Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 ✝ Elísabeth Bjarn-arson Buch fæddist á Tvøroyri í Færeyjum 7. sept- ember 1948. Hún lést á heimili sínu 10. janúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Elberg Bjarnarson, f. 31.11. 1918, d. 19.3. 1993, og Poula Joella Bjarnarson, f. 24.9. 1925, d. 9.12. 1983. Systkini Elísabethar eru John Bjarn- arson, f. 3.11. 1940, Björn Bjarn- arson, f. 5.7. 1947, Jolina Bjarn- arson, f. 29.10. 1949, Carlina Bjarnarson, f. 5.2. 1952, Poul Bjarnarson, f. 28.9. 1954, d. 4.9. 1999, Erla Bjarnarson, f. 5.3. 1957, Jorun Bjarn- arson, f. 30.11. 1960, og Dorit Bjarnarson, f. 15.11. 1963. Elísabeth kom til Vestmannaeyja á vertíð í byrjun árs 1966. Þar kynntist hún eiginmanni sín- um Kristni Buch, f. 15.12. 1944 og sett- ust þau að í Eyjum og eignuðust þau 3 dætur: 1) Poula Kristín Buch, f. 5.6. 1967, gift Sigurði Þór Þórhallssyni, f. 3.1. 1968. Dætur þeirra eru Elísabeth Lind Ingólfsd., f. 30.4. 1987, Margrét Siguðardóttir, f. 28.9. 1993, Andr- ea Sigurðardóttir, f. 10.8. 2001, og Sylvía Sigurðardóttir, f. 5.5. 2003. 2) Pálína Sigurbjörg Buch, f. 9.8. 1968, sambýlismaður Rún- ar Svan Vöggsson, f. 18.6. 1966. Börn þeirra eru Rúnar Kristinn Rúnarsson, f. 6.8. 1987, og Birg- itta Ósk Rúnarsdóttir, f. 26.8. 1988. 3) María Karen Buch, f. 24.11. 1972, gift Kenneth Christi- an Karlsen, f. 25.2. 1972. Synir þeirra eru Nicklas Buch Karlsen, f . 21.1. 2002, og Marcus Buch Karlsen, f. 12.8. 2004. Árið 1985 fluttust Elísabeth og Kristinn til Danmerkur. Rúmu ári síðar skildu þau og fluttist Elisa- beth þá til Svíþjóðar þar sem hún bjó í 18 ár. Árið 2005 fluttist El- ísabeth aftur til Íslands og síð- asta árið bjó hún í Kópavogi. Útför Elísabethar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Með söknuði kveð ég vinkonu mína og vinnufélaga, Elísabeth Bjarnarson Buch. Það er með trega í hjarta að þurfa að kveðja þig, en með þakk- læti í huga að fá að hafa fengið tækifæri á að kynnast manneskju eins og þér, Fyrir um tveimur ár- um hófst þú störf á sameiginlegum vinnustað okkar. Þú komst snemma til vinnu, ég var að ljúka vakt og þú að hefja vakt. Ég minn- ist þess að þú heilsaðir alltaf hlý- lega og með þessum skemmtilega hreim. Þú sagðist vera færeysk, en búin að vera lengi á Íslandi. Talaðir líka reiprennandi íslensku. Fljótlega fórum við að bjóða hvor annarri í kaffi og höfðum nóg að skrafa um. Þú varst alveg hneyksluð á mér þegar ég sagði að mig langaði ekki til Færeyja, ég sæi bara sker og kletta fyrir mér. Ég vildi frekar fara eitthvað þar sem væru strendur og sól. „Men, nei, það er sko ekki Færeyjar, það er svo margt fallegt þar, þú verð- ur að fara og sjá þær, það er oft sýndar myndir af Færeyjum sem eru kuldalegar, en það er alls ekki svo,“ sagðir þú sannfærandi og svo fékk ég bara fyrirlestur um Færeyjar. Þú sagðir svo skemmti- lega frá, að mér snerist hugur og samþykkti að kannski færi ég þangað einn daginn. Þú komst mér fyrir sjónir sem einstaklega kurteis, hógvær og skemmtileg. Þú varst vel liðin í vinnunni og áttir einstaklega auð- velt með samskipti við vistmenn, næm á þá og gafst þér alltaf tíma í smá spjall við þá um leið og þú sinntir þeim, hvort sem það var að degi eða nóttu. Þegar við hittumst í kaffi hjá hvor annarri þá var allt- af hlegið mikið og reynt að sjá spaugilegu hliðarnar á flestum málum. Við vorum saman í klúbb og höfðum farið á nokkur nám- skeið saman, og það var alltaf gaman. Þú bjóst frekar þröngt þegar ég kynntist þér, en fluttir síðan í stærra húsnæði í Kópavogi og þá sá ég enn nýja hlið á þér. Þú varst fljót að sjá hvernig heimilið átti að vera. Það voru tekin mál af öllu og lagt af stað í leiðangur til að finna skápa, hillur, sófa og ýmislegt sem þurfti til að prýða heimili. Það var alveg með ólíkindum hve þú varst útsjónarsöm og snögg að koma öllu fyrir. Ég fór með þér í flesta leiðangra, en ég hafði nú ekki mik- il áhrif á val þitt, enda óþarfi. Þú gerðir heimili þitt einstaklega hlý- legt og tókst þannig á móti mér þegar ég kom til þín. Ég sá líka hvað þú varst listræn og smekk- leg. En ég fékk ekki að njóta vináttu þinnar eins lengi og ég hefði ósk- að. Síðast þegar ég sá þig fórst þú veik heim af vakt, þú barst þig vel að venju, sagðist vera smá lasin þegar þú kvaddir okkur. Fyrir hönd alls starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Skjóli votta ég dætrum hennar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og hluttekningu vegna fráfalls henn- ar. Einnig bið ég og fjölskylda mín öllum aðstandendum Guðs bless- unar og styrk í söknuði sínum. Guðrún Arnórsdóttir. Kær vinkona og góður vinnu- félagi er farin. Ég kynntist El- ísabeth fyrir um tveimur árum. Leiðir okkar lágu saman, þar sem við unnum á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Ég og Elísabeth vorum fljótar að kynnast og vinskapurinn kom í kjölfarið. Mig langar að þakka þér fyrir allar góðu samverustundirn- ar sem við áttum. Einnig vinskap- inn, sem var mér mjög dýrmætur. Takk fyrir að vera traust og góð vinkona. Takk fyrir skemmtilegu heimboðin og öll góðu ráðin sem þú hefur gefið mér. Elsku Elísabeth, ég kveð þig nú með söknuði elsku vinkona. Elsku Poula, Pálína, María og fjölskyldur ykkar og aðrir ástvin- ir, söknuður ykkar er mikill, en minningin um góða vinkonu og vinnufélaga lifir í hjörtum okkar allra. Þín vinkona, Karen Hilmarsdóttir. Elísabeth Bjarnarson Buch ✝ Sigríður Guð-munda Haukdal Jónsdóttir fæddist í Höll í Haukadal í Dýrafirði 23. júní 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi hinn 13. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin í Höll, þau Ástríður Jónína Eggertsdóttir, f. 18. júní 1888, d. 22. mars 1969 og Jón Guðmundsson bóndi og smiður, f. 19. ágúst 1886, d. 17. des 1950. Börn þeirra hjóna, talin í ald- ursröð: Eggert Haukdal, f. 17 maí 1913, d. 14. okt. 1984, Elínborg Haukdal, f. 19. sept., d. 8. mars 1991, Guðmundur Pétur Haukdal, f. 15. jan. 1919, d. 2. feb. 1996, Magnús Þorberg Haukdal, f. 20. nóv. 1920, Gunnar Agnar Haukdal, f. 1. des. 1922, d. 27. okt. 2003, Hákon Hauk- dal, f. 29. jan. 1925, og Sigríður Guð- munda, sem hér er minnst. Útför Sigríðar fer fram frá Ás- kirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í byrjun nýs árs, þegar fyrstu geislar komandi sólar reyndu að komast yfir fjallatoppana, slokkn- uðu síðustu lífsgeislar frænku minn- ar, Siggu frá Höll. Það var stutt síð- an hún kom í heimsókn til okkar hjónanna, eða 1. des. sl. Hún hringdi á undan sér, þáði smá kaffi- sopa, ræddi málin skýr í kollinum hvar sem niður var borið, en þarna var á ferð illa farin gömul kona. Mjög kreppt í baki og ýtti á undan sér göngugrind. Hún sagðist stansa í 1½ klst., þá kæmi leigubíllinn og það stóðst. Sigga kvaddi og fór en svona er lífið. Sigga eyddi öllum sínum bernsku- og unglingsárum heima í Haukadal. Þar naut hún tilsagnar í litla skólanum okkar og vann svo heimili sínu allt, er best mátti. Hún var dugleg og vandvirk. Sigga var myndarkona og bar sig vel, stór og fönguleg. Hún hafði sínar skoðanir og þeim varð vart hnikað. Hún var stíf á meiningunni, annars prúð og stillt. Hún var yngst Hallarsystk- inanna sjö. Veturinn 1952-53 var hún á Húsmæðraskólanum á Ísa- firði, þar eignaðist hún góðar vin- konur, sem haldið hafa hópinn síð- an, komið saman reglulega og haft það huggulegt. Reglulegur hann- yrðahópur, farið í ferðalög og fleira og þaðan á hún margar góðar minn- ingar. Á þessum uppvaxtarárum frænd- fólks míns í Höll, var oft glatt á hjalla í Haukadal. Fólk á hverjum bæ. Fullt af krökkum og oft lágu sporin heim í Höll. Þangað var alltaf gaman að koma. Árið 1950 missti Ása í Höll bónda sinn Jón og næstu árin reyndist búskapurinn erfiður svo Hallarfólkið brá búi 1962 og fluttist til Reykjavíkur á Rauðalæk 20, þ.e. Ása með sonum sínum þrem, Eggerti, Pétri og Gunnari, svo og dótturinni Sigríði, en hin systkinin voru flutt að heiman. Já, suður, en þangað lá leið margra, sem fluttu úr dalnum á þessum ár- um og mikil eftirsjá var að. Sér- staklega fannst pabba mínum og mömmu nærri sér höggvið, er þetta frændfólk allt flutti suður. Eftir andlát Ásu 1969 fluttu systkinin fjögur í Bogahlíð 10 og héldu þar heimili í mörg ár, þangað kom maður oft og þangað var gott að koma. Á þessum árum sótti Sigga sjóinn. Hún var lengi þerna á Fossunum hjá Eimskip – lengst af á Lagarfossi undir styrkri stjórn mágs síns Guðmundar bryta (1965- 84). Svo fór Sigga að vinna hjá Nóa Síríus, eða þar til hún komst á aldur 67 ára. Árin færðust yfir alla og í Boga- hlíðinni sá Sigga á eftir bræðrum sínum yfir móðuna miklu með nokk- urra ára millibili. Nú stóð hún ein eftir, lúin og slitin. Erfiðir tímar. Sigga giftist aldrei og var barn- laus. Hún átti góða að. Hauka í horni. Systkinabörnin hafa alla tíð verið henni innan handar. Síðustu 3 árin bjó hún á Dalbraut 20 og hún hafði orð á því að sér hefði hvergi liðið betur en þar og þakkar þá um- hyggju alla sínum nánustu. Að leiðarlokum þakka ég frænku minni, Siggu frá Höll, fyrir sam- fylgdina gegnum árin, bæði við leik og störf í sveitinni okkar fyrir vest- Sigríður G. Jónsdóttir ✝ Ástkær frænka okkar, JÚLÍA JÓNASDÓTTIR frá Bitru, lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi miðvikudaginn 31. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Ólína Valdemarsdóttir, Aðalgeir Jónas Hólmsteinsson, Hólmsteinn Eiður Hólmsteinsson, Alma Lára Hólmsteinsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN JÓNSSON bóndi Moldhaugum, Núpasíðu 4 C, Akureyri, lést sunnudaginn 11. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum öllum er sýndu okkur samúð og hlýhug. Þóra Jónsdóttir, Arnþór Jón Þorsteinsson, Guðlaug H. Jónsdóttir, Ester Þorsteinsdóttir, Þröstur Þorsteinsson, Sara Saard Wijannarong, Rósa Þuríður Þorsteinsdóttir, Bjarni Rafn Ingvason, Eygló Helga Þorsteinsdóttir, Baldur Jón Helgason, Margrét Harpa Þorsteinsdóttir, Oddur Helgi Halldórsson, Ása Björk Þorsteinsdóttir, Kristþór Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, GUÐMUNDUR ÞORVALDSSON, lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 19. janúar. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju þriðjudaginn 27. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á menntunar- sjóð sona hans: 0552-14-400420, kt. 170269-3149. Ásdís Vala Óskarsdóttir, Þorvaldur Arnar Guðmundsson, Þorgils Ari Guðmundsson, Þórdís Björnsdóttir, Þorvaldur Guðmundsson, Björn Þorvaldsson, Stefán Þorvaldsson, Kristín Gróa Þorvaldsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR, Jaðarsbraut 11, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 19. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Kjartan Sigurðsson, Steingrímur Sigurðsson, Magnús Sigurðsson, Hulda Sigurðardóttir, Eygló Anna Sigurðardóttir. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir, mágur, frændi og hjartkær vinur, GUNNAR BJÖRGVINSSON húsasmiður, Lautasmára 3, Kópavogi, lést föstudaginn 16. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. janúar kl. 13.00. Matthildur Gunnarsdóttir, Jóhann Vignir Gunnarsson, Óskírð Jóhannsdóttir, Björgvin Kristjánsson, Matthildur Gestsdóttir, Kristján Björgvinsson, Hrefna Gunnarsdóttir, Guðlaug Björgvinsdóttir, Björgvin Smári, Gunnhildur og Þorgeir Örn, Sigríður Valdimarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.