Norðurland - 12.11.1976, Blaðsíða 3

Norðurland - 12.11.1976, Blaðsíða 3
> Aætlun hilaveitu fyrir Akureyri: Fyrsta hverfið fær heita vatnið strax næsta haust Samkvæmt framkvæmdaáætlun fyrir hitaveitu á Akureyri er gert ráö fyrir að fyrstu húsin í bænum verði tengd næsta haust og verður það væntanlega Syðri brekkan og þar með sundlaugin og skólarnir. Síðan verður dreifikerfið lagt áfram og er reiknað með að framkvæmdum miðað við núverandi byggð ljúki árið 1980. Aðalframkvæmdaár hita- veitunnar verður 1978 sam- kvæmt áætluninni og verður þá ma. unnið við miðlunar- geymana tvo, en annar þeirra á að standa sunnan og ofan við Elliheimilið, en hinn í Mið húsaklöppum. Þetta aðalár, 1978, á að verja 700 — 800 miljónum króna til fram- kvæmdanna, en 1977 400 — 500 miljónum. Árin 1979 og 1980 verður unnið við dreifi- kerfið um bæinn og varið til þess 400 — 500 miljónum 1979 og 200 — 300 miljónum 1980 ef áætlanir standast. Það hefur komið í Ijós við samanburð á kostnaði, að hag kvæmara sýnist að aðveituæð in verði lögð á lofti, einangruð í blikkkápu en í stokk í jörðu. Lögnin frá Laugalandi að miðl unargeyminum við Elliheimil- ið verður um 12 km löng. Bæjarverkfræðingur Akur- eyrar er nú á förum til útlanda ásamt verkfræðingum þeirra verkfræðiskrifstofa "em hanna hitaveituna til að kynna sér efni hitaveitulagna, helstu nýjungar og reynslu. Væntan lega verða framkvæmdir við hitaveituna boðnar út. Næsta sumar verður unnið við aðveituæðina frá Lauga- landi út til Akureyrar og að byggingu dælustöðvarinnar á Laugalandi. Að því er fram kemur í skýrslu frá Orkustofnun um framhald vatnsöflunar fyrir hitaveitu Akureyrar, sem lá fyrir síðasta bæjarstjórnar- fundi, mun einnig þurfa að bora fleiri holur að Lauga- landi, amk. eina, og verður hún um 3000 metra djúp. Til þess verður að fá Jötun, en óvíst er hvenær hægt er að fá hann frá Kröflu. Þá leggja jarðfræðingar Orkustofnunar til, að borhol- urnar sem fyrir eru við Lauga land verði hreinsaðar og lag- færðar, ma. til að fá betri upp lýsingar um vatnskerfið. Með- alstór bor nægir til þess verks. Loks telja þeir að bora þurfi tvær 1600 metra djúpar holur á Eyjafjarðarsvæðinu fjarri syðra Laugalandssvæðinu í von um að fá þar aukið vatns- magn óháð vatnskerfum nú- verandi borhola. Það kemur fram, að Jarð- borunardeild telur líkur á, að boranir þessar geti farið fram í vetur. Úr sýningu Alþýðuleikhússins á Krummagulli, sem brátt verður sýnd í Reykjavík samtímis Skollaleik. Alþýðuleikhúsið sýnir í Reykjavik: Skollaleíkur íær mjög góð- ar undirtektir borgarbúa Einar opnar sýningu Einar Helgason, myndlista- og íþróttakennari opnar mál- verkasýningu í Iðnskólanum á Akureyri í kvöld og sýnir þar 75 vatnslitamyndir, teikningar og málverk. Einar lauk á sínum tíma námi úr Myndlista- og hand- íðaskólanum og hefur kennt myndlist í 23 ár. í stuttu við- tali við „Norðurland“ sagðist hann upphaflega hafa ætlað að leggja þetta fyrir sig, en komist að raun um, að það væri ekki beinlínis lífvænlegt og því tekið þann kostinn að taka teiknikennarapróf. Með kennslunni hefur hann þó ekki mikinn tíma til eigin myndlistariðkunar og hefur því notað sumrin eftir megni. Myndirnar á sýningunni eru langflestar frá síðasta sumri, bæði landslagsmyndir frá Akureyri og nágrenni og teikningar, en einnig er tölu- vert af myndum frá Suðurnesj um, sem Einar málaði er hann dvaldist þar 1972. Alþýðuleikhúsið er uin þessar mundir í sýningarferð í Reykjavík. Leikhúsið frum- sýndi um miðjan október nýtt leikrit eftir Böðvar Guðmunds son er nefnist Skollaleikur. Leiknum hefur verið afar vel tekið og aðsókn verið góð. uppselt hefur verið á allar sýn ingarnar í Reykjavík. Gagn- rýnendur hafa lokið upp ein- um munni um ágæti verksins og frammistöðu aðstandenda sýningarinnar. Til marks um það skulu hér tilfærð ummæli eins þeirra, Heimis Pálssonar í Vísi: „Nú er það löngu vitað að ekki nægir að flytja sannan og góðan boðskap. Það þarf meira til að hræra hjörtu okk- ar en einasta ábendingu um ranglæti. Hana verður að setja fram á þann hátt að raunveru lega vekji menn úr lífsgæða- dvalanum. Það er þar sem skil ur milli feigs og ófeigs. Og það er áreiðanlegt, ef að einhverju leyti má taka mark á viðbrögð um leikhúsgesta á fimmtudags kvöldið, að þessa framsetning arleið höfðu höfundur og flytj endur fundið. Með vel sömd- um, fyndnum og hressilegum texta, einföldum, en markviss- um leikbröndurum og leik- mynd, og sannfærandi, en með vitaðri túlkun hittu þau beint í mark.“ Anægjulegt er til þess að vita að Alþýðuleikhúsið skuli fá svo góðar viðtökur sem raun ber vitni, því að með þeim virðist vera að koma í ljós að sú tilraun sem gerð var með stofnun leikhússins muni heppnast. Krummagull, sem sýnt var 53 sinnum í vor, verður tekið til sýninga í Reykjavík um þessar mundir. Þannig verð- ur leikhúsið með tvö ný ís- lensk verk á fjölunum í einu, sem bæði hafa fengið framúr- skarandi viðtökur. Ekki með í láglaunafundi iiklar verklegar fram- kvæmdir eru í Ólafsfirði Miklar verklegar fram- kvæmdir hafa verið í Olafs- fjarðarbæ í sumar og atvinnu ástand með eindæmum gott framað þessu, en nú hefur at- vinna dregist saman. Fiskirí hjá togurunum hefur verið lítið auk þess sem annar tog- ari Ólafsfirðinga er nú í sigl- ingu. Eitt stærsta verkefni sem Ólafsfjarðarbær hefur ráðist í er gatnagerðin í sumar er steyptar voru götur fyrir fram an helstu fiskverkunarhúsin, þ. e. hraðfrystihúsin bæði, og framhald þess kafla aðalgöt- unnar sem steyptur var fyrir nokkrum árum. Einnig voru götur undirbyggðar. Hafin er smíði heilsugæslu- stöðvar og elliheimilis og var unnið við grunn og kjallara í sumar og ætlunin að bjóða verkið út í vetur, þannig að húsið verði fokhelt fyrir næsta haust. Þá var unnið við verknáms- álmu gagnfræðaskólans og var unnið fyrir um 10 milljónir króna, en þetta er lokaáfangi skólans. Ný íþróttamannvirki Lokið hefur verið við gerð knattspyrnuvallar og unnið er við byggingu skíðastökkbraut ar í svokölluðu Kleifarhorni. Hafnargerð er stöðugt á dag skrá og er það verkefni mikill fjárhagslegur baggi fyrir lítið sveitarfélag. Ný höfn var í byggingu í nokkur ár og hef- ur rýmt og bætt töluvert að- stöðu stærri bátanna, en óleyst ur er samt enn vandi togar- anna, sem eiga erfitt með að athafna sig í höfninni nema í góðu veðri. Of mikil vinna? Atvinnuástand hefur verið með eindæmum gott í sumar og haust, jafnvel um of, þann- ig að fólk hefur haft sáralít- inn frítíma og börn og ungling ar hafa unnið mikið við fram- leiðsluna. Jafnhliða mikilli vinnu hefur félagslíf verið fremur dauft, helst eitthvað um klúbbastarfsemi og kven- félögin hafa verið nokkuð hress. íþróttastarfsemi vetrar ins er rétt að fara í gang. Leikfélag Ólafsfjarðar hef- ur nýverið ráðist í stóra fjár- festingu, keypti ljósatæki fyr ir á aðra milljón króna, svo ljóst er, að ekki ætlar það að leggja upp laupana. Það hef- ur sýnt 1—2 leikrit á ári í sam komuhúsi bæjarins. — Björn Þór. Starfsstúlknafélagið Sókn í Reykjavík hefur boðað til fundar láglaunafðlks á sunnu daginn og verður hann haldinn í Hreyfilshúsinu við Grensás- veg og hefst kl. 2. Búist er við mikilli þátttöku að því er Að- alheiður Bjarnfreðsdóttir for- maður Sóknar sagði Norður- landi, þótt Verkamannasam- bandið hafi hafnað að eiga að ild að fundinum. Láglaunafundurinn var á- kveðinn á félagsfundi í Sókn og þarmeð að bjóða Verka- mannasambandiinu og öðrum láglaunafélögum þátttöku, en nú hefur stjórn Verkamanna- sambandsins svarað neilcvætt og segist telja eðlilegra, að þegar boðað sé til slíks fundar á félagssvæði þess, þá væru það Dagsbrún og Framsókn sem fyrir honum stæðu. Segir stjórnin bæði þessi félög ætla að efna til félagsfunda á næst unni um málefni ASÍ og leggur áherslu á náið samstarf við sambandið. Hinsvegar muni stjórnarmenn sækja fundinn ef Sókn efnir til hans eigi að síður. TILKYNNIIMG frá Félagsmálastofnun Akureyrar Samkvæmt lögum nr. 53 frá 1966 er daggæsla barna á einkaheimilum háð eftirliti barnaverndar- nefndar. Til að auðvelda að þetta lögskipaða eftirlit komist á hér á Akureyri eru allir þeir, sem hafa börn í daggæslu á heimilum sínum og þiggja gjald fyrir, beðnir að tilkynna það til Félagsmálastofnunar. Félagsmálastofnun Akureyrar sími 21000 NORÐURLAND — 3

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.