Austri - 15.12.1964, Blaðsíða 24

Austri - 15.12.1964, Blaðsíða 24
24 AUSTRI Jólin 1964 Hér eiga sjúkir skjól Framh. af 18. siðu. — Þarf miklar breytingar til að svo megi verða? — Já, talsverðar. — Og í hverju yrðu þær aðal- lega fólgnar ? — Ja, ef við leggjum í að telja þær upp, þá þyrfti að vera hér lyflækningadeild með sérfræðingi á því sviði, síðan þyrfti að full- komna þá handlækningadeild, se.n hér er fyrir, og í þriðja lagi þyrfti að koma hér upp röntgen- deild. Þá þyrftu að koma sérfræð- ingar staðsettir hér, augnlæknir, háls-, nef- og eyrnasérfræðingur og barnalæknir. Ef þessi yrði þróunin áiit ég, að hún færi rétta leið. Hinsvegar vil ég taka það fram, að imiðað við aðstæður, þá er allmikið til hér af tækjum, einkaniega handlækningatækjum. Telur þú mikil brögð að því að sjúklingar leiti suður með sjúkdóma, sem hægt væri að ráða við hér hjá ykkur? Já, það eru áreiðanlega nokkur brögð að því. ■ En hvað álítur þú að gera eigi í framtíðinni ? Mörg 0g dreifð sjúkrahús, eða eitt stórt? ■ Alveg skýlaust að byggja upp á einum stað stórt og full- ko'mið sjúkrahús. Það er alls ekki fyrir hendi sjúklingafjöldi í fjórðungnum nema handa einu sjukrahúsi. Dreifing sjúkrahúsa mundi einungis þynna aðstöðuna og hafa í för með sér verri þjónustu. — I sambandi við Neskaup- stað, sem framtíðarstað í þessum efnum dettur mér í hug sú full- yrðing ýmissa, að til þess sé hann of einangraður. Hvað vilt Þú segja um það? — Eig vil í fyrsta lagi segja það, að Neskaupstaður er nú um það bil helmingi stærri, en næst stærsta kauptún hér eystra. í öðru lagi liggur hann jafn vel við frá sjó og hver hinna fjarðanna. En 1/4 allra sjúklinga, sem hing- að koma á sjúkrahúsið, er fólk, sem kemur beint utan af hafi. í þriðja lagi vil ég segja það, að Norðfjörður er nokkurn veg- inn miðja vega í fjarðalínunni, og hvað vetrarveg snertir, þá er ráðgert að gera í náinni framtíð jarðgöng undir Oddsskarðið, sem mundi stórauka möguleika til vetrarferða á landi. - Þú sagðir áðan, að um 1/4 liluti allra sjúklinga sjúkrahúss- ins kæmi utan af hafi. Er oft um slæm atvik að ræða í þeim til- fellum. — Já, það er oft, oft slysatil- felli, þar sem sjúklingurinn mundi alls ekki þola erfiðan landflutn- ing, þar sem bráð hjálp er það eina, sem bjargað getur. Ég vil undirstrika þá megin- skoðun mína varðandi framtíðar- staðsetningu sjkrahúss á Austur- landi, að það verður að standa við höfn, beinlínis vegna sjúk- linganna, sem af hafi koma, og eins hins, að þó öll fjöll og heið- ar teppist á vetrum, þá er sjór- inn jafnan fær, og við sjó býr meiri hluti Austfirðinga, ekki satt? Og það sem einkanlega mælir með Neskaupstað umfraim aðra staði í þessum efnum er sú upp- bygging sem hér er fyrir. Hér er til staðar allgott sjúkrahús og þar af leiðandi stórum ódýrara að gera það að fullkomnu sjúkra- húsi, en byrja að nýju einhvers staðar annars staðar. Hér þyrfti fyrst og fremst að bæta við smá- álmu. Annars staðar að reisa öll húsakynni frá grunni. Við verðum sem sagt að vera þess minnug, að peningar eru það sem þarf til að gera hlutina að veruleika, og þeir liggja nú alls ekki á lausu. 1 þessu tilfelli er ekki talað um þúsundir, heldur tugmilljónir, það vil ég líka undirstrika. En umfram allt megum við ekki fara að drita sjúkrahúsum út uim hvippinn og hvappinn, sjúkrahúsum, sem ekki yrðu nema nafnið tómt og stæðu auö bæði af læknum og sjúklingum og algjörlega getulaus, en legðu um leið þunga bagga á herðar þeirra aðila, sem að þeim stæðu. Annars vil ég undirstrika það, að hér er ekki, fre;mur en ann- ars staðar hægt að fara að allra vilja. Sjúkrahúsið verður aldrei staðsett alls staðar. Um það er því aðeins að ræða, hvar fram- tíðarsjúkrahús Austurlands verð- ur bezt staðsett með tilliti til allra byggðarlaga fjórðungsins. Bjöllunni er anzað, hvenær sem hringt er — Hér er starfað allan sólar- hringinn ? — Já, hér er vakt bæði nótt og dag. — Og lækna- og hjúkrunar- liðið, hve marga telur það? —- Við erum hér tveir læknar á sjúkrahúsinu, við frú Christine Guttormsson og auk þess hefur héraðslæknirinn starfsaðstöðu hér. Hjúkrunarkonur eru hér 3 og á rannsóknarstofunni starfar ein stúlka. En sjúkrahús þarf meira með. Hér eru gangastúlkur, starfsfólk í eldhúsi, auk fram- kvæimdastjóra og aðstoðarmanns hans, og stúlku á skrifstofu. Alls munu þetta vera 25 manns. Heima er bezt — Og undir þessu þaki er einnig elliheimili? —1 Já, elli- og öryrkjaheimili. Og þar er mjög góður aðbúnaður vil ég segja. Og þá má ekki gleyma því, að hér er líka heilsu- verndarstöð, sem hefur með að gera mœðra- og ungbarnaeftirlit. — Er mikið um það, að konur komi hingað úr öðrum byggðar- lögum til að ala börn? — Já, þó nokkuð mikið, enda er það æskilegt, að konur eigi kost á að ala börn sín á sjúkra- húsum, þar sem meira öryggi er en í heimahúsum. — En síðast en ekki sízt, Sverrir. Heldurðu, að eitthvað sé um að fólk fari suður með það sem vel réðist við hér hjá ykkur? — Já, það er alltaf nokkuð mikið um það. — Auðvitað er bæði okkur og sjúklingum ör- yggi i að vita af fullkomnum sjúkrahúsum syðra. En annars er slíkur flótti sem þú minntist á, óþarfur og getur jafnvel talizt enn verri. Reykja- víkursjúkrahúsin eiga að taka við, þar sem sjúkrahús lands- byggðarinnar skortir á getu, enn sem komið er. Við ættum að mura. hið forna spakmæli heima er bezt, og leggja kapp okkar á það, Austfirðingar, að gera fjórðungssjúkrahús okkar sem bezt úr garði. Hvenær skyldum við geta eMð í Öræfin og notið þar hinnar fjöl- breyttu náttúrufegurðar? Myndin er frá Svínafelli í Öræfum Skyldu þeir vera að ræða um ofaníburð eða aurbleytu Egill vega- verkstjóri og Ragnar á Fossvöllum á myndinni hér fyrir ofan? AUSTRI Ritstjórar og ábyrgðarimenn: Kristján Ingólfsson og Vilhjálmur Hjálmarsson. Fjármál og auglýsingar: Björn Steindórsson, Neskaupstað. NESPRENT

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.