., nr. 2 var kjörinn Alfred Clausen með 78 atkv. og nr. 3 var kjörinn Skafti Ólafsson með 60 atkv. Auk |>ess fengu atkvæði þeir Sigurður Ólafsson, Kjartan Runólfsson og Haukur Morthenz. Bezta söngkonan var kjörin Bína Stefáns með 71 atkv., nr. 2 var kjörinn Sigrún Jóns- dóttir með 57 atkv. og nr. 3 voru kjörnar Hansens-systur með 16 atkv. I kosningunni um söngvarana var þátttak- an áberandi lítil og er það einkennilegt með MOLAR 37 ára gamall hljómsveitarstj. og söngvari, Louis Jordan, hefur verið lagður inn á sjúkra- hús í Californiu með áverka eftir hníf. Kona hans hefur verið handtekin en það er hin 37 ára gamla Flesci Ernestine Jordan. Hún cr sökuð um að hafa beitt hníf með morð í huga. Nýtt tríó í líkingu við King Cole tríóið hefur náð geysi-vinsældum ! Bandaríkjunum. Það er kallað „The Martins" og er þannig skipað: Lana Haymes besti kvensaxófónleik- ari Bandaríkjanna, hún er einnig söngvari, maður hennar, Mark Hyams, leikur á píanó og A1 Balmonte á bassa. Söngur Lönu hefur gert tríóið geysi-vinsælt. Benny Coodman hefur gert samning við Capitol liljómplötufélagið á vesturströndinni um að leika inn á plötur fyrir það. Forstjóri félagsins er Johnny Mercer. Nýr quintett. Árni Isleifs hefur nú hætt leik sínum með sextett Björns R. Einarssonar og hefur stofnað quintett undir nafninu Quin- tett Arna Isleifssonar. Quintettinn er þannig svo mikilli söngþjóð sem íslendingar eru og það er áreiðanlegt að það eru margir, er geta sungið jazz en hafa ekki haft tækifæri til að koma fram, vegna þess að hljómsveitirnar hafa ekkert lagt upp úr því að hafa söng með en við vonum að þetta muni lagast því að það mun stuðla að útbreiðslu jazzins að mikl- um mun. 4 JAZZ

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.