Organistablaðið - 01.12.1987, Qupperneq 11
Sömuleiðis hefur hann samið mörg lög sjálfur en litlu einu komiö á framfæri
vegna þess hve vandvirkur og kröfuharður hann er við sjálfan sig. Jakob
kvæntist Unni Tryggvadóttur Kristinssonar, er getið var hér að ofan og eru
börn þeirra hjóna þrjú: Nanna Kristín tónlistarkennari, Soffía Guðrún leik-
kona og Tryggvi Kristinn fulltrúi hjá Námsgagnastofnun.
Gestur Hjörleifsson hefur látið af störfum organista við Dalvíkurkirkju eftir
að hafa gegnt því í tæp sextíu ár. Samstarfsmenn hans við kirkjuna kvöddu
hann á hvítasunnudag 1987 með ávörpum og gjöfum. Gestur er brautryðj-
andi í tónlistarlífi á Dalvík. Hann annaðist undirleik við þöglu myndirnarog
tónlistarflutning i söngleikjum, var stjórnandi Karlakórs Dalvíkur um langt
skeið. Tónlistarskóli var stofnaður á Dalvík árið 1964 og var hann skólastjóri
til ársins 1978.
Gestur fæddist 21. nóvember 1908, sonur Hjörleifs Jóhannssonar og
Rósu Jóhannsdóttur. Eiginkona hans er Guðrún Kristinsdóttir og börn þeirra:
Kristinn, píanóleikari, Lórelei, húsmóðir, Þóra, læknaritari, Álfhildur, hús-
móðir, Sigurbjörg, bankastarfsmaðurog Kári, píanókennari.
Um nám sitt og aðdragandann að því segir hann: „Séra Stefán Kristinsson
kom heim til mín og talaði við föður minn um að ég færi til Siglufjarðar og lærði
hjá T ryggva Kristinssyni organista þar og tæki svo viö starfinu þegar ég kæmi
heim aftur. Faðir minn var því meðmæltur, en ég bæði hryggur og reiður. Ég
var svo sjö vikur fyrir vestan og lauk náminu með því að spila við messu í
Siglufjarðarkirkju. Það var einskonar próf. Og þar með var hafið organistastarf
mitt í Vallaprestakalli. Nokkru síðar gat ég barið í gegn að fá leyfi, fór til
Reykjavíkur og lærði hjá Páli ísólfssyni í þrjá mánuði, en var þá heimtaöur
heim og þar með lauk mínu námi. Frá því ég var tólf ára var það fiðlan, sem
var mitt hljóðfæri og af því stafaði tregðan að fara til orgelnámsins á Siglufirði.
Dansleikirnir voru svo vel við hæfi drengsins."
ORG ANISTABLAÐIÐ 1 I