Organistablaðið - 01.12.1987, Side 2
en annars gæti viðkomandi haft frumkvæði sjálfur og unnið á þeim sviðum
þar sem hæfileikar hans og áhugamál njóta sín best. En þar sem víða er ekki
skilningur á gildi þess að hafa organista í fullri stöðu, er nauðsynlegt að hafa
skýrar reglur um útreikning á stöðustærð.
í þriðja lagi ber að stefna að því að organistastarfið verði verndað starfs-
heiti, þannig að ekki verði aðrir fastráðnir sem organistar en þeir, sem hafa
kirkjutónlistarmenntun. Hér er rétt að benda á að sitthvað er kirkjutónlistar-
menntun og menntun í orgelleik. Þeir sem starfa sem organistar við kirkjur
þurfa auk orgelleiks og kórstjórnar að hafa menntun í hinum sérstöku kirkju-
tónlistargreinum, s.s.: litúrgískum orgelleik, sálmafræðum, helgisiðafræð-
um, impróvisasjón o.fl. í þessu sambandi væri kannski rétt að taka upp ann-
aö starfsheiti eins og t.d. kantor, kirkjutónlistarmaður eða eitthvað álíka.
Hér hefur aðeins verið tæpt á nokkrum atriðum, en þau sýna að mikið verk
er óunnið á þessu sviði. Vonandi taka þeir sem stjórna málum kirkjunnar vel
í óskir okkar um breytingar og endurbætur á málum organista. í bessu sam-
bandi þurfum við organistar að efla skilning innan okkar eigin stéttar og ekki
síst innan kirkjunnar almennt að við erum fyrst og fremst kirkjulegir
starfsmenn. .... ,,
Þrostur Eiriksson
Gjaldskrá FÍO
gildir frá 1.11. 1987
1. Organleikurviðútför kr. 2686
2. Organleikur við útför, meö einleik eða
með undirleik með einsöng eða einleik kr. 4029
3. Organleikurviðkistulagningu kr. 2014
4. Gjald fyrir ferðir, ef organleikara er
ekkiséðfyrirfari(Rvk. prófastdæmi) kr. 294
5. Organleikurviðhjónavígslu kr. 2686
6. Organleikurviðguðsþjónustur(íforföllum) kr. 5372
7. Organleikurviðhelgistundirásjúkrahúsum kr. 3814
8. Organleikurviðskírn kr. 2014
Annast viðgerðir og stillingar
á pípuorgelum og harmóníum.
Björgvin Tómasson
orgelsmiður
Dalatanga 27 - 270 Varmá - Sími 666730
2 ORGANISTABLAÐIÐ