SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 24

SunnudagsMogginn - 14.02.2010, Síða 24
24 14. febrúar 2010 brögðum ríkisstjórnarinnar hafa verið fálmkennt þá er ég samt þakklát fyrir að ekki eru aðrir flokkar við stjórnvölinn. Ég tel að ekki sé betri kostur í stöðunni en samvinna þessara tveggja flokka.“ Á sínum tíma var fremur kalt á milli ykkar Steingríms og þið háðuð baráttu um formanns- kjör í Alþýðubandalaginu þar sem þú sigraðir. Þú virðist samt bera ákveðna virðingu fyrir honum. „Já, ég hef alltaf gert það. Sem betur fer getur maður tekist á við fólk en samt borið virðingu fyrir því.“ Hef þroskast í starfi Síðustu tvö árin hefur þú verið í nýju hlutverki sem forstöðumaður á Litla-Hrauni. Áhugi á fangelsismálum hefur fylgt þér frá barnæsku og var eitt af helstu áherslumálum þínum í pólitík- inni. Ertu kannski í draumastarfinu þínu? „Pabbi var yfirfangavörður og um tíma for- stöðumaður á Litla-Hrauni þannig að ég komst ekki hjá því að fylgjast vel með þessum vinnustað. Þegar ég fór inn í pólitíkina fann ég mjög fljótt að fangar eru gleymdur hópur. Það er enginn sem man eftir þeim. Í hugum flestra stjórnmálamanna eru þeir ekki atkvæði sem þarf að leggja mikið á sig fyrir. Mér fannst gott að verða á Alþingi ákveðinn málsvari þessa málaflokks sem svo fáir sinntu og eiga þátt í því að móta stefnu sem breytti fang- elsum frá því að vera geymslustaður í betrunarvist. Siðar varð það eitt af síðustu verkum Björns gripið til duga engan veginn. Ég veit til þess að fólk hefur leitað til bankastofnana og komið þaðan brotið. Ráðstafanir stjórnvalda hafa verið fálm- kenndar, bútur hér og bútur þar, en heild- armyndin í bútasaumsteppi ríkisstjórnarinnar fyr- ir heimilin í landinu er ekki orðin til. Ef ekkert gerist á næstu mánuðum þá munum við horfa upp á mjög stóran hóp fólks missa allt sitt og þar á meðal verður margt ungt fjölskyldufólk, sem eng- an þátt átti í að skapa þær aðstæður sem þjóðin býr núna við. Það nýjasta sem við heyrum er að bank- arnir fá að ákveða að menn, sem áttu stóran þátt í því að koma okkur þangað sem við erum, fái fyr- irtæki sín aftur í hendur. Þeir sem komu landinu í kaldakol eiga sem sagt að stjórna nýrri uppbygg- ingu. Er það trúverðugt? Ég hitti ekki nokkurn mann sem skilur þessa ráðstöfun. Sjálf skil ég ekki eftir allt sem á undan er gengið hvernig nokkur ráðamaður getur komið fram og sagt: Já, ég er jafn svekktur og aðrir að heyra þetta í fréttum.“ Það er eins og ríkisstjórninni finnist að hún geti ekkert gert í þessu sambandi. Ég veit starfs míns vegna að menn sem hafa hugsanlega framið auðgunarbrot upp á einhverjar milljónir ganga ekki lausir meðan mál þeirra eru rannsökuð heldur eru þeir settir í einangrun til að þeir geti ekki á nokkurn hátt skaðað rannsókn- arhagsmuni. En þeir sem bera ábyrgð á því að milljarðar hafa horfið ganga lausir á meðan rann- sókn stendur yfir, sjálfsagt vegna þess að ekki er talið að þeir muni skaða rannsóknarhagsmuni. Ég skil þetta ekki. Er kannski eitthvað til í því sem segir í textanum, að ef þú stelir nógu miklu þá sleppir þú, annars farir þú á Litla-Hraun?“ Heldurðu að þessi ríkisstjórn lifi? „Ríkisstjórnin varð til upp úr búsáhaldabyltingu og henni ber skylda til að klára kjörtímabilið og standa með því fólki sem háði búsáhaldabylt- inguna. Jóhanna og Steingrímur eru þannig gerð að þau gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Al- veg óháð því hvort fólk er sammála Steingrími eða ekki þá hljóta allir að virða hvað hann stendur fast á sínu og hversu þrautseigur hann er. Hins vegar verður ríkisstjórnin að skipta um vinnubrögð og áherslur og kannski er það mögulegt þegar Ice- save-málið er afgreitt. Mér finnst einkennilegt hvernig Icesave-málið, sem er bara lítill hluti af skuldastöðu þjóðarinnar, hefur yfirtekið sam- félagsumræðuna meðan öðrum vandamálum er nánast sópað undir mottu í umræðunni. Þótt ég sé ekki sátt og mér finnist margt í vinnu- É g hef ekki saknað stjórnmálanna í eina mínútu og get ekki hugsað mér að snúa þangað aftur,“ segir Margrét. „Ég hætti í stjórnmálum vegna þess að mér var hætt að líða vel í vinnunni og ég gaf mig ekki lengur alla í hana. Sá sem er ekki lengur í stjórnmálum af lífi og sál á að hætta og finna sér eitthvað annað að gera. Og það gerði ég.“ Af hverju fór þér að leiðast í stjórnmálunum? „Það er erfitt að svara því. Mér fannst þingið hafa breyst mjög mikið og áherslurnar ekki vera nægilega markvissar. Gjáin á milli Alþingis og framkvæmdavaldsins hafði breikkað mjög frá því ég kom fyrst inn á þing. Alþingi var orðið fullmikið kjaftaþing, það var að sumu leyti búið að missa tökin. Eftir einkavæðinguna, þegar bankarnir voru nánast gefnir, þá voru þeir sem ráku fyrirtækin alltaf skrefi á undan löggjafanum og fram- kvæmdavaldinu, sem voru í því hlutverki að elta skottið á þeim hvað varðar setningu laga og reglna. Þetta var afleit þróun.“ Almenningur hefur litla trú á stjórnmálamönn- um. Finnst þér það skrýtið? „Nei, mér finnst það ekki einkennilegt. Stjórn- málamenn hafa boðið upp á það. Í búsáhaldabylt- ingunni bað fólk svo um nýtt Ísland en fékk ekki. Það fékk ekkert nýtt með nýju stjórnmálaafli, Borgarahreyfingunni, þar sem hver höndin hefur verið upp á móti annarri. Það hefur komið mér á óvart hversu lítið vinnubrögðin á þinginu hafa breyst og gargið og heitingar stjórnmálamanna hafa síður en svo orðið til að auka vegsemd og virðingu þingsins á þessum erfiðu tímum þegar þjóðin krefst samstöðu. Þetta á ekki síst við um þá flokka sem áður störfuðu saman í stjórn, gáfu bankana og mótuðu handónýtt regluverk sem á stóran þátt í hruninu. Það varð gífurleg endurnýj- un í þingliðinu eftir síðustu kosningar, en það unga fólk sem komst þá inn á þing hefur ekki sýnt þau nýju vinnubrögð sem krafist var að tekin yrðu upp á Alþingi.“ Fálmkenndar ráðstafanir Gerir ríkisstjórnin nóg fyrir fólkið í landinu? „Nei. Ég er með stóran hóp fólks í vinnu og þetta er ekki hálaunafólk. Þar er ungt fólk sem hefur stofnað heimili á síðustu tíu árum, er með lítil börn og hefur ekki fjárfest um of. Í dag er þetta fólk í skelfilegri stöðu vegna þess að það á erfitt með að standa skil á skuldbindingum sínum þrátt fyrir góðan vilja, og þær ráðstafanir sem stjórnvöld hafa Viðtal Kolbrún Berþórsdóttir kolbrun@mbl.is Gefandi tímar á Litla- Hrauni Í tvö ár hefur Margrét Frímannsdóttir gegnt embætti for- stöðumanns fangelsisins á Litla-Hrauni, en áður en hún tók við því starfi hafði hún unnið ráðgjafastörf við fang- elsið. Margrét lét af þingmennsku árið 2006 og saknar ekki stjórnmálanna. Hún segir ráðstafanir stjórnvalda eftir bankahrunið hafa verið fálmkenndar. ’ Ég veit starfs míns vegna að menn sem hafa hugsanlega framið auðgunarbrot upp á einhverjar milljónir ganga ekki lausir meðan mál þeirra eru rannsökuð held- ur eru settir í einangrun til að þeir geti ekki á nokkurn hátt skaðað rannsóknarhagsmuni. En þeir sem bera ábyrgð á því að milljarðar hafa horfið ganga lausir á meðan rannsókn stendur yfir, sjálfsagt vegna þess að ekki er talið að þeir muni skaða rannsóknarhags- muni. Ég skil þetta ekki. Er kannski eitthvað til í því sem segir í textanum, að ef þú stelir nógu miklu þá sleppir þú, annars farir þú á Litla-Hraun? Margrét Frímannsdóttir forstöðukona á Litla-Hrauni. Mér finnst það stórsigur þegar einstaklingur fer út frá okkur tilbúinn til að takast á við samfélagið með öðrum hætti en hann gerði áður.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.