Organistablaðið - 01.12.1970, Page 13
ÞÓRARINN JÓNSSON
tónskáld, sjötugur
Þórarimi Jónsson tónskáld varð
sjötugur 18. september síðastl.
Hann er Austfirðingur, fæddur á
Mjóafirði aldamótaárið. Fram
yfir tvítugt var bann við sjóróðra
á Austfjörðnm og nokkra vetur
á vertíð í Vestmannaeyjum. Þá
iiélt hann til Reykjavíkiir til tón-
liötarnáms. Kennarar lians voru
Ernst Scliacht, Þórarinn Guð-
mundsson og Páll Isólfsson. Síð-
an lá leiðin til Þýzkalands til
frekara náms. Aðalkennari hans
þar var próf. E. Koch. í Þýzka-
landi var Þórarinn búsettur i 25 ár og stundaði tónfræðikennslu og
samdi tónverk. Hann fluttist til Reykjavíkur 1950. Kenndi hljómfræði
við Söngskóla þjóðkirkjunnar 1953—1958 og var þá einnig organ-
isti Óháða fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík.
Þórarinn hefur samið fjölda tónverka og ])ó að tiltölulega fátt af
þeim liafi birzt á jnenti hafa mörg þeirra orðið mjög vinsæl, t. d.
karlakórslögin „Ár vas alda“, „Úr Lákakvæði“ og „Huldur“, ein-
söngslögin „Heiðbláa fjólan mín fríða“ „Ave Maria“, „Pastorale"
°g „Vögguvísa“. Þá eru fiðlutónverk hans og þeirra frægast „Preú-
día og tvöföld fúga um nafnið Bach“ fyrir fiðlu án undirleiks, sem
víða 'hefur verið leikið.
Þórarinn liefur samið kirkjuleg tónverk svo sem sálmalög (hafa
‘f þeirra verið fjölrituð) mótettur og orgelverkin Marche funebre,
s©m saminn eru í minning Sveins Björnssonar forseta og Sonata,
þar sem stefið er gamalt ísl. sálmalag. „Uj)p á fjallið Jesú vendi“.
Hafa ] )au 'bæði verið leikin á norrænu kirkjutónlistarmótunum, hið
fyrra hér í Rvík 1952, en hið síðarnefnda í Kaujrmannaahöfn 1961.
I -l.O. sendir Þórarni hamingjuóskir á þessum tímamótum.
ORGANISTABLAÐIÐ 13