Austri - 25.03.1977, Blaðsíða 1
Munið
áskriftargjaldið
Innheimta
stendur yfir
22. árgangur.
Egilsstöðum, 25. mars 1977.
12. tölublað.
Bændafundur stöðvarfjörður
Stöðvarfirði 20/3 BK/JK BYGGINGAR
Bændafélag Fljótsdalshéraðs hélt
almennan fund síðastliðið mánudag-s-
kvöld og var fundurinn haldinn í
Valaskjálf á Egilsstöðum. Fjöldi
bænda af Héraði og fleiri áhugamenn
um landbúnaðarmál sóttu fundinn.
Framsögumenn voru Gunnar Guð-
bjartsson formaður Stéttarsambands
bænda og Stefán Pálsson frá Stofn-
lánadeild Búnaðarbankans. Ræddu
þeir verðlagsmál og lánamál land-
búnaðarins.
Miklar umræður urðu að framsögu-
erindum loknum og stóð fundurinn
til klukkan fjögur eftir miðnætti.
Á fundinum voru samþykktar eftir-
farandi ályktanir.
Almennur fundur í Bændafélagi
Fljótsdalshéraðs haldinn 21. mars
1977 lýsir megnri óánægju með að
bændur hafa ekki náð þeim tekjum
sem þeim ber lögum samkvæmt. Því
gerir fundurinn eftirfarandi ályktun.
1. Leggja ber niður sexmannanefnd-
arfyrirkomulagið og teknir upp
beinir samningar við ríkisvaldið
um verðlagningu búvöru.
2. Niðurgreiðslur verði færðar af
sölustigi landbúnaðarins yfir á
framleiðslustig, því þar mundu
þær verka best til lækkunar á
söluverði búvöru.
3. Felldur verði niður söluskattur á
kjöti.
Að gefnu tilefni vill Áfengisvarn-
arráð, sem er hlutlaus ríkisstofnun
og ber að afla sem réttastra heimilda
um áfengismál, taka fram eftirfar-
andi:
1) j Síðasta áratug hefur áfengis-
málastefna og viðhorf til áfengis-
mála breyst mjög. Sannað er að eina
leiðin til að draga úr tjóni því sem
áfengisneysla veldur er að minnka
heildarneysluna og það verður ein-
ungis gei't með hömlum og háu verði.
2) Hvergi í heiminum hefur, svo
að vitað sé, tekist að minnka heildar-
neyslu með nýjum áfengistegundum
eða breyttum drykkjuvenjum.
4. Með tilvísun til þeirrar gagnrýni
sem fram hefur komið á útflutn-
ingsuppbótum á landbúnaðaraf-
urðir, bendir fundurinn á að þær
eru trygging fyrir því að bændur
fái umsamið verð. Því komi ekki
til greina að skerða rétt þeirra í
þessu efni, enda verði framleiðsl-
unni beint með verðlagningu og
lánafyrirgreiðslu inn á þær braut-
ir sem hagkvæmast er hverju
sinni.
II.
1. Fundurinn bendir á að hagkvæm
stofnlán til uppbyggingar í land-
búnaði er forsenda þess að hann
geti gengt hlutverki sínu, sem ein
af undirstöðum atvinnulífs þjóð-
arinnar. Leggur hann því áherslu
á að stofnlánadeild landbúnaðarins
verði séð fyrir nægilegu og ódýru
fjáimagni.
2. Hækkuð verði rekstrar og afurða-
lán til landbúnaðarins, þannig að
hægt verði að greiða a.m.k. 90%
af verði afurða við afhendingu.
III.
Fundurinn vítir harðlega þann
rakalausa óhróður sem rekinn hefur
verið gegn landbúnaðinum í vissum
fjölmiðlum og flokkast hlýtur undir
atvinnuróg, og skorar á forustumenn
sína að svara hanum af fullri einurð.
3) Sænska þingið ákvað fyrir ára-
tug að heimila framleiðslu og sölu
milliöls. Reynslan af því varð slík
að nú hefur það sama þing samþykkt
að banna algerlega framleiðslu og
sölu þessa öls frá 1. júlí nk. —
Þingið álítur að ölið sjálft sé skað-
valdur en ekki einungis óheppilegir
dreifingarhættir.
4) Áfengisvarnaráð varar við því að
umræður um áfengismálastefnu fari
fram á grundvelli þess sem fólki
finnst eða það heldur. Svo glögg
vitneskja liggur fyrir um þessi mál
frá mörgum löndum að óþarfi er að
fara þar eftir hugmyndum sem upp-
runnar eru hjá ái'óðursmiðstöðvum
bruggarasamtaka og áfengissala.
Áfengisvarnaráð.
ÍBÚAFJÖLDI
Hinn fyrsta desember 1976 voru
ibúar í Stöðvarhreppi 323 og hafði
þeim fjölgað um 12 frá 1 desember
1975.
ATVINNUMÁL
1 byrjun árs 1976 voru öll fisk-
vinnslu og útgerðarfyrirtæki á Stöð-
varfirði sameinuð í eitt fyrirtæki
Hraðfrystihús Stöðvarfj arðar hf., og
hefur það síðan annast móttöku og
vinnslu þess afla sem að landi hefur
borist. Um síðastliðin áramót var
ráðinn nýr framkvæmdastjóri að
fyrirtækinu, Guðjón Smári Agnars-
son, en hann var áður starfsmaður
í sjávarútvegsráðuneytinu og flutti
hann hingað með fjölskyldu sína um
miðjan janúar. Eins og fram hefur
komið seldu Stöðfirðingar Fáskrúðs-
firðingum í vetur eignarhlut sinn í
togaranum Hvalbak, en hraðfrysti-
húsið á í smíðum 500 lesta togskip
í Noregi og verður það væntanlega
afhent í júní næstkomandi en fyrir-
tækið fær aflahluta af togurum Fá-
skrúðsfirðinga út maímánuð, en
þeir hafa sem kunnugt er aflað
mjög vel að undanförnu.
Atvinna hefur verið allgóð frá
febrúarbyrjun við fiskvinnslu og
loðnubræðslu, en hér hefur nú verið
landað 10700 lestum af loðnu og hef-
ur bræðsla gengið mjög vel. Þetta
er um helmingi meira magn af loðnu
en hingað barst í fyrra. Hér er nú
einnig unnið af kappi að viðbyggingu
við frystihúsið og er að því stefnt
að taka hana í notkun hið fyrsta því
að aðstaða til fnystingar í gamla
húsinu er óviðunandi.
Þeir Magnús Ólafsson formaður
Sambands ungra framsóknarmanna
og Gylfi Kristinsson voru leiðbein-
endur á tveimur þjóðmálanámskeið-
um sem haldin voru á Egilsstöðum og
Reyðarfirði um síðustu helgi. Á þess-
Á síðastliðnu ári voru í byggingu
hér fjögur hús, þar af tvö sem byggð
voru á vegum sveitarfélagsins sam-
kvæmt lögum um leiguíbúðir, lokið
var við tvær stórbyggingar á okkar
mælikvarða og þær teknar í notkun
það er hús Samvinnubanka íslands
hf. og hús Pósts og síma, en þar var
jafnframt opnuð sjálfvirk símstöð í
októbermánuði. Einnig mun alveg á
næstunni verða tekin í notkun ný-
bygging læknamóttöku sem verða
mun í tengslum við Heilsugæslustöð
Fáskrúðsfjarðarlæknishéraðs að Búð-
um í Fáskrúðsfirði.
FÉLAGSLÍFIÐ
Félagslífið hefur verið með svip-
uðu sniði og undanfarin ár. Lítið
hefur verið dansað síðan um jól og
áramót. Þess í stað hefur verið spil-
uð félagsvist einu sinni í viku og
bridge allnokkuð. Kvikmyndasýning-
ar safa verið minnst ein sinni í viku,
og allt upp í fimm sinnum.
VEÐRIÐ
Tíðarfar hefur verið með eindæm-
um gott í vetur. Talsverðan snjó setti
hér niður í febrúarmánuði. Hann
hefur nú að mestu tekið upp í byggð
en allmikill snjór er enn til fjalla.
BJARTSÝNI RÍKJANDI
Stöðfirðingar horfa björtum aug-
um til framtíðarinnar. Stækkun ís-
lenskrar landhelgi virðist þegar hafa
leitt til aukins afla á austfjarðamið-
um og þess má geta að lokum að einn
opinn vélbátur hefur nú hafið róðra
frá Stöðvarfirði og hefur hann aflað
vel.
um námskeiðum voru tekin fyrir
undirstöðuatriði í ræðumennsku og
fundarstjórn og fundarreglum og
rædd voru framfaramál hvers byggð-
arlags fyrir sig. Góður rómur var
gerður að þessum námskeiðum og er
auðsætt að mikil þörf er fyrir starf-
semi af þessu tagi, einkum þar sem
þessum hlutum eru sáralítil skil gerð
í almenna skólakerfinu.