Saga - 1993, Page 298
Höfundar efnis
Aðalsteiim Davíðsson, f. 1939. Stúdent frá MA 1958. Cand. mag próf í íslensk-
um fræðum frá HI 1966. Próf í uppeldis- og kennslufræði frá HI 1971. Nám í
grísku við HI og finnsku við HI og í Finnlandi. Kennari við gagnfræðastigið í
Reykjavík 1962-65. Sendikennari við háskólann í Helsinki 1967-69 og
1990-91. Styrkþegi við háskólann í Lundi 1969-70 (vann við gerð Sænsk-ís-
lenskrar orðabókar). Kennari við MT (nú MS) frá 1971. Rit: Ritstjóri Sænsk-ís-
lenskrar orðabókar (Lund 1982). Þýðing: Matti Klinge, Ágrip af sögu Finnlands
(1990).
Agnes Siggerður Arnórsdóttir, f. 1960. Stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
1980. BA-próf í sagnfræði frá HÍ 1984. Framhaldsnám í miðaldasagnfræði
við háskólann í Björgvin. Cand. mag. próf í sagnfræði frá HÍ1991. Við sagn-
fræðirannsóknir í Frakklandi frá 1991. Hefur birt greinar og ritgerðir um sagn-
fræðileg efni í safnritum og tímaritum hérlendis og í Noregi.
Bergsteinn jónsson, f. 1926. Stúdent frá MR 1945. Cand. mag. próf í sögu Is-
Iands, almennri sögu og ensku frá HI1957. Framhaldsnám í Bandaríkjunum
1971-72. Kennari við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1958-62 og MR 1959-71.
Lektor og síðar dósent og prófessor í sagnfræði við HÍ frá 1967. Rit: Mann-
ki/nssaga 1648-1789 (1963), Tryggvi Gunnarsson II (með öðrum), III og IV
(1965, 1972 og 1990), íslandssaga til okkar daga (meðhöfundur, 1991). Út-
gefandi: Landsnefndin 1770-1771 (1958-61), Vestræna. Ritgerðir til heiðurs
Lúðvík Kristjánssyni sjötugum (meðútgefandi, 1981).
Björn S. Stefánsson, f. 1937. Rit: Hjáríki. Staða íslands samkvæmt samnings-
uppkastinu um EES (1992). Sjá að öðru leyti Sögu 1990, bls. 281.
Einar H. Einarsson (1912-1992). Bóndi á Skammadalshóli í Mýrdal frá 1938 til
1990 en bjó eftir það í Vík. Hann fékk ungur mikinn áhuga á náttúrufræði og
las sér mikið til um áratuga skeið um þau efni, einkum jarðfræði, grasafræði
og fuglafræði. Einar stundaði eiginlegar rannsóknir, m.a. í jarðfræði, og þa
stundum með erlendum eða innlendum vísindamönnum. Hann ritaði fjölda
greina um náttúrufræði og þjóðfræði. Einar sá um jarðskjálftamælingar fynf
Raunvísindastofnun Háskólans og Veðurstofuna frá 1971 og gætti þá Kötlu
því að mælir á heimili hans var hluti af varnarkerfi vegna Kötlugosa og einn-
ig hafður til að afla gagna svo spá mætti yfirvofandi gosi.