Organistablaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 22
Neanderkórinn var stofnaður af stjórnanda sínum, Oskar Gottlieb Blarr, fyrir25árum
síðan, þegar hann hóf störf sem kantor við Neanderkirkjuna í Dusseldorf. Neander-
kirkjan er í miðjum gamla bænum, hún var byggð fyrir u m 300 árum og nafn sitt ber
hún af þýska sálmaskáldinu Joachim Neander. Margir sálma hans eru mjög þekktir,
m.a. Lofið vorn Drottin.
Einleikstónleikar og hádegistónleikar
Á hátíðinni var tekin upp sú ánægjulega nýbreytni í kirkjulegu tónleikahaldi
hér á landi að halda hádegistónleika. Þetta er alþekkt fyrirbrigði víða í kirkjum
erlendis, þar sem haldnir eru slíkir tónleikar vikulega eðajafnvel daglega og
þá allt árið um kring og er þá oftast um hreina orgeltónleika að ræða. Hádegis-
tónleikarnir skiptust í þrenna kammermúsiktónleika og eina orgeltónleika.
Auk þess voru tvennir einleikstónleikar að kvöldi til: Orgeltónleikar Björns
Steinars Sólbergssonar og flaututónleikar Manuelu Wiesler. Svo virðist sem
að hreinir orgeltónleikar eigi erfitt uppdráttar miðað við aðrar tegundir tón-
leika. Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að hér á landi eru fá orgel og lítil
og flest hver í slæmu ásigkomulagi og/eða lágum gæðaflokki. Auk þess segir
það okkur nokkuð um þann aðbúnað sem organistar búa við í kjörum sínum.
Við skulum vona að þetta breytist í framtíðinni og okkur takist að kynna org-
elið sem hljóöfæri betur og ávinna orgeltónlistinni fleiri áhangendur.
Myndlist og leiklist
Á hátíðinni voru vatnslitamyndir Snorra Sveins Friðrikssonar við nokkra
Passíusálma Hallgríms, sýndar í anddyri kirkjunnar. Meira mætti gera af
22 ORGANISTABLAÐIÐ