Saga - 1979, Page 38
36
ANNA AGNARSDÓTTIR
. . . their Lordships approve af the agreement entered
into with the Govemor of Iceland, as being well cal-
culated to establish an amicable intercourse with Ice-
land not unfavourable to the interests of this king-
dom, and essentially necessary to the existence of that
island ...
Nokkrum dögum eftir brottför Notts frá Islandi, eða 21.
júní, kom skipið Margaret and Ann til Reykjavíkur. Aug-
lýsing Trampes um að öll verslun við útlendinga væri
bönnuð að viðlagðri dauðarefsingu hafði þá ekki enn verið
tekin niður, og samningur hans við Nott var hvergi til sýn-
is. Savignac skýrði hins vegar Phelps frá samningnum og
var ákveðið að bíða þess um sinn, að Trampe birti hann.
Þann 25. júní voru tíu dagar liðnir, síðan samningurinn
hafði verið undirritaður. Sáust þess þó engin merki, að
Trampe hefði í hyggju að kynna landsmönnum ákvæði
hans. Kauptíðin var hafin, og tslendingar þorðu ekki að
versla við ensku kaupmennina. Hlutu þeir Phelps því að
álykta sem svo, að Trampe ætlaði ekki að standa við samn-
inginn.
Frá sjónarmiði Phelps var ekki um marga kosti að
velja. Farmur sá, sem Clarence hafði flutt til landsins, lá
að mestu óhreyfður í vöruhúsum í Reykjavík. Margaret and
Ann var fullhlaðin, og Flora var væntanleg innan fárra
daga. Phelps hafði leyfisbréf frá bresku ríkisstjórninni til
verslunar við Islendinga og þar að auki víkingabréf, sem
heimilaði honum að hertaka óvinaskip og -eignir. Flota-
málaráðuneytið hafði lofað að vemda þessa verslun, og
Nott hafði samið við Trampe um frjálsa verslun milli Breta
og Islendinga. En Trampe, sem var Dani, og því, þegar öllu
var á botninn hvolft, fjandmaður Breta, kom í veg fyrir
verslunina með því að draga birtingu verslunarsamnings-
ins á langinn. Nott var fjarstaddur, og Phelps átti um
það að velja að freista þess að knýja Trampe á einhvern
hátt til þess að leyfa verslunina, eða að öðrum kosti að snúa