Saga


Saga - 1951, Page 66

Saga - 1951, Page 66
240 skoðað menn og málefni gegnum stranglútersk gleraugu, og frásögn þeirra og mat hlaut að lit- ast af þeirri orsök. Þeir skoða lúterska kenn- ingu ina einu sönnu og sáluhjálplegu kenningu, og sýna viðleitni til þess að þvo frömuði siða- skiptanna hreina af verkum þeirra. Guðbrand- ur, sem er rétttrúaður katólskur maður, hlýtur aftur á móti að líta á menn og atburði gegnum katólsk gleraugu, en hann sýnir þó jafnframt fulla viðleitni til hlutlausrar lýsingar á mönn- um og atburðum. Að vonum fær Gizur Einars- son ófagra einkunn fyrir hegðun sína hjá Guð- brandi, og stingur því mat hans á Gizuri all- mjög í stúf við umsagnir flestra inna lútersku sögumanna, sem, eins og sagt var, flestir reyna að berja í brestina fyrir hann. Guðbrandur hefur rit sitt á fróðlegu yfirliti yfir aldarfar og trúar- og siðastefnur fyrirfar- andi alda og siðaskiptaaldarinnar sjálfrar, svo sem þær voru sunnar í álfunni. Siðalög við- reisnaraldarinnar einkenndist af einræðishneigð ríkismanna, bæði lærðra og leikra, og gersam- legu virðingarleysi fyrir skoðunum og hags- munum annarra manna. Þeir skeyttu lítt um það, hverjum ráðum þeir beittu til þess að koma vilja sínum fram, og ofríkisverk, vígaferli og heimreiðir á óvini þeirra, falsanir og svik ýmis konar voru því ekki ótíðir viðburðir. Viðreisnar- stefnan hlaut að sjálfsögðu að setja mark sitt á hugsanir og gerðir íslenzkra höfðingja, enda þótt andleg menning visreisnartímans hefði enn ekki verulega fest rætur meðal þeirra. í ljósi þessarar stefnu metur Guðbrandur svo hátt- semi manna siðaskiptatímans á Islandi, þar á meðal söguhetju sinnar, Jóns biskups Arasonar

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.