Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 18
18 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÚRBÓTA er þörf í þjónustu við lang- veika á Íslandi. Margir læknar koma að málum en yfirsýn skortir. Afleið- ingin er óþörf og kostnaðarsöm end- urtekning rann- sókna, auk þess sem samskipta- leysi kemur í veg fyrir að valinn sé hagkvæmasti kostur og nið- urstaðan því oft dýrari þjónusta. Samstaða virð- ist um þetta stöðumat innan læknastéttarinnar og eru þeir Runólfur Pálsson, yf- irlæknir nýrnalækninga á Landspít- alanum og formaður Félags íslenskra lyflækna, og Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Há- skóla Íslands og fyrrverandi land- læknir, í hópi lækna sem hafa gagn- rýnt skipulag læknisþjónustu vegna langvinnra sjúkdóma. Inntur eftir því hvað betur megi fara bendir Runólfur á að misbrestur í eftirliti og meðferð slíkra sjúkdóma geti leitt til þess að sjúklingar þurfa að leggjast inn á sjúkrahús þegar þeim versnar snögglega, sem hefði mátt koma í veg fyrir. Það geti haft alvarlegar afleiðingar og jafnvel leitt til dauða. Eins og rakið hefur verið í Morgunblaðinu er talið að bætt sam- skipti geti leitt til hagræðingar í heil- brigðiskerfinu. Runólfur er því sam- mála enda sé of algengt að læknar hafi ekki fullnægjandi aðgang að mik- ilvægum upplýsingum í sjúkraskrá sjúklinga, sem aftur komi fram í óþarfa endurtekningu rannsókna og óhóflegri fjöllyfjameðferð. „Læknar sem stunda sjúklinga eiga auðvitað að hafa greiðan aðgang að öllum heilsufarsupplýsingum þeirra en til þess þarf samræmda raf- ræna sjúkraskrá.“ Runólfur telur að hvorki heilsu- gæslan, stofur sjálfstætt starfandi sérfræðilækna né göngudeildir sjúkrahúsa hafi þróast með hliðsjón af því krefjandi verkefni sem meðferð langvinnra sjúkdóma er. Skipulag læknisþjónustu vegna langvinnra sjúkdóma þarf fyrst og fremst að taka mið af þörfum sjúklinga. Með öflugu skipulagi ætti að vera unnt að veita betri þjónustu með minni tilkostnaði. Sjúklingar viti oft ekki hvert þeir eigi að leita. „Með öflugu skipulagi ætti sjúk- lingum að vera ljóst hvert skuli leita þegar þeim versnar skyndilega.“ Heilsugæslan auki þátttöku Runólfur vill sjá aukna þátttöku heilsugæslunnar í þjónustu við lang- veika, að samskipti heilsugæslulækna og sérfræðilækna verði efld og betur skilgreint hver sinni hverju. „Hitt málið er heilsugæslan en ég hef verið þeirrar skoðunar að hún eigi að vera miklu stærri þátttakandi sem bakhjarl þessarar þjónustu vegna þess að sjúklingar leita oft til margra lækna og þá er spurning til hvaða læknis eigi að leita ef einhver ófyrir- sjáanlegur vandi kemur upp. Heilsugæslan ætti að vera sá stað- ur en þarf að vera í stakk búin til að sinna þessu verkefni. Jafnframt þarf aðgengi að þjónustunni að vera gott. Við höfum stundum rekið okkur á að sjúklingar leiti beint á bráða- móttöku Landspítala þegar þeir kom- ast ekki að annars staðar eða ná ekki sambandi. Eftirlit og meðferð alvar- legra langvinnra sjúkdóma á í flest- um tilvikum heima á sérhæfðri göngudeild sjúkrahúss þar sem að- gengi verður að vera mjög greitt. Í mörgum tilvikum eru vandamálin vægari en þau geta verið mörg og þá getur heimilislæknir verið í góðri að- stöðu til að halda utan um þau. Nefna má aldraða sem oft á tíðum taka mjög mörg lyf en í sumum tilvikum virðist enginn hafa yfirsýn yfir meðferðina.“ Langveikir þurfa nýja nálgun Morgunblaðið/Eggert Á læknastofunni Frá heilsugæslunni í Efstaleiti. Heilsugæslulæknar telja sig geta veitt langveikum meiri þjónustu.  Úrbóta þörf á mörgum sviðum  Samskiptaleysi kemur í veg fyrir að hagkvæmari kostir séu valdir  Getur einnig leitt til rangrar lyfjagjafar  Einn læknir ætti að hafa umsjón með meðferð sjúklinga Skera þarf upp í þjónustunni við langveika á Íslandi og nýta sam- skiptatæknina í auknum mæli til að koma í veg fyrir óþarfa kostn- að og jafnvel hættuleg mistök. Kristján G. Guðmundsson „Það er hægt að gera mun betur í málefnum lang- veikra. Það er ýmislegt sem er vert að skoða og fella í betri farveg. Það skiptir ekki öllu máli á hvaða aldri sjúklingarnir eru, hvort þeir eru börn, fólk á besta aldri sem þarf endurhæfingar við, fólk sem er að glíma við geðfatlanir eða eldri borgarar,“ segir Kristján G. Guð- mundsson, yfirlæknir heilsugæslunnar í Glæsibæ. Hann telur brýnt að innleiða þverfaglega teymisþjón- ustu í heilsugæslu þar sem þeir sem veiti langveikum þjónustu komi reglulega saman og stilli saman strengi og samhæfi þjónustuna. „Langveikur sjúklingur getur verið að fá þjónustu frá sálfræðingi og sjúkraþjálfa og lækni. Síðan kemur Fé- lagsþjónustan að málum og til að flækja stöðuna getur sjúklingurinn verið með flókin tryggingaleg réttindi þar sem sjúkrasjóður verkalýðsfélags og fulltrúi hans getur komið að málum. Á sama tíma er enginn sem hefur yfirsýn yfir hvað hinir eru að gera.“ – Hvað með kostnaðarhliðina? „Fjárhagslegi ávinningurinn af þverfaglegri teym- isvinnu er aukinn árangur meðferðar. Þegar vinnan er samstillt verður hún öflugri en ef hver vinnur í sínu horni. Það er ljóst að árangurinn er betri og heildar- tíminn sem hver og einn er að verja með sjúklingnum minni. Það felst klárlega veru- legur sparnaður í því. Þjónusta við langveika stendur og fellur með góðri upplýsingagjöf og þar er aðgengileg rafræn sjúkraskrá lykilatriði. Jafnframt þarf ein- hver einn aðili að fylgja hinum langveika eftir um langan tíma og hér á landi er það oftast eðli- legast að það sé heimilislæknir viðkomandi.“ Aðspurður um dæmi um slíka teymisvinnu bendir Kristján á verkefnið Hvert, sem varðar starfsendurhæfingu fólks sem hefur fallið út af vinnumarkaðnum. Annað verkefni sé Fjölskylduteymið í Glæsibæ sem sinni börnum og unglingum með hegðunarraskanir eða langvinna sjúkdóma, þar sem Barna- og unglingageð- deild Landspítalans, Félagsþjónustan í Reykjavík og heilsugæslan í Glæsibæ komi að málum í samstarfi við grunnskóla. Hvað kostnaðinn við skipulagningu teym- isvinnunnar snertir segir Kristján hana tímafreka í upp- hafi en vinnusparandi þegar til lengdar lætur. Hún sé þar af leiðandi ódýrari. Aldur sjúklinganna skiptir ekki máli Kristján G. Guðmundsson „VIÐ sem höfum verið að velta þessum mál- um fyrir okkur höfum verið að kalla eftir skipulagðari vinnubrögðum í sambandi við málefni langveikra. Auðvitað er heilsugæslan hér uppbyggð þannig að fólk á að geta verið í eftirliti en margir hafa verið á þeirri skoðun að gera mætti betur og á mörgum stöðum er verið að reyna það með skipulagðri teymis- vinnu,“ segir Elínborg Bárðardóttir, formað- ur félags heimilislækna, sem segir einhug um það innan stéttarinnar að innleiða þurfi sam- ræmda, rafræna sjúkraskrá. Hún sé sann- færð um að það myndi auka öryggi sjúklinga, bæta meðferð þeirra og spara fé, meðal ann- ars með því að koma í veg fyrir óþarfa end- urtekningar. Þá vilji hún sjá það verða að veruleika að sjúklingar verði með einn aðalumsjónarlækni sem hafi heildaryfirsýn yfir meðferð þeirra. „Það er svo að langflestir sjúklingar með langvinn veikindi eru ekki bara með einn sjúkdóm heldur marga eða fjölvandamál og þá er eðlilegra að eftirlit sé hjá almennum lækni sem hefur þjálfun í fjölvandamálum eins og heimilislæknar og almennir lyflæknar hafa.“ Hún bendir á að margir langveikir sjúk- lingar sjái sérfræðing sinn aðeins nokkrum sinnum á ári og að því þurfi að hvetja til sjálfsumönnunar og sjálfsábyrgðar með því að efla stuðning við sjúklinga og fjölskyldur. Einnig þurfi að koma á meiri samvinnu og sam- hæfingu meðferðaraðila til að lágmarka líkur á mistökum sem hljótast af samskiptaleysi, svo sem rangri lyfjagjöf. Deilt um útfærslu, hraða og fjárveitingu „Menn deilir um hvern- ig eigi að framkvæma þetta, hve hratt og hversu miklu fé eigi að verja í þetta. Þær hindranir sem við stöndum frammi fyrir eru margs konar. Þar eru fjár- munir kannski efst á blaði en teymisvinna er dýr hvort sem er í heilsugæslu eða á göngu- deildum. Sérhagsmunir geta líka ráðið ferð- inni. Menn vilja stundum halda í sjúklinga. Þeir átta sig jafnvel ekki á þekkingu kollega sinna sem getur skýrst af því að sérgrein þeirra er önnur. Þá getur meðferðarsamband sjúklings og læknis orðið til þess að læknar vísi sjúklingum ekki frá sér eða sjúklingar vilja ekki fara annað. Einnig geta akademískar ástæður fléttast inn í, til dæmis þegar göngudeild er að safna gögnum eða vill hafa nóg af kennslutilfellum og halda þar af leiðandi í sjúklinga. Síðan getur ýmis hefð skapast eins og á sykursýkisgöngudeildinni en hún var til langs tíma með nánast alla sjúklinga með insúlínóháða sykursýki. Á sama tíma voru þessir sjúklingar flestir hjá heimilislæknum eða almennum læknum í nágrannalöndunum. Sykursýki er sjúkdómur sem verður æ algengari þannig að göngu- deildir sjúkrahúsanna anna ekki lengur álag- inu. Það verður að taka á þessu og stuðla að því að aðrir geti annast þessa sjúklinga líka.“ Hægt að breyta vinnufyrirkomulaginu Ekkert telur Elínborg að sé því til fyrir- stöðu að heimilislæknar taki aukinn þátt í meðferð langveikra. „Þrátt fyrir að vinnuframlag heimilislækna hafi verið minnkað og þeir eigi erfitt með að bæta við sig sjúklingum er hugsanlega hægt að breyta vinnufyrirkomulagi og auka aðstoð við lækna þannig að það verði mögulegt að sinna ákveðnum sjúklingum betur. Sjúkling- ar fara í einhverjum tilfellum frá einum sér- fræðingi til annars þó að hægt sé að notast við almennan lækni sem hefur mikla reynslu og getur í rauninni leyst mörg vandamál. Það skiptir miklu máli fyrir langveikan mann að hafa reyndan lækni sem þekkir vel til hans og umhverfis hans og á þannig auð- velt með að meta vandamál sem upp koma en það getur sparað tíma, fjármuni og óþæg- indi.“ Sérhagsmunir ráða stundum ferðinni Elínborg Bárðardóttir Morgunblaðið/Eggert Vinnutækin Formaður heimilislækna telur þörf fyrir umsjónarlækna fyrir langveika.  Heimilislæknar geta létt undir byrðinni  Hægt að spara fé og lágmarka óþægindi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.