Dropar - 01.01.1927, Side 18

Dropar - 01.01.1927, Side 18
ert, ])ó að þú aðeins biðjir með huganum. Og mundu að elska liann mest af öllu, því að hann elskai' þig og yfirgefur þig aldrei, ef þú gleymir ekki að biðja hann, og þó að þú missir alt annað, ertu nógu rík, ef þú átt hann. En þó að þú eignist allan heiminn, er það einskisvert, ef þú missir Krist, það er að segja, ef þú gieymir Jionum. Hann gleymir þjer aidrei. Á jólunum minnumst við á sjerstakan^hátt þessarar dýrmætu gjafar, og al' því að við erum þá svo óum- ræðilega glöð, langar okkur líka til að gleðja aðra, og þess vegna gefum við hver öðrum einhverja litla gjöf, svo að allra fögnuður megi renna saman í eina kærleiksheild á þessari blessaðri hátíð. Mundu nú vel það, sem jeg liefi sagl þjer, barnið mitt. Og nú skul- um við flýta okkur upp. Klukkan er bráðum 6, og þá býrjar hátíðin, og afi kemur stundvíslega að lesa“. Jeg hugsaði margt, en talaði fátt. Nýtt ljós var runnið upp í sál minni. Nú fyrst skildi jeg jólin, skildi, að ekkert var dýrðlegra í allri tilverunni en jólin. Þegar við komum upp, var baðstolan og all- ur bærinn fram i fremstu dyr uppljómað af jóla- Ijósunum, öll sæti voru skipuð nema stóllinn hans afa við annan borðsendann, sem liann var vanur að sitja á, þegar hann las. Móðir min gekk til sætis síns, og jeg settist á kistil við hlið hennar. Svo tóku allir sálmabækur sinar og biðu eftir afa. Klukkan J)yrjaði að slá 6, þá lukust upp baðstofudyrnar, og inn gekk afi. En var þetta afi? Hár hans fannhvítt J’jell í lokkum ofan á svart silkihálsbindi. Hann var i dimm-fjólublárri prjónapeysu með glampandi silf- ur-hnöppum, en þeir sáust ekki nema á ermunum, þvi að ofan brjóst hans alt að beltistað hrundi eins og foss svanhítt fagurlega greitt skegg. Það hafði jeg aldrei fyr sjeð á afa. I gær hafði það aðeins náð of- 16

x

Dropar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dropar
https://timarit.is/publication/731

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.