SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 34
34 28. nóvember 2010 Þ etta er í rauninni órökrétt framhald af síðustu plötunni minni, Fnyk, sem kom út árið 2007,“ segir Sam- úel J. Samúelsson sem gaf í sumar út plötuna Helvítis fokking fönk. Allt efni plötunnar er frum- samið og skrifað út fyrir 18 manna big band. „Ég var í Brasilíu í byrjun árs, vann í músíkinni þar og kláraði að semja þegar ég kom heim. Við tókum plötuna svo upp hér heima í apríl,“ segir Sammi Jagúar í samtali við Morgunblaðið, en Samúel er gjarnan kenndur við þá hljómsveit sína. Músíkin var tekin upp með gamla laginu; allir 18 mættu í hljóðverið í einu, talið var í og spilað. „Við ákváðum að taka þetta upp live eins og gert var í gamla daga, sem er eiginlega eina vitið með svona músík. Það er svo margt sem ekki næst með þegar lag er tekið upp í bútum. Framvindan í lögunum verður eðlilegri svona.“ Nafn plötunnar er út- úrsnúningur á frægu skilti sem notað var í búsáhaldabylting- unni á Austurvelli; Helvítis fokking fokk. „Það má segja að platan sé mitt framlag vegna ástandsins. Ég var á Austurvelli í janúar 2009 og mótmælin hreyfðu dálítið við mér. Tónlistin er nett inn- blásin af mótmælunum, að- gerðarleysi stjórnvalda og því siðferðishruni sem hér varð. Eitt lag er sérstaklega undir áhrifum frá mótmælunum.“ Nöfn laganna eru ákveðnar skírskotanir; Chicken Street er ádeila á hernaðarbrölt Íslend- inga í Afganistan, segir Sammi, International Monet- ary Fuck er tilvísun í Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn „og svo end- ar platan með smá sálmastemningu; það er óður til landsins með skírskotun í fræga ræðu forsætisráðherra. Enda heitir lagið Guð blessi Ís- land“. Sammi og félagar hans halda tónleika næsta miðvikudag í Nema Forum – Slippsalnum við Mýrargötu. „Platan kom út 17. júní og þá héldum við tónleika á Nasa. Mér fannst tilvalið að endurtaka leikinn 1. desember, á fullveldisdaginn. Það má segja að það verði ein- hvers konar fullveldisfönk.“ skapti@mbl.is Hljómlist Mótmælin hreyfðu dálítið við Samúel J. Samúelssyni. „Mitt framlag vegna ástandsins“ Sóley Stefánsdóttir, hljóm- borðsleikari Seabear, gaf út sólóplötuna Theater Isl- and í ár undir merkjum berl- ínsku útgáfunnar Morr Mu- sic. Skemmst er frá því að segja að hér er á ferð ein af athyglisverðari plötum árs- ins en um hana sagði rýnir Morgublaðsins: „Þetta er ein af þeim plötum (og þær eru ekki margar) sem grípa mann með fyrsta tóni og draga mann inn í óræðan heim drauma og dásemda.“ Spurt er: Hvar er Theater Island? „Theater Island er sirkuseyja á stærð við þrjá sirk- usa. Lífið á eyjunni er skrýtið. Margir myndu halda að stríð og martraðir einkenndu eyjuna en svo er ekki. Til að komast til Theater Island þarf að sigla og sigla og sigla. Takmark allra sem koma til Theater Island er að komast að hinum enda eyjunnar til að fylgjast með ungri stúlku fórnað af mörgum öðrum stúlkum. Þær syngja hátt og söngurinn ómar um heim allan. Theater Island er dimm eyja að utanverðu, en ef vel er að gáð og hlustað er skemmtilega húmorísk birta yfir eyjunni.“ Sóley Stefánsdóttir Sirkus á Leikhúseyju Friðrik Dór er rísandi stjarna á íslenskum popp- himni en plata hans, Allt sem þú átt, hefur vakið verðskuldaða athygli. Spurt er: Þú hefur notið mikilla vinsælda í ár. Verður þú Ingó Veðurguð næsta árs? „Já það er rétt að árið 2010 hefur verið gott ár fyr- ir mig persónulega. Þetta hefur verið fljúgandi start á mínum ferli og vonandi verður framhaldið jafn gott. Hvort ég nái sömu vin- sældum og Ingó Veðurguð á næsta ári get ég ekki sagt með vissu, en það er allavega verðugt markmið. Það er fullt af góðu efni á leiðinni frá mér út á öldur ljósvak- ans. Kannski fer aðeins eldra fólk að kveikja á minni tónlist á nýju ári og minn markhópur að stækka. Það voru einmitt tvær hressar mæðgur fremst við sviðið á útgáfutónleikunum mínum, alveg trylltar og það er von- andi þróunin, að krakkarnir fari að kynna foreldra sína fyrir minni tónlist. Ég verð aldrei eins og Ingó, þó það væri ekki leiðum að líkjast. Vonandi verður næsta ár bara nógu gott til að ég komist til Bahama um jólin.“ Friðrik Dór Fljúgandi start á mínum ferli Ljótu hálfvitarnir Ljótu hálfvitarnir Græni diskur Ljótu hálfvitanna mun ekki valda aðdáendum sveitarinnar vonbrigðum, þeir halda sig við það sem þeir gera best, að gera skemmtilega tónlist með gamansömum textum sem ætti að lífga aðeins upp á sálartetrið í sumar. Ingveldur Geirsdóttir Geisladiskur Loji Skyndiskyssur Það sem gerir þessa plötu frábrugðna því sem gengur og gerist í tónlistarheiminum er að á þessari eru lögin sem maður fær næstum aldrei að heyra. Þetta eru æfingar, hugmyndir eða lagbútar sem eiga það þá til að enda sem fullunnin lög á stærri plötum. Sem er ekki endilega slæmt. Það er bara gaman að heyra lögin í vinnslu en ekki eingöngu dauðhreinsuðu lokaútgáfuna. Því ber að hrósa aðstandendum plötunnar fyrir að leyfa okkur að heyra tónlist sem alltof sjaldan er gefin út. Matthías Árni Ingimarsson Stafrænn Hákon Sanitas Platan er í raun hálfgert púsluspil, áhrif virðast koma úr öllum áttum og oft eru útsetningar hráar en þó fágaðar í senn, t.d. í laginu „Bright“ þar sem glamrað er á píanó og banjó afar notalega og síðan bætist hvert hljóðfærið við; selló, trommur, bassi og hristur og úr verður langt og dáleiðandi stef... Helgi Snær Sigurðsson Biggibix Set Me On Fire Biggibix gerir hlustendavæna tónlist, stundum svolítið klisjukennda en klisjur eru klisjur, því þær virka. Aðeins finnst mér diskurinn þynnast út þegar sígur á seinni hlutann, þar eru rólegri og minna grípandi lagasmíðar. Lag númer sjö, „Run Away“, er, þegar þessi dómur er skrifaður, uppáhaldslagið mitt á plötunni. Mér finnst Biggibix flottur og mér finnst gaman að fá góða íslenska popp-rokkplötu í ölduflóð oft á tíðummikillar og góðrar jaðartónlistarútgáfu hérlendis. Ingveldur Geirsdóttir Berndsen Lover In The Dark Berndsen flytur létt rafpopp, nánast öll lögin í anda níunda áratugarins og augljós stæling á þeim, t.d. „Radio Frequencies“. Gallinn við diskinn er að Berndsen helgar sig aðeins of mikið 80’s- stílnum og því verður diskurinn einsleitur og lítið spennandi þegar á líður. Ég væri til í að finna aðeins áþreifanlegri kraft á næstu plötu hans. Lover In The Dark er samt alveg partídiskur, skemmtilega léttur og leikandi og ætti að komast í mikið uppáhald hjá þeim sem eru heitir aðdáendur tónlistar frá 80’s- tímanum. Ingveldur Geirsdóttir Jónsi Go Lögin fara um víðan völl; popp, rokk, raftónlist, hér er öllu hrært saman á dásamlegan máta og er greinilegt að mikið var lagt í lagasmíðarnar og samsetningu þeirra...Á plötunni má finna yndislega blöndu af taktföstum stuðlögum í bland við lágstemmd og rólegri lög, blanda sem virkar einstaklega vel. En það er þó rödd Jónsa sem er í fararbroddi. Á köflumæðir hún fram eins og á í vorleysingum, teygir sig í hæstu hæðir. Matthías Árni Ingimarsson Hafliði Hallgrímsson Örsögur Vissulega er margt í leikgerð verksins sem ekki skilar sér á geisladiskinum ... Callow segir sögurnar samt svo vel, og tónlistin er svo tjáningarrík að það liggur við að maður þurfi ekki að sjá neitt. Sögurnar eru líka heill heimur út af fyrir sig, og með smá ímyndunarafli er hægt að upplifa alla leikgerðina í huganum. Óhætt að mæla með þessum geisladiski. Jónas Sen Valgeir Sigurðsson Draumalandið Platan stendur vissulega vel sem ein tónsmíð en samt sem áður geymir hún kvikmyndatónlist sem sniðin er að ákveðnu verki. Þetta er mikið verk og hádramatískt, jafnvel of dramatískt á köflum og fyrir vikið dálítið þreytandi að hlusta á til lengdar. Valgeir Sigurðsson og félagar hafa engu að síður látið frá sér merkilega plötu og kvikmyndin væri langt því frá eins áhrifarík og hún er, ef tónlistarinnar nyti ekki við. Helgi Snær Sigurðsson Seabear We Built A Fire Heildarsvipurinn er góður og bandið samkvæmt sjálfu sér plötuna í gegn þótt lögin hafi hvert sinn svip, í einu er það píanó, flauta og strengir, kántrí í því næsta og rafmagnsgítar í því þriðja, það er klassík, ambient, indie, kántrí og fleira. Sindri söngvari með seiðandi röddina setur sitt einkenni á lögin, gefur Seabear-tóninn og túlkar lögin af einstakri natni. Það er enginn öskrandi hamagangur í Seabear en engin deyfð heldur, það er fallegt fjör þarna og því er þessi plata góð fyrir sálina, góð fyrir lífið. Ingveldur Geirsdóttir Ámóti sól 8 Platan 8 er sjöunda hljóðversplata sveitarinnar (2006 kom út safnplata) og hún gæti mögulega verið besta plata sveitarinnar til þessa. Af henni stafar afslappað öryggi þeirra sem þurfa ekki að sanna sig fyrir neinum lengur ... Hér er á ferðinni eðalpopp, alíslenskt, og mikið var að sveitin gaf út plötu með frumsömdu efni. Það er vonandi að fríið sem sveitin tók sér um áramótin verði ekki of langt. Arnar Eggert Thoroddsen Sóley Theater Island Ég bjóst ekki við neinu þegar ég setti þessa plötu á og undrun mín var því að sama skapi mikil. Ein af bestu plötum ársins, án efa. Arnar Eggert Thoroddsen amiina Puzzle Puzzle er frábærlega vel unnin plata, á henni er ekki að finna hnökra þó að ég hefði viljað að hún væri ekki alveg svona brothætt, lögin eru lagskipt, byggjast upp eins og turnar sem gætu fokið í næsta roki. Biðukolla yrði kannski réttari samlíking. Puzzle er hlýleg og heillandi plata þó að ég hefði viljað sjá amiinu stíga alveg upp úr spiladósinni. Ingveldur Geirsdóttir Hjálmar Keflavík Kingston Eins og með aðrar plötur Hjálma er þessi þétt og vel unnin, ekki hnökra að finna hvort sem er í hljómi eða útliti. Hún er fjölbreytt enda samansafn laga en nýju lögin smellpassa þarna með þeim eldri, „Gakktu alla leið“ er mjög góð nýsmíði. Mikið er ég afskaplega fegin að þeir fundu þörf hjá sér til að safna þessum lögum saman því Keflavík Kingston er hinn eigulegasti gripur, hvert einasta lag áheyrilegt, það þarf ekkert að hafa fyrir því að skipta um lag, bara að njóta frá upphafi til enda. Ingveldur Geirsdóttir Lifun Fögur fyrirheit Um leið og fyrsta lagið hljómar er ég komin til Keflavíkur í huganum. Árið er í kringum 1970 og það liggur rafmagnað sakleysi í loftinu ... Þessi plata er ekkert nema íslensk og ástin er rauði þráðurinn í textunum þótt hún komi þar frammeð ólíku móti. María Ólafsdóttir Rúnar Þórisson Fall Þetta er „stór“ tónlist, ríkulega útsett en þó það sé mikið undir kæfir hún hlustandann aldrei ... Heilsteypt er verkið mjög og erfitt að pikka eitthvað sérstaklega út. Í sérstöku uppáhaldi er þó titillagið; dramatískt og reisulegt og upphafslagið „Time“ slær líka tóninn vel: mikilúðlegt með þungri, dramatískri undiröldu. Arnar Eggert Thoroddsen Momentum Fixation, at Rest Þetta er frábærlega heppnuð plata hjá þeim, þar sem allt fer hönd í hönd, veri það hljómur, spilamennska, lagasmíðar, söngur eða útsetningar. Umslagið er meira að segja stórglæsilegt. Ef leita á að einhverjum snertiflötum við erlendar sveitir kemur Opeth helst upp í hugann en Momentum-menn vinna þó kirfilega í sínum hljóðheimi, hann er alíslenskur þessi lyklaði og skuggum bundni heimur sem þeir vinna í. Arnar Eggert Thoroddsen Valdimar Undraland Þessi fyrsta plata Valdimars (sem er hljómsveit, ekki maður) er einn af þessum gripum, merkilega fullbúin plata, iðandi af hreinni sköpunargleði. Tónlistin er tilfinningaríkt popprokk með djasskeim og Radiohead-blæbrigðum ... Arnar Eggert Thoroddsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.