Organistablaðið - 01.12.1970, Page 8
KARL O. RUNÓLFSSON
tónskáld
Karl O. Runólfsson tónskáld
andaðist að heimili sínu í Reykja-
vik hinn 29. nóv. s.l. sjötugur
að aldri. Hann var fæddtir í
Reykjavík 24. október 1900 .
Ungur að aldri nain Karl
prentiðn og stundaði þá iðn uin
skeið. En Iiðlega tvítugur lagði
hann leið sína til Kaupmanna-
hafnar og lairði trompetlcik hjá
Lauritz Sörensen og fiðluleik lijá
Axel Jörgensen. Tónfræði og
aðrar skyldar greinar nam hann
í Tónlistarskólanum í Reykjavík,
fyrst hjá dr. Franz Mixa en síðan hjá dr. Victor Urbancic.
Um tíma vann Karl að tónlistarmálum á Akureyri og Isafirði. En
í Reykjavík vann hann aðallega sín fjölþættu störf sem hljóðfæra-
leikari í Lúðrasveit Reykjavíkur og Sinfoníuhljómsveitinni, liljóm-
sveitarstjóri hjá Leikfélagi Ileykjavíkur og lúðrasveitum, — hann
stjórnaði Lúðrasveitinni Svanur í 21 ár, -—- kennari við Tónlistar-
skólann. Og þá er ótalinn tónskáldskapur hans. Hann samdi fjölda
tónverka: smálög, einsöngslög, kórlög, bæði fyrir karlakóra og bland-
aðan kór, ýmist með eða án undirleiks, kammerlónlist, hallet-tónlist,
leikhúsforleiki og hljómsveitarverk, þ. á m. eru svíturnar „Á kross-
götum“ og „Endurminningar smaladrengs“ og sinfonían „Esja“. —
Kirkjuleg tónverk samdi liann einnig svo sem sálmalög, mótettur,
nokkrar kirkjukantötur og orgelverk. Hann gekk með áhuga og dugn-
aði að hverju starfi. Með honum er til moldar genginn merkur tón-
Iistarmaður og mikilhæft tónskáld.
8 ORGANISTABLAÐIÐ