Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.2009, Blaðsíða 6
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is R agnar Kjartansson myndlist- armaður prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Modern painters. Hann stillir sér upp eins og sannur atvinnumaður, horfir í linsuna, tottar vindil og heldur stoltur á bók. En þetta er ekki bók eftir hann eða um hann heldur kennslubók í málaralist fyrir áhugamenn. Er maðurinn alltaf að fíflast? „Íslendingar eru góðir í að vera amatörar,“ hef- ur greinarhöfundur Modern painters eftir Ragn- ari. „Það er þessi „carpe diem“ hugmynd,“ að njóta dagsins. „Þeir óttast ekki að fikta við hvað sem er, því þeim er ekkert heilagt. Þessi afstaða er bónus fyrir Ísland en líka ástæðan fyrir falli Íslands, þessi skortur á alvarleika. Þetta er góður eiginleiki fyrir listamann en hræðilegur ef þú ert banka- starfsmaður.“ Ragnar er iðulega að leika í listaverkum sínum. Hann hefur tekist á við leikhúsið, óperuna, tónlist og nú síðast líka málverkið. Markús Þór Andr- ésson, sem er sýningarstjóri sýningar Ragnars á Feneyjatvíæringnum, ásamt Dorothée Kirch, seg- ir að allt sem hann geri sé í raun gjörningur. Er það satt? „Já,“ svarar Ragnar. „Þetta er einhverskonar listamannamont, sem er komið frá Dieter Roth. Hvert hans minnsta viðvik var myndlistarverk. Auðvitað er það mont að halda því fram að allt sem maður gerir sé gjörningur. Ég hef hinsvegar tekið þessa afstöðu í listinni. Ég heillast af ferlinu, af athöfninni við að gera hluti; athöfnin skiptir mig oftast meira máli en afurðin. Ég ákvað þetta og það veitti mér mikið frelsi.“ Ekki ein frumleg hugsun Á föstudaginn kemur mun Ragnar hefjast handa við að skapa á Feneyjatvíæringnum verk sem hann kallar The End. Reyndar skiptir hann ís- lenska skálanum, sem er í höll við Canal Grande, í tvennt. Viðamikla myndbandsinnsetningu, sem hann vann að í kanadísku Klettafjöllunum og opna vinnustofu þar sem hann málar á hverjum degi næsta hálfa árið mynd af kollega sínum, Páli Hauki Björnssyni myndlistarmanni, sem verður klæddur svartri Speedo sundskýlu, reykir og drekkur bjór meðan hann situr fyrir. „Mér finnst ég ekki hafa eina frumlega hugsun í höfðinu. Ég er að leika mér í hugmyndasarpinum,“ segir Ragnar og enn hlær hann, þar sem hann sit- ur inni á gistiheimili á Kópaskeri og ræðir við mig í símann. Ég ætlaði að hitta hann í Reykjavík en honum fannst betri hugmynd að vera í viðtali á Kópaskeri. Hann var þar með eiginkonu sinni, Ás- dísi Sif Gunnarsdóttur myndlistarkonu, sem var að setja upp innsetningu í vitanum á staðnum. Fyrst þegar ég hringdi norður í Ragnar var hann staddur á bílaverkstæðinu á Kópaskeri að drekka kaffi og borða kex. Ragnar virðist alls- staðar vera á heimavelli, hvort sem hann er að syngja ljóðaflokkinn Dichterliebe eftir Schumann í heila viku samfleytt á listahátíð á Ítalíu, á sviði með popphljómsveitinni Trabant eða á bílaverkstæð- inu. Hann er sannkallað kameljón. Ragnar segist leika sér í hugmyndasarpinum og ég spyr hvort hann sé einskonar forsíðudrengur póst-módernismans, þar sem úrvinnsla eldri hug- mynda er allsráðandi. „Það má segja það. Þessir tímar sem við lifum eru hrikalega póstmódernískir. Ég var alltaf að reyna að afneita því – en það er óþarfi. Ég held að við verðum föst í þessum úrvinnsluþætti næstu 200 ár. 20. öldin var svo rosaleg. Ég er ekki af kynslóð myndlistarmanna sem gerir eitthvað massa- frumlegt. Því miður. Verkið mitt í Feneyjum er tregafull táknmynd þeirrar staðreyndar.“ Ég má til með að spyrja Ragnar um íróníuna í myndinni framan á Modern Painters. „Írónían er skrýtin skepna. Þessi mynd var tek- in í stúdíóinu mínu. Hún er í raun ekkert uppstillt. Ég nota mikið þessa „how-to-paint“-bók sem ég er með á myndinni. Ég er alveg heiðarlegur í minni íróníu þótt ég sé auðvitað meðvitaður um hvað er í gangi. Ég var í svo rosalega póstmódernískum skóla hérna, Listaháskólanum, að þótt mig langaði til að læra að mála þá var ekki hægt að kenna mér það. Það snerist allt um konseptið þannig að ég þarf að nota svona bækur!“ Aftur hlær hann. „Þetta er ekki bara einhver paródía á málara þótt mér finnist þeir óneitanlega dálítið fyndnir – þessi lotning fyrir miðlinum. Umræðan um blessað málverkið hér heima er reyndar ótrúlega skrýtin og gamaldags, það er eins og maður sé annaðhvort með því eða á móti. Það er ótrúlega mikil áhersla á eitthvert rugl eins og hvað sé gott málverk, fag- mannleg vinnubrögð og vitleysa, þar fram eftir göt- unum. Menn verða nú að vera aðeins meiri pönk- arar en það og reyna að sjá hlutina í stærra samhengi. Málverk er bara einn af mörgum mynd- listarmiðlum, ekkert heilagra en kúkur í dós og ryk í plastpoka. Síðan er þversögnin sú að þó mér finnist þessi upphafning málverksins kjánaleg, þá er verkið mitt lofgjörð til stemningarinnar á vinnustofum mál- ara.“ – Þú hefur verið að sýna málverk á síðustu árum og daðrar við rómantíkina á írónískan hátt. „Írónían kemur óvart inn, það eru bara tímarnir sem við lifum. Ég er sökker fyrir rómantík. Þetta er spurning um mótttökustellingarnar. Út úr ír- óníunni kemur oft hrein og tær einlægni. Það er manninum eðlislægt að segja hlutina í hálfkæringi, í hálfkveðnum vísum, þótt full alvara búi að baki. Skárra væri það nú ef allt í kringum mann væru bara gerilsneyddar, hnitmiðaðar fullyrðingar. Það eru svo margir tónar eða litir sem er ekki hægt að miðla nema með einhverskonar útúrsnúningi.“ Ragnar játar að írónían í verkum hans, eins og í myndbandsverkinu God frá 2007, þar sem hann syngur í hálftíma frammi fyrir 11 manna hljóm- sveit, fullur einlægni, sömu setninguna aftur og aft- ur, „sorrow conquers happiness,“ komi í raun frá fullkomnlega einlægum stað. „Einlægni er vand- meðfarin, vegur salt einhversstaðar á milli væmni og kaldhæðni. Ég viðurkenni það einlæglega að ég er pínu hræddur við að vera alveg einlægur í mynd- listinni. En það er ekki bara spurning um manns eigin viðhorf. Það er líka tíðarandinn sem dæmir hluti sem spaug og flipp þó í þeim búi angist. Ein- lægni í glysbúningi er ekkert endilega kaldhæðni. Allar listgreinar hafa fyrir löngu gefist upp á því að miðla hlutlausum sannleika.“ Megavesen Ragnar segir sýninguna The End hafa verið að taka á sig mynd síðasta árið. Verkið hafi orðið að miklu leyti til í bréfasamskiptum við sænskan lista- mann, Andjeas Ejiksson, „og í samtölum við sýn- ingarstjórana, Ásdísi Sif, vini og fjölskyldu. Ásdís sagði í haust að ég yrði að vera einn í viku til að skilja hvað ég ætlaði að gera. Ég fór í kofa í Borg- arfirðinum og þá komu allar myndirnar – eins og hjá spámanninum í eyðimörkinni! Það voru ótrú- legir dagar. Allt dramað var að byrja hérna, fnykur í loftinu og bankahrunið handan við hornið, og allt small saman. Báðir hlutar sýningarinnar spunnust samhliða.“ Ragnar langaði að vinna í Banff-listamiðstöðinni í Kanada og sú ósk rættist er hann kynntist yf- irmanni myndlistardeildar miðstöðvarinnar er hún setti saman sýningu í i8 galleríinu í fyrra. „Drottinn var þarna!“ þrumar Ragnar í símtólið, djúpri röddu. Þagnar svo og bætir við, auðmjúkur: „Það var furðuleg hundaheppni. Þessi kona, Kitty Scott, hjálpaði til við að láta þetta gerast í Banff. Vídeótakan var rosalegt fyrirbæri. Megavesen. Banff-miðstöðin útvegaði tuttugu manna hóp sem vann með mér. Kostnaðurinn hefði verið brjál- æðislegur ef ég hefði gert þetta sjálfur.“ Ragnar segir að myndbandsverkið verði á fimm skjám í sama rýminu. Á hverjum þeirra séu þeir Davíð Þór að leika á hljóðfæri óræða sveitatónlist. „Við hvern skjá heyrirðu í hljóðfærunum sem þú sérð en þegar þú ert í miðju herberginu blandast öll hljóðfærin saman. Þetta var tekið upp læf, í frostinu í þessu ægi- fagra umhverfi Klettafjallanna.“ – Þú hefur sagt að gestir sem koma á sýninguna og mæta þessum tveimur heimum, myndbands- verkinu og þér að mála Pál, þurfi að gera upp við sig hvað þeir upplifa. „Mér finnst gott að vera ekki fastur í einhvers- konar konsepti. Þetta er ákveðin póesía. Ég er sjálfur alltaf að velta fyrir mér hvað það þýði að blanda þessum tveimur hlutum saman.“ Þegar líður á sumarið verða málverk Ragnars af Páli farin að hlaðast upp í vinnustofunni, sem er sýningin um leið. Hann hefur sagt að málverkin séu hliðarafurð verksins. „Amma sagði að ég ætti að henda öllum mál- verkunum þegar ég væri búinn. Það er alltaf best að tala um myndlistina við ömmu, hún er með þetta allt á hreinu. Ég tala galgopalega um þetta núna en málverkin verða hlaðin miklu tilfinningalegu gildi á endanum. Þessi ógurlegi fjöldi verka af sömu fyrirmyndinni, sum skemmd vegna rakans í Feneyjum. Ég held að þetta verði forvitnilegt.“ – Þátttakan í Feneyjatvíæringnum hlýtur að vera dýrt verkefni. „Jú, þetta er mjög dýrt.“ Ragnar hugsar sig um. „Ísland hefur um áratuga skeið tekið þátt í tvíær- ingnum, stærsta myndlistarviðburði heimsins. Auðvitað er kostnaðarsamt fyrir Ísland að gera sig gildandi alþjóðlega, á hvaða vettvangi sem er. Ríkið leggur til tæplega helminginn af raunkostnaðinum við þessa framkvæmd. Vegsemdinni að vera boðin þátttaka fylgir sá vandi að útvega fjármagn fyrir restinni. Í ljósi vorra klikkuðu tíma hefur þetta ver- ið flókið. En allir hafa lagst á eitt við að láta þetta ganga. Galleríin mín, i8 og LuhringAugustine, hafa borið hitann og þungann af því.“ Kannski fátækir en ekki fífl Ragnar er kominn á mála hjá virtu erlendu galleríi og hefur aukinn möguleika á að koma sköpun sinni á framfæri erlendis. Hér er nokkuð rætt um að í kreppunni séu leiðir íslenskra listamanna út fyrir landsteinana að lokast, en Ragnar segist telja menningarlega innistæðu Íslands það mikla að leiðir listarinnar lokist ekki. „Auðvitað er stórkostlegt að fá að starfa með frábæru galleríi erlendis, en ég held að Ísland þyki bara ennþá merkilegra menningarlega út af öllu þessu rugli. Listasenan hérna hefur alltaf verið frjáls og óháð. Þótt einhver þeirra fyrirtækja sem mikið bar á hafi eitthvað stutt við listina, þá var það í raun mjög lítið. Listin vandist ekki tuggunni. Ein- hverjir hundraðþúsundkallar voru settir í listuppá- komuna en síðan keypt auglýsing fyrir milljón. Fyrst og fremst er þetta ástand erfitt fyrir stofnanirnar, eins og Nýlistasafnið og listasöfnin. En svo lengi sem ríkisvaldið hefur vit á að skera ekki of mikið niður til listarinnar, halda hurðum opnum og svo framvegis, er framtíðin björt. Eftir bombarderingu Kaupmannahafnar árið 1807 og gjaldþrot danska ríkiskassans í kjölfarið, bað ein- hver ráðgjafi Friðrik 6. um að hætta að styðja við listir, Danir hefðu einfaldlega ekki efni á því. Kóng- urinn svaraði: „Vér erum kannski fátækir en vér erum ekki fífl.“ – Þegar þú verður búinn að mála 180 málverk í haust og orðinn góður af sinaskeiðabólgunni eftir glímuna við „pentskúfinn“, hvað tekur þá við? „Ég fer að gera verk í Düsseldorf í samstarfi við Marinu Abramovic. Síðan verður afrakstur Fen- eyjauppákomunnar sýndur í Hafnarborg og í Banff-Center í Kanada. Síðan er það einkasýning í New York, Ítalíu og ég veit ekki hvað. Jesús, ég er bara farinn í útlandagrobb eins og Baltasar Kor- mákur!“ segir Ragnar og skellihlær inni á gisti- heimilinu á Kópaskeri. „Út úr íróníunni kemur of „Ég er ekki af kynslóð myndlistarmanna sem gerir eitthvað massa-frumlegt. Verkið mitt í Feneyjum er tregafull táknmynd þeirrar staðreyndar,“ segir Ragnar Kjartansson um metnaðarfullt framlag sitt til Feneyjatvíæringsins. Hvað er hann að gera? Síðan er það einkasýning í New York, Ítalíu og ég veit ekki hvað. Jesús, ég er bara farinn í útlandagrobb eins og Baltasar Kormákur! MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 6 LesbókMYNDLIST

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.