Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 6

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 6
kvikmyndir Hæð: 193 sentimetrar. Besta hlutverk: Oskar Schindler í Schindler‘s List. Skrýtin staðreynd: Hefur leikið fjölmargar persónur sem voru til í alvörunni, svo sem Rob Roy, Oskar Schindler, Michael Collins og Alfred Kinsey. Eitruð tilvitnun: „Það er athygl- isvert að eftir því sem maður nær meiri árangri, þeim mun fleiri vilja gefa þér fría hluti.“ 1952Fæddur 7. júní íbænum Ballymena á Norður-Írlandi. 1971Hefur nám í eðlis-og tölvunarfræði í háskóla í Belfast, höfuðborg Norður-Írlands, en hættir og fer að starfa fyrir Guinnes- bjórframleiðandann. 1978Þreytir frumraunsína í kvikmynd- um þegar hann leikur Jesú Krist í trúarmyndinni Pilgrim‘s Process. 1987Flytur tilHollywood, með það fyrir augum að meika það. Á þessum tíma hafði hann búið í London í nokkur ár og leikið aukahlutverk í nokkrum kvikmyndum, meðal annars í The Mission (1986) með Robert DeNiro og Jeremy Irons. 1990Kemur sér á kortiðfyrir alvöru þegar hann leikur aðalhlutverkið í ofurhetjumyndinni Darkman eftir Sam Raimi. 1994 Hlýtur sína fyrstu og einu Óskarstil- nefningu fyrir hlutverk sitt sem Oskar Schindler í kvikmyndinni Schindler‘s List, sem kom út árið á undan. Tapar fyrir Tom Hanks úr Philadelphia. 1994Kvænist leikkon-unni Natöshu Richardson og eignast með henni tvo syni, Michael (1995) og Daniel (1996). 1999Leikur Jedi-ridd-arann Qui-Gon Jinn í Star Wars Episode I: The Phantom Menace. 2009 Natasha, eiginkona hans, deyr af völdum alvarlegra höfuðáverka sem hún hlaut í skíðaslysi í Kanada. Liam Neeson FERILLINN 6 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Frumsýningar helgarinnar Clash of the Titans Leikstjóri: Louis Leterrier. Aðalhlutverk: Sam Worthington, Liam Neeson, Ralph Fiennes, Danny Huston, Gemma Arterton, Mads Mikkelsen, Alexa Davalos og Pete Postlethwaite. Lengd: 100 mínútur. Dómar: IMDB: / Metacritic: / Rotten Tomatoes: Aldurstakmark: 14 ára. Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Keflavík, Selfossi og Akureyri. Perseus (Worthington) býður sig fram til að leiða hóp stríðsmanna niður í helvíti Hadesar (Fiennes), eftir að Hades hefur myrt fjölskyldu hans. Perseus og menn hans þurfa að sigra Hades áður en hann hrifsar völdin af Seifi (Neeson) og skapar helvíti á jörðu. Perseus þarf að glíma við eigin örlög og sætta sig við að hann er guð, til þess að geta sigrað ýmsa djöfla og skrímsli Date Night Leikstjóri: Shawn Levy. Aðalhlutverk: Steve Carell, Tina Fey, Mark Wahlberg, Ray Liotta, James Franco, Leighton Meester, Mark Ruffalo og Mila Kunis. Lengd: 88 mínútur. Dómar: Engir dómar komnir. Aldurstakmark: 10 ára. Kvikmyndahús: Smárabíó, Laug- arásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri. Lífið er frekar hversdagslegt og sam- bandið einhæft hjá hjónaleysunum Phil (Carell) og Claire (Fey) svo þau ákveða að gera sér dagamun og fara út að borða á fínan veitingastað. Vegna misskilnings lenda þau í hlutverki glæpahjóna á flótta í bullandi vandræðum. MARK WAHLBERG BORGAR STEVE CARELL OG TINU FEY FYRIR AÐ FINNA BOLINN SINN ENDURGERÐ FRÁ 1981 Clash of the Titans er endurgerð samnefndrar kvikmyndar frá árinu 1981. Þar fór stórleikarinn Laurence Olivier með hlutverk Seifs og Bond-skvísan Ursula Andress með hlutverk Afródítu. Með hlutverk Perseusar fór Harry Hamlin, sem hefur lítið markvert gert síðan. Gamla myndin kostaði litlar 16 millj- ónir Bandaríkjadollara í framleiðslu, en kostnaðurinn við nýju myndina nemur 125 milljónum dollara. VILTU VINNA MIÐA? Monitor ætlar að gefa nokkrum heppnum lesendum tvo miða á Date Night. Það eina sem þú þarft að gera er að fara inn á Facebook-síðu Monitor og skrifa athugasemd á kvikmyndaþráð vikunnar. Þú finnur okkur með því að slá inn „Tímaritið Monitor“ í leitarstrenginn. Dregið verður á mánudag úr þeim nöfnum sem skrifuð eru á þráðinn. PERSEUS ER NÁUNGI SEM FÓLK ÆTTI AÐ FORÐAST AÐ REITA TIL REIÐI TINA FEY, STEVE CARELL, COMMON OG LEIGHTON MEESTER Á FRUMSÝNINGU DATE NIGHT Í NEW YORK Í VIKUNNI

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.