Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.10.2009, Blaðsíða 5
Íþróttir 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009 Rhein-NeckarLöwen, sem þrír íslenskir handknattleiks- leikmenn leika með, vann örugg- an sigur á Dormagen, 35:25, á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Guðjón Valur Sig- urðsson skoraði sjö mörk fyrir Lö- wen, Ólafur Stefánsson sex og Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú mörk.    Gylfi Gylfason og IngimundurIngimundarson og félagar í GWD Minden fór illa að ráði sínu í heimsókn til Grosswallstadt. Þeir voru yfir allan leikinn allt til á enda- sprettinum þegar heimamenn náðu að jafna metin, 25:25, rétt áður en flautað var til leiksloka. Minden liðið var fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10. Gylfi var markahæstur hjá GWD Minden með sex mörk og Ingi- mundur skoraði þrisvar sinnum. Sverre Jakobsson stóð að vanda í vörn Grosswallstadt.    Gummersbach færðist upp í 5.sæti deildarinnar með örugg- um sigri á Melsungen á útivelli, 32:23. Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach en var þar að auki vísað af leikvelli tvisvar sinnum í tvær mínútur.    Vignir Svavarsson skoraði tvömörk og var tvisvar sinnum vís- að af leikvelli þegar Lemgo vann öruggan sigur á Balingen, 26:20, á útivelli. Lemgo er í 6. sæti.    Lübbecke, lið þeirra HeiðmarFelixsonar og Þóris Ólafs- sonar, tapaði á heimavelli fyrir Magdeburg, 30:29, og situr eftir í 12. sæti deildarinnar með 6 stig að lokn- um átta leikjum. Þórir skoraði fimm mörk og Heiðmar þrjú.    Flensburg, liðAlexanders Peterssonar, tapaði útivelli fyr- ir HSV Ham- burg, 37:31, í kvöld. Með sigr- inum komst Hamborgarliðið á topp deildarinnar með fullt hús stiga að loknum sjö leikjum. Alexander skoraði tvö marka Flensburg.    Aron Pálmarsson gat ekki leikiðmeð Kiel í gær vegna veikinda en þá vann liðið stórsigur á Göpp- ingen, 40:22, á heimavelli.    Hannes Jón Jónsson skoraði fjög-ur marka Hannover-Burgdorf þegar liðið tapaði fyrir Düsseldorf í gær, 29:25, á útivelli. Sturla Ásgeirs- son skoraði ekki fyrir Düsseldorf. Fólk folk@mbl.is ÞETTA var þriðji leikur Íslands í undankeppni HM en áður hafði liðið unnið stórsigra á Serbíu og Eistlandi. Frakkar höfðu hins vegar leikið einn leik en þeir unnu 7:0 sigur á Króatíu í síðasta mánuði. Eins og Sigurður Ragnar benti á varð hann að gera nokkrar breytingar á byrjunarliði Ís- lands en þær Guðrún Sóley Gunnars- dóttir og Dóra Stefánsdóttir voru frá vegna meiðsla og Sara Björk Gunn- arsdóttir er með flensu. Þá varð markamaskínan Margrét Lára Við- arsdóttir að fara af velli eftir hálftíma leik vegna meiðsla. Óhætt er að segja að íslenska liðið hafi ekki mátt við þessum skakkaföll- um gegn hinu sterka liði Frakklands sem gerði stelpunum okkar enn eina skráveifuna. Gaëtane Thiney og Elodie Thomis gerðu mörkin en sig- urinn var fyllilega verðskuldaður og hefði orðið stærri ef ekki hefði verið fyrir góðan leik Þóru B. Helgadóttur í markinu. Þá vantaði allan brodd í sókn íslenska liðsins. Breiddin nýtist gegn veikari andstæðingum „Við erum með fína breidd í hópn- um, leikmenn sem geta nýst okkur vel gegn veikari andstæðingum, en gegn svona rosalega sterkum and- stæðingi verður allt að ganga upp. Því miður erum við bara með eina Margréti Láru og eina Guðrúnu Sól- eyju, en þeir leikmenn sem koma inn í staðinn gefa allt sitt í leikinn og eru alls ekki mikið lakari leikmenn. Það skiptir líka máli að þær eru ekki jafn vanar að spila saman,“ sagði Sigurður Ragnar. „Ég þurfti að stilla upp nýju mið- varðapari vegna meiðsla Guðrúnar og mér fannst það ekki virka nógu vel í byrjun leiks. Þess vegna víxlaði ég á þeim Ernu [Björk Sigurðardóttur] og Sif [Atladóttur] eftir tuttugu mínútur. Mér fannst það ganga betur. Planið var að verjast vel enda viss- um við að við værum að fara með vængbrotið lið til að mæta mjög sterkum andstæðingi. En við eigum heimaleikinn enn inni og ætlum okk- ur að vinna þann leik með stærri mun næsta sumar,“ sagði Sigurður Ragn- ar en íslenska liðið hefur sett stefn- una á að enda í efsta sæti riðilsins en það er eina sætið sem gefur mögu- leika á að komast í lokakeppnina í Þýskalandi 2011. Verði Ísland og Frakkland jöfn að stigum í riðlinum mun markatalan úr innbyrðis við- ureignum skera úr um hvort liðið endar ofar. „Vorum skrefi á eftir í öllum okkar aðgerðum“ Þó fátt hafi verið um fína drætti hjá íslenska liðinu á laugardaginn gat þjálfarinn fundið jákvæða punkta til að taka með í leikinn gegn Norður- Írum í Belfast á miðvikudaginn. „Sif var ein af okkar bestu mönnum í þessum leik og Þóra varði oft mjög vel í markinu. Rakel [Hönnudóttir] var líka mjög dugleg í framlínunni þannig að það voru jákvæðir punktar í þessu hjá okkur en við lentum í basli. Frakkarnir eru með frábært lið og voru í miklum ham í þessum leik svo þessi 2:0 úrslit voru alveg í takti við gang leiksins. Þetta franska lið er náttúrulega með leikmenn sem hafa verið að brillera í bandarísku atvinnu- mannadeildinni og við vorum bara skrefinu á eftir í öllum aðgerðum. Ég veit ekki hvort okkur hefði tek- ist eitthvað betur upp með því að nota annað leikskipulag. Mér fannst bara gæðamunurinn á liðunum koma ber- lega í ljós í þessum leik og til þess að vinna Frakkland þurfum við að vera með alla okkar bestu leikmenn og þeir þurfa svo að eiga sinn allra besta leik. Það er bara svoleiðis,“ sagði Sig- urður Ragnar sem hefur lítið getað kynnt sér næsta andstæðing en Norð- ur-Írar unnu 1:0 sigur í Króatíu á laugardaginn. Íslenska liðið má illa við að misstíga sig og sigur í Belfast er nánast skilyrði en það gæti reynst þrautin þyngri án „öxulleikmann- anna“ sem Sigurður Ragnar benti á en eins og fram kemur á forsíðu íþróttablaðsins er óvíst hvort þær Margrét Lára og Sara Björk geti tek- ið þátt í leiknum. „Höfum séð einn leik á spólu“ „Við höfum nú bara séð einn leik með þeim á spólu og því miður ekki meira en það, en það má búast við að þetta sé þriðja besta liðið í riðlinum. Við verðum að vinna þennan leik ef við ætlum að eiga einhverja mögu- leika á að komast áfram. Við viljum búa til úrslitaleik gegn Frökkunum á Laugardalsvelli næsta sumar og til þess að það gerist megum við ekki missa stig gegn öðrum andstæð- ingum,“ sagði Sigurður Ragnar. „Við viljum búa til úrslita- leik gegn Frökkunum“ Morgunblaðið/Golli Vonbrigði Þær Erna Björk, Edda, Katrín og Erla Steina máttu sætta sig við tap gegn Frakklandi á laugardaginn. „Þetta gekk náttúrulega ekki upp eins og við vonuðumst til. Það var of mikill missir fyrir okkur að missa þennan öx- ul úr liðinu sem þær Guðrún Sóley, Margrét Lára og Sara Björk eru auk þess sem Dóra Stefánsdóttir hefði nýst okkur í þessum leik. Það er erfitt að fylla í skörðin þegar það vantar svona margar,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari kvennalandsliðs Ís- lands í knattspyrnu eftir 2:0 tap gegn Frakklandi í Lyon á laugardaginn. Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is  „Öxulinn“ vantaði í lið Íslands sem tapaði í Frakklandi  N-Írar næstir á dagskrá Í HNOTSKURN »Frakkland vann Ísland 2:0 íþriðja leik Íslands í undan- keppni HM. Gaëtane Thiney gerði fyrra markið á 24. mínútu og Elodie Thomis það seinna á 77. mínútu. » Ísland hafði fyrir leikinnunnið Serbíu 5:0 og Eistland 12:0 en báðir þessir leikir voru á Laugardalsvelli. »Frakkland hafði hins vegarunnið Króatíu 7:0 en sjötta liðið í riðlinum er Norður- Írland. JACK Poole aðalmaðurinn á bak við umsókn Vancouver í Kanada þess efnis að halda vetr- arólympíuleikana árið 2010 lést á laugardag. Hann var 76 ára gamall og hafði glímt við krabbamein í blöðruhálskirtli. Poole var for- maður kanadísku nefndarinnar sem sótti um vetrar-ÓL árið 2003 og hann var formaður skipulagsnefndar ÓL 2010. Poole gerði sér vonir um að ná að upplifa leikana sem fram fara í febrúar á næsta ári. Jacques Rogge formaður Alþjóða ólympíu- nefndarinnar, IOC, sagði á laugardag að hann hefði misst góðan vin. „Poole var mikill leiðtogi og góður ein- staklingur. Ég er ekki í vafa um að heiðri hans verður haldið hátt á lofti á leikunum í Vancouver,“ sagði Rooge í yfirlýsingu sem IOC sendi frá sér um helgina. seth@mbl.is ÓL-formaðurinn lést Jack Poole DIDIER Cuche frá Sviss sigraði í risasvigi á fyrsta heimsbikarmóti ársins í karlaflokki í gær, sem fram fór í Sölden í Austurríki. Sam- anlagður tími hans var 2.21,45 mínútur og er þetta 10. sigur hans á heimsbikarmóti. Cuche varð annar á þessu móti fyrir ári en þá sigraði Daniel Albrecht frá Sviss. Albrecht hefur ekkert keppt frá því hann slasaðist al- varlega þann 22. janúar á þessu ári í Kitzbü- hel . Cuche var 0,60 sekúndum á undan Bandaríkjamanninum Ted Ligety og Carlo Janka frá Sviss varð þriðji, 0,95 sekúndum á eftir, en hann er heimsmeistari í risasvigi. „Eftir margra mán- aða undirbúningstímabil er ánægjulegt að ná að sigra á fyrsta mótinu. Það er mikil spenna sem fylgir því að bíða eftir fyrsta móti ársins,“ sagði hinn 35 ára Cuche. seth@mbl.is Cuche fagnaði sigri Didier Cuche KJARADEILU NBA-deildarinnar og dómara er lokið. Samningar hafa náðst og var skrifað undir tveggja ára samning. Dómarar fóru í verkfall fyrir fjórum vikum og var allt útlit fyr- ir að tímabilið myndi hefjast án þeirra og kalla yrði inn varadómara. Varadómarar hafa dæmt leiki á undirbúningstímabilinu og voru mörg lið ósátt við þá stöðu. Þrír dómarar starfa við hvern leik. Alls eru 57 dómarar við störf yfir keppnistímabilið og þar á meðal er ein kona, Violet Palmer. Dómarar í NBA deildinni eru atvinnumenn og er óhætt að segja að starfið sé hálaunastarf. Grunnlaunin fyrir nýliða eru 1,5 milljónir kr. á mán- uði og allur kostnaður er greiddur af NBA-deildinni. Þeir sem eru með lengstan starfsaldur í dómarastéttinni fá um 5,6 milljónir kr. á mánuði eða 67 milljónir kr. í árslaun. seth@mbl.is Há árslaun dómara Violet Palmer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.