Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009  Með svarta glansandi hárkollu, gerviaugnhár, gloss og mjaðma- hnykkina á hreinu flutti listamað- urinn fjölhæfi Egill Sæbjörnsson lagið „Crazy Like a Bee“ í Kastljós- inu í fyrrakvöld. Atriðið hefði getað orðið glatað en varð ótrúlega töff, eiginlega bara ótrúlega, ótrúlega töff. Ekki skemmdi skemmtilegur hópur föngulegra dansara í bak- grunninum heldur fyrir. Það er spurning hvort gjörn- ingur Egils í Hafnarhúsinu í kvöld verður eins flottur. Klukkan átta í kvöld flytur Egill nefnilega gjörn- inginn „The Mind“ ásamt listakon- unni Marcia Moraes í Listasafni Reykjavíkur. Egill er líka með sýn- inguna Staðarandi og frásögn í Listasafninu og er sýningin og gjörningurinn unnin í samstarfi við Sequences-gjörningahátíðina sem nú stendur yfir. Verður hárkollan svarta kannski í Hafnarhúsinu í kvöld? Ótrúlega töff Egill í Kastljósinu Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG ER poppplötusnúður og það fylgir því oft mikil kvöl og kvöð að þurfa að spila popp út í eitt. Tónlistin sem ég spila er ekki endilega innan míns áhugasviðs og þá kemur upp löngun til að breyta aðeins til svo öll kvöld verði ekki eins. Að setja þetta band saman var fluga sem ég fékk í hausinn og tónlistin sem við spilum er tónlist sem höfðar mikið til mín,“ segir Atli Rúnar Her- mannsson, oft nefndur skemmtanalögga, um nýtt band sem hann hefur sett saman. Bandið nefnist A+ og heldur sína fyrstu tónleika í kvöld. A+, sem vísar til Atli plús fleiri, samanstendur af Atla Rúnari sem er plötusnúður, Steinari Sig saxófónleikara, Jóhanni Hjör- leifssyni slagverksleikara og Davíð Sveins bassaleikara. „Þetta er svona bræðingur, það er ekkert æft eða ákveðið eða farið eftir nótum. Ég þeyti skífum og svo koma þeir yfir og spinna út frá tónlistinni svo úr verð- ur svokallaður bræðingur. Allt er spilað eftir eyranu, stemningunni og fílingnum. Við munum mestmegnis spila hús- og sálartónlist, funk og diskó og þá er ég ekki að tala um „WMCA“. Þetta verður grúví,“ segir Atli og bætir við að þeirra markaður verði kokkteilboð, opnanir og fyrriparts kvöld um helgar, þar sem tónlist þarf að vera en á ekki að vera í aðalhlutverki. Fyrsta opinberlega framkoma A+ verður í kvöld á Póst- húsinu, Pósthússtræti 13 í Reykjavík. Spilað eftir eyranu, stemningunni og fílingnum  Og enn af Sequences. Í dag kl. 17 verða sýndar kvikmyndir og mynd- bandsverk eftir ýmsa listamenn í Regnboganum. Til sýnis verða myndirnar Vitaskuld, Auðvitað! frá gerningi Gjörningaklúbbsins við Garðskagavita í vor. Verkin Four New York Minutes og Ode to An Ode eftir Curver. Verkið an Exqui- site Corpse in Nikisialka um dvöl 16 íslenskra og pólskra listamanna sem störfuðu í Póllandi sumarið 2008 og að lokum verður sýnd 30 mín. heimildarmynd um það þegar Sirkus bar var fluttur af Kling & Bang gallerí til London á Frieze- lista-kaupstefnunni, haustið 2008. Aðgangur er ókeypis og verða myndirnar einungis sýndar í þetta eina skipti. Myndbandsverk í Regnboganum í dag Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is GÍSLI Örn Garðarsson var afslapp- aður að venju, á leið af æfingu á Faust í Borgarleikhúsinu sem hann leikstýrir, þegar blaðamaður náði tali af honum í fyrradag. Tilefni símtals- ins var þó ekki Faust, heldur stikla ein glæný á netinu úr kvik- myndinni Prince of Persia: The Sands of Time þar sem Gísli fer með hlutverk skæðasta and- stæðings Persíu- prinsins, The Vi- zier (Vesír á íslensku). Gísli er allsvakalegur að sjá í þessari stiklu (sjá mynd), afmyndaður í framan með glær augu og snáka í höndum. Skratti þessi er leiðtogi klíku sem reynir að hafa hendur í hári prinsins, sem Jake Gyllenhaal leikur, því prinsinn hefur undir höndum mikinn töfrahníf sem gerir mönnum kleift að spóla aftur í tíma. „Mér er falið það verk að verða mér úti um þennan hníf,“ útskýrir Gísli líkt og hann sé að tala um eitthvað jafnhversdagslegt og að vera sendur út í búð að kaupa mjólk. Og færa hann enn verri gæja? „Já, það er nú alltaf einhver fyrir ofan einhvern annan,“ svarar Gísli, en sá alversti er leikinn af Ben Kingsley. Þessi mynd hlýtur að hafa verið svolítið dýr... „Já, ég held að þetta hafi bara ver- ið dýrasta mynd síðasta árs, þær verða ekkert dýrari,“ svarar Gísli og af stiklunni að dæma gæti þetta vel staðist hjá honum, enda framleiðandi rándýrra mynda á bakvið verkefnið, sjálfur Jerry Bruckheimer (Top Gun, Pirates of the Caribbean-myndirnar og The Rock, svo fáar séu nefndar). Leitað að hesti í Madrid Hvað varstu lengi í tökum? „Ég var alveg off og on í sjö mán- uði tengdur þessu verkefni, frá því ég mætti fyrsta daginn í vinnu í Madrid þar sem var verið að leita að hesti handa mér, til þess að nota í mynd- inni. Svo átti ég síðasta tökudaginn minn sjö mánuðum síðar en ég var náttúrulega ekkert við þetta allan tímann, mér var flogið fram og til baka eftir hentugleika. Þetta var tek- ið upp í London og í Marokkó.“ Tökur fóru m.a. fram í Atlasfjöll- unum í Marokkó, í þrjú þúsund metra hæð og Sahara-eyðimörkinni. „Við vorum á mjög mörgum stöðum, þurftum að ferðast mjög mikið um landið í þessari vinnu.“ Hvernig gekk að ríða þessum gæð- ingi sem var valinn handa þér? „Það gekk bara mjög vel, enda var maður þjálfaður af mjög góðu fólki. Svo er ég náttúrulega með þessar linsur og þær blinda mann. Þannig að stundum var maður ríðandi blindur í bröttum fjallshlíðum á harðastökki. Ég steig oft skjálfandi af baki.“ Var mikið af „green screen“- brelluveseni í kringum þessa mynd? „Miklu minna en ég hélt. Ég hélt það yrði þannig en það var ótrúlegt hvað þeir byggðu af leikmyndum og gerðu þetta raunverulega. Það er alltaf green screen einhvers staðar en í grunninn var þetta allt byggt.“ Hvernig var Jake Gyllenhaal? „Hann er bara góður gæi og dug- legur leikari, lagði mikið á sig fyrir þetta.“ Nú var svolítið talað um það í slúð- urpressunni hvað hann hefði lagst í mikla vaxtarrækt fyrir hlutverkið. Varst þú samt ekki miklu massaðri? „Jú, ég verð það alltaf,“ svarar Gísli kíminn. Er þetta ekki lítill gaur? „Jaa, hann er nú nokkuð hár, ekk- ert svo lítill.“ Leikið á móti Gandhi Svo er þarna stórleikarinn Ben Kingsley. Var ekki dálítið merkilegt að hitta hann? „Jú, ég á nokkrar senur með hon- um. Það eitt og sér er bara sérkafli, að leika á móti Gandhi. Hann er svakalega góður leikari. Maður hefur svo sem ekki séð hann neitt rosalega mikið, heldur að hann sé svolítið ster- íótýpískur. En hann er hrikalega góð- ur leikari.“ Leikstjórinn Mike Newell er held- ur enginn aukvisi, með Harry Potter og Four Weddings and a Funeral m.a. á ferilsskránni. Er hann líka góður gæi? „Já, mjög, og ég fékk þetta hlut- verk líka beint út á Rómeó og Júlíu. Þegar ég hitti hann og var að prufa fyrir þessa mynd þá sagði hann: „Bíddu, varst þú ekki í Rómeó og Júl- íu?“ og ég sagði jú,jú. „Það er besta leikhús sem ég hef séð á ævinni, ég vil að þú leikir þetta hlutverk!“ sagði hann þá. Þannig að það skilaði mér þessu, sex árum seinna,“ segir Gísli. Newell hafi séð uppfærslu Vestur- ports á verkinu í London. Aðspurður segir Gísli Newell ekki hafa látið hann beita neinum fimleikabrögðum við tökur, enda öryggis leikara gætt í hvívetna og áhættuleikarar látnir leika í mestu áhættuatriðunum. „Maður gerði nú samt slatta af ein- hverju stönti sjálfur, reyndi að fá að gera eins mikið og maður gat af því.“ Sáttur við lífið Er ekki búið að bjóða þér nein kvikmyndahlutverk eftir þátttökuna í þessari kvikmynd? „Nei, ekkert sem hægt er að rekja til þessarar myndar. Lífið bara held- ur áfram,“ segir Gísli með stóískri ró. Hann geri sér ekki vonir um slík til- boð. „Ég tel mig vera að gera það sem mig langar að vera að gera. Það er fátt skemmtilegra en að vinna í ís- lensku leikhúsi.“ Það er enda nóg að gera hjá Gísla og leikhópnum Vesturporti sem er að setja upp Faust í samstarfi við Borg- arleikhúsið og kvikmyndirnar Brim og Kóngavegur 7 báðar komnar í klippingu. Rómeó landaði Vesírnum  Gísli Örn segir það mikla upplifun að leika á móti Ben Kingsley  Reið hálf- blindur um Atlasfjöllin  Leikstýrir Faust með Vesturporti í Borgarleikhúsinu Kvikmyndin um Persaprinsinn byggist á samnefndum tölvuleik. Söguþráður myndarinnar er í stuttu máli þessi: Dastan Persa- prins og prinsessan Tamina bjarga í sameiningu hníf einum sem er gjöf frá guðunum. Hnífur þessi er þeirri náttúru gæddur að sá sem hefur hann undir höndum getur stjórnað tím- anum. En illmennið Nizam (Ben Kingsley) girnist hnífinn og sendir óþokka sína á eftir þeim. Byggt á tölvuleik Á gæðingi Jake Gyllenhaal sem Persíuprinsinn með leikkonunni Gemmu Arterton sem leikur prinsessuna Taminu. Gísli sem Vesírinn Augnlinsurnar og förðunin gera hann óárennilegan. Gísli Örn Garðarsson  Leikkonan Halla Vilhjálms- dóttir er komin með lag sitt „Who“ í úrslit sænsku Evróvisjón-söngva- keppninnar. Lagið er eitt tíu laga sem keppir til úrslita og miðað við Facebook-færslur Höllu er hún í skýjunum með árangurinn. Lögin sem komust í úrslit voru fyrst valin með netkosningu almennings og síðan dómnefnd. Keppnin í Svíþjóð skiptist í nokkra undanúrslitaþætti og framlag Svía til Evróvisjón í ár verður svo valið hinn 13. mars. Halla hefur opnað sænska vef- síðu undir slóðinni: http://heja- halla.se. Verður Halla Vilhjálms keppandi Svíþjóðar? Atli Rúnar Stofnaði bandið A+. Fólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.