Ísfirðingur - 26.01.1980, Qupperneq 2
ÍSFIRÐINGUR
2
TmSÓKNAVMANNA Í MSTFJARÐAK/ðRMMI
Utgefandi:
Kjördœmissamb: Framsóknarmanna í Vestfjarðakjördœmi.
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson og-Jón Á. Jóhannsson, áb.
Afgreiðslumaður:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 3332.
Þora verður að
segja sannleikann
Þegar Alþýöuflokkurinn sleit stjórnarsamstarfi í
haust og kraföist skammdegiskosninga meö full-
tingi Sjálfstæöisflokksins óttuöust hinir greindari
menn aö þaö myndi leiða til nokkurra mánaöa
stjórnleysis. Sú er og raunin á orðin.
Hér skal ekki rætt um vonbrigði þau, sem þessir
stjórnmálaflokkar kunna aö hafa oröiö aö þola
síöan í haust. Þau skipta ekki miklu máli. Hitt kann
aö veröa þjóöinni dýrt ef stjórnleysi og stjórnar-
kreppa veröa langvinn úr þessu.
Eins og nú standa sakir virðist þröskuldurinn
fyrir vinstri stjórn einkum hafa veriö sá, aö Alþýðu-
bandalagiö vill treysta á skjótari framför og endur-
bætur í framleiðslumálum en öörum þykir raun-
hæft. Þaö er enginn ágreiningur um aö viö þurfum
aö taka okkur fram og getum tekiö okkur fram.
Allir vilja stefna aö því. Ágreiningurinn er um hitt
hve miklum hagnaði treysta megi aö slíkar endur-
bætur skili í næstu framtíð.
Þaö myndi aö sjálfsögöu koma sér illa ef
eftirtekjan yröi minni en reiknað yröi meö og treyst
væri á. Þaö þýöir auövitaö halla á búskapnum. Og
öllum kemur saman um aö frá hallabúskap eigi og
veröi aö hverfa.
Hinu væri gott aö taka ef útkoman yröi eitthvaö
jákvæöari en gert heföi verið ráð fyrir. Þaö myndi
ekki valda neinum vandræðum eöa mæöu.
Þaö viröist vera fullt samkomulag um þaö aö vió
höfum lifað um efni fram viö þá búskaparhætti
sem við höfum haft. Svarið sem viö öll kjósum er
betri búskapur. Þaö nær jafnt yfir meiri framleiöni
og réttlátari skiptagjörð. En skyldi nú veröa ein-
hver dráttur á aö veruleg breyting næðist eftir
þeim leiðum, er óhjákvæmilegt að leggja harðara
aö sér ef jafnvægi á aö nást. Og vissulega er
engin trygging fyrir betri búskaparháttum og þjóö-
arhag nema þaö sé gert. Þetta veröa stjórnmála-
menn aö sjá og hafa kjark og manndóm til aö
viðurkenna. Hér er svo mikið í húfi aö menn veröa
aö þora aö taka þá áhættu aö segja sannleikann.
Samdráttur er hættulegur því aö hann kallar
á atvinnuleysi og kreppu. Þar meö er ekki sagt að
hvergi geti orðið sú þensla aö heilbrigt og eðlilegt
sé aö minnka hana. Verið getur nauösyn á sam-
drætti aö vissu marki hér og þar. En doöi efna-
hagslífs í heild veröur ekki læknaður meö sam-
drætti. Þaö munu allir viöurkenna í Ijósi fenginnar
reynslu frá krepputímum.
Sem betur fer höfum viö íslendingar nú mögu-
leika á margskonar sparnaði, án þess aö nærri
nokkrum sé gengiö. Aö vísu má vera aö einstakir
hópar hafi byggt afkomu sína og atvinnu á lífs-
venjum sem mættu dragast eitthvaö saman, svo
sem sólarlandaferðir. En þá er á hitt að líta aö
hópar útlendinga hafa verið og eru hér í atvinnu
viö undirstöðu efnahagsins, fiskvinnsluna.
í ööru lagi leyfum viö okkur nú í stórum stíl
óþarfa innflutning og skal hér aðeins nefna
danskt kaffibrauð, eldhússkápa og margskonar
húsbúnaö. Slík kaup eru raunar fjörráö viö ís-
lenskan iönaö og vandséö hvernig þjóö heldur lífi
sínu sem þjóö meö þvílíku háttalagi.
Þaö er stundum talað um aö styöja hverjir
annar. Þá muni vel fara. Hvaö munu íslenskir
smiöir og bakarar segja um slíkan stuöning venju-
legra neytenda?
Minningarorð
Þórður Jóhannsson
úrsmíðameistari
Þórður Jóhannsson, úr-
smíðameistari Hafnarstræti
4, ísafirði, andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði
13. desember s.l. Hann var
fæddur að Eiðhúsum í
Miklaholtshreppi 16. desem-
ber 1888 og vantaði því að-
eins 3 daga til að ná 91 árs
aldri þegar hann lést.
Foreldrar Þórðar voru
hjónin Jóhann Erlendsson,
bóndi og skósmiður, og kona
hans Anna Sigurðardóttir,
en þau eignuðust 8 börn.
Það var á árinu 1904 sem
Þórður flutti til fsafjarðar og
hóf þar nám i úrsmíði hjá
Skúla Eiríkssyni, úrsmíða-
meistara. Námi í iðn sinni
lauk Þórður á árinu 1907.
Sama ár tók hann við rekstri
úrsmíðaverkstæðis Skúla Eir-
íkssonar, en Skúli andaðist á
því ári. Verkstæðið rak Þórð-
ur síðan, ásamt syni Skúla,
til ársins 1923. Það ár stofn-
aði Þórður eigin úrsmíða-
vinnustofu og verslun með
úr, skartgripi o.fl., sem hann
alla tíð síðan rak hér í bæn-
um af fyrirhyggju og mynd-
arskap. Alla sína löngu
starfsævi vann Þórður að iðn
sinni af mikilli kostgæfni,
vandvirkni og samviskusemi.
Hann naut því trausts hinna
mörgu viðskiptavina hér í
bænum og nágrenni og víðar
um Vestfirði. Hann mun
hafa verið elsti starfandi úr-
smiður hérlendis. Á níræðis
afmæli sínu var Þórður kjör-
inn heiðursféiagi í Úrsmíða-
félagi íslands.
Sérstaklega fagra rithönd
hafði Þórður og hann fékkst
lengi við leturgröft og
skrautritun. Þótti handbragð
hans allt til fyrirmyndar.
Laust fyrir 1930 flutti
Þórður og fjölskylda hans í
ÞórðurJóhannsson
nýtt og rúmgott húsnæði
sem hann lét byggja, Hafn-
arstræti 4. Þar áttu þau
hjónin heima síðan í vistlegri
og rúmgóðri íbúð á efri hæð,
en á neðstu hæðinni fékk
Þórður aukið húsrými fyrir
verkstæði sitt og verslun.
Hefur það að sjálfsögðu ver-
ið mikið átak á árunum fyrir
1930 að byggja svo myndar-
lega byggingu.
Áratugum saman tók
Þórður þátt í félags- og
menningarmálum hér í bæn-
um. Skal þá fyrst nefna að
hann og kona hans voru ára-
tugum saman mjög virkir
þátttakendur í starfsemi
Góðtemplarareglunnar og
gengdu þar margvíslegum
trúnaðarstörfum. Á 85 ára
afmæli sínu var Þórður kjör-
inn heiðursfélagi Góðtempl-
arareglunnar. Lengi var
hann söngfélagi í karlakór-
um hér í bænum og einnig
með kirkjukórnum. Á þess-
um árum vann hann einnig
mikið að leiklistarmálum í
bænum.
Þórður var einn af stofn-
endum Oddfellowstúkunnar
á ísafirði. Var honum mjög
annt um starfsemi stúkunn-
ar, sótti fund-i reglulega með-
an heilsan leyfði, og gegndi
mikilsverðum trúnaðarstörf-
um fyrir stúku sína. Hann
var kjörinn heiðursfélagi
Oddfellowstúkunnar á 90
ára afmæli sínu.
Eftirlifandi eiginkona
Þórðar er Kristín Magnús-
dóttir, Ólafssonar fyrrver-
andi prentsmiðjustjóra á.fsa-
firði og konu hans Helgu
Tómasdóttur. Þórður og
Kristín voru gefin saman í
ágúst 1923 og höfðu því lifað
saman í farsælu hjónabandi í
56 ár. Þau eignuðust 6
mannvænleg börn. Þau eru:
Högni, bankaútibússtjóri,
kvæntur Kristrúnu Guð-
mundsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra. Hjördís, íþróttakenn-
ari, gift Árna Guðmunds-
syni skólastjóra á Laugar-
vatni. Anna, hárgreiðslu-
kona, gift Bjarna Bacmann
kennara í Borgarnesi. Helga,
póstfulltrúi í Reykjavík.
Ólafur, tollþjónn á ísafirði,
en nú nýlega fluttur til
Reykjavíkur, kvæntur Ragn-
hildi Guðmundsdóttur, tal-
símakonu. Magnús, úr-
smíðameistari á ísafirði.
Þórður Jóhannsson var
maður viðfelldinn og við-
ræðugóður og á allan hátt
reglusamur svo að af bar.
Honum var annt um hag og
velgengni bæjarfélags síns.
Slíkum mönnum er gott að
hafa kynnst og starfað með.
Jarðarför Þórðar var gerð
frá ísafjarðarkirkju að við-
stöddu fjölmenni.
Ég og kona mín vottum
Kristínu og börnum þeirra
hjónanna, sem og öðrum
skyldmennum, einlæga
samúð.
Jón Á. Jóhannsson
Selstaða
Alkunnugt er þetta orð, en
það var m.a. notað um þá
kaupmenn, sem áttu verslan-
ir hér á landi og höfðu þær
aðeins opnar smátíma á
sumrum, en fóru til útlanda
og lokuðu yfir veturinn,
harðasta tíma ársins. Því
miður virðist það vera að
færast í vöxt nú, að stjórn-
endur fyrirtækja og ríkis-
stofnana sitji í Reykjavík, en
hafi umboðsmenn til að
sinna störfum sínum úti á
landi, eða með öðrum orðum
hafi í seli.
Fasteignamat ríkisins er
ein af þeim stofnunum sem
situr alfarið í Reykjavík, en
umboðsmaður þess fyrir
Vestfirði og Vesturland situr
í Borgarnesi. Fyrir okkur
Vestfirðinga gæti hann eins
setið á Norðurpólnum.
Hann mun hafa komið hing-
að í sumar. Ekki hafði hann
samband við bæjaryfirvöld,
eða óskaði eftir fundi með
þeim.
Árangurinn er sá, að sök-
um vanrækslu undanfarinna
ára í mati fasteigna hér er
ákveðið að hækka mat fast-
eigna fyrir 1976 um 35% og
síðan bæta við landsmeðal-
tali, sem mun vera 50%, ofan
á þetta, og útkoman varð hér
á ísafirði hækkun um
102,5%. Þetta köllum við að
slumpa á hlutina, og hefur
það aldrei þótt til fyrir-
myndar. En hvað leyfist ekki
stofnunum sem eru ríki í
ríkinu, þeim er allt máttugt,
og þurfa ekki að svara til um
hlutina.
Hin gífurlega hækkun
fasteignamats er olía á verð-
bólgu, það veldur fyrirtækj-
um miklum erfiðleikum í
rekstri. Þau eru meðal margs
annars bundin samningum
við launafélög um ákveðna
hollustuhætti á vinnustöðum
og verða því að hafa rúmt
fjármagn til endurbóta. Þá
fer þetta að vera hegning á
ungt fólk fyrir að reyna að
eignast íbúð yfir sig og sína,
því fasteignaskattar eru
reiknaðir prósentvís af fast-
eignamatinu. Sérstaklega er
þetta tilfinnanlegt fyrir aldr-
að fólk, sem hefur ráðist í að
kaupa sér íbúð, en hafa ekki
tekið þessa hluti inn í dæm-
ið.
Guðm. Sveinsson
Auglýsingasími
blaösins er: 3104
Margur kastar nú kalsyröum aö stjórnmála-
mönnum og kennir þeim um stjórnleysi í landinu.
Því veröur ekki svaraö hér aö þessu sinni en
aðeins bent á þaö, aö þjóö sem býr viö mikið
frjálsræöi getur fariö svo meö þaö, aö landinu
veröi ekki stjórnaö.
H. Kr.