Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Qupperneq 6

Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Qupperneq 6
4 fjelagið fengi umráð yfir, eða trygði vjelstjóra sína gegn slysum fyrir 10 þús. kr. En þessu var hafnað. Aftur á móti varð samkomulag um sjálft kaupið, kr. 700,00 á mánuði. Og með því að viðkomandi vjel- stjóri var vel ánægður með það, vildum vjer eigi stofna til frekari deilu út úr hinu öðru, sem á milli bar, og hættum samningaumleitunum. „Gjaldið er afl þess, sem gera skal“, Fjármálin; segir máltækið. Gildi þessa málshátt- iðgjaldahækk- ar verður mönnum hvað ljósiast, un o. fl. þegar þeir koma auga á nauðsyn ým- issa umbóta, en finna um leið, að pyngjan er tóm. Þetta hefir stjórnum Vjelstjórafje- lagsins jafnan verið ljóst. Það er svo margt, sem framkvæma þarf fjelaginu til eflingar. Það þarf framkvæmdir á einhverju sviði innan fjelagsins til þess, að meðlimirnir finni eða geti þreifað á því, að fjelagsskapurinn sje annað og meira en nafnið tómt. Það sem hingað til hefir einkum háð þessu fjelagi, er fjeleysi og sundrung. Þó einkum sundrung. Kemur hún einkum fram í því, hve mönnum er ósýnt um að greiða fjelagsgjaldið. Það er varla hugsanlegt, að gjaldið, sem varla mun fara fram úr 1% af meðal- tekjum fjelagsmanna, sje svo tilfinnanlegt, að eigi verði undir því risið. — Nei, það sem að er, er það, að menn hafa ekki nógu glögt auga fyrir nauðsyn gjaldsins. Fjelagsskapurinn er í eðli sínu ekki annað en skuldbinding um gagnkvæma hjálp, ef á liggur. Við verðum að gera okkur ljóst, að næstu ár verða að sjálfsögðu reynsluár fyrir fjelagið. Það má búast við að eftirspurn eftir vjelstjórum minki, og að kaup-

x

Ársrit Vélstjórafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Vélstjórafélags Íslands
https://timarit.is/publication/738

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.