Organistablaðið - 01.01.1986, Qupperneq 22

Organistablaðið - 01.01.1986, Qupperneq 22
Ekki hiröi ég um aö tína til fleira úr grein I.S., eins og um ástsældir íslenzkra tónhöfunda (Kaldalóns hefir þar lengi veriö stafnbúi), né heldur um aö þegja í hel menn og málefni (mörg íslenzk tónverk hafa mátt sæta þeim afarkostum um áratuga skeiö, og margir afburöa músíkantar hafa veriö flæmdir af landi brott), né heldur um söguritun og Beethoven (enginn vísindalega menntaöur maður lætur leiðast af „súbjektífri“ skoðun sinni, aöeins af staðreyndum verks), né heldur um þjóöleg tónskáld (hár er þó sess þjóðlegrar stefnu í músík-sögu Evrópu: Chopin, Glinka, Smetana, Grieg, Dvorák, de Falla, Bartók). Hitt er meira um vert, þótt sitt sýnist jafnan hverjum, aö efna til umræöu um tónmenntaleg efni, séu menn „í stakk búnir“ til þess aö ræða vandamál af hlutþekkingu. Öll umræöa á aö miöa til góös. Hún kemur hreyfingu á hlutina. Verst er kyrrstaðan, þögnin, afskiptaleysið, tómlætiö, sem hæglega getur oröiö aö einsýni og þröngsýni. Upp af rökræöu sprettur oft niðurstaða, jafnvel vel grundvallaöur dómur, málefni til góðs, öllum hugsandi mönnum til gagns og uppbyggingar, eflandi víðsýni umburðarlyndis og þekkingar. Öll slík umræöa er sérhverju málgagni nauðsynleg. Frá þeim sjónarhóli séð var ofannefnd grein nýtilegt tilefni til andsvara. Dr. Hallgrímur Helgason Nýr orgelsmiður Til landsins er kominn nýr orgelsmiður frá námi í Þýskalandi. Hann heitir Björgvin Tómasson til heimilis að Dalatanga 27, 270 Varmá, sími 666730. Búöur Organistablaðiö hann velkominn til starfa, en hann mun starfa aö org- el- og harmonium viðgeröum. Organistaferð til Norður-Póllands F.Í.O. hefur boöist að gerast þátttakendur í vikuferö um Norður-Pólland sumarið 1987. í feröinni veröur víöa komiö viö, orgel af ólíkum geröum skoö- uð og heyrt leikið á þau. Farið verður m.a. gegnum Pommern — Danzig og Austur-Prússland. Feröin hefst í Hannoverog endarþarog mun vikan kosta 780 DM. Um kostnað frá íslandi er ekki vitað en félagiö mun leita eftir hóp- afslætti þegar nær dregur. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru beðnir aö hafa samband hið allra fyrsta við ritara félagsins Kjartan Sigurjónsson, Kárs- nesbraut 79, 200 Kópavogi sími 45968. Fararstjóri mun veröa Guðmundur Gilsson. Feröin er ákveðin 29. ágúst til 5. september 1987. 22 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.