SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Side 16
16 19. júní 2011
jakkafataklæddan Range Rover-eiganda,
sem brýtur öll boðorðin á einum degi.
Hann segir auglýsingagerð góða þjálf-
un. „Þar er virk kvikmyndagerð, frá viku
til viku, og þar fá menn reynsluna og
þjálfunina.“
Talið berst að Latabæ því viðtalið fer
einmitt fram í græna herberginu í upp-
tökuveri þáttanna. „Það var virkilega
gott fyrir kvikmyndabransann að fá
Latabæ hingað inn. Menn fengu að prófa
nýjustu tækni. Hér inni er eitt fullkomn-
asta „green screen“ stúdíó í Evrópu. Síð-
ustu ár hefur verið mikill uppgangur í ís-
lenskri kvikmyndagerð hvað varðar
fagmennsku og aðgang að tækjum. Það er
frábært starfsfólk hérna,“ segir hann og
nefnir erlendu myndirnar sem hafa verið
teknar hér en hann vann sjálfur einmitt
við mynd Clints Eastwood, Flags of our
Fathers.
Honum finnst gott að vera kvik-
myndaleikstjóri á Íslandi í dag og segir
yfirbygginguna í kringum bandarískar
myndir vera mikla og strangar verka-
lýðsreglur í gildi.
Gleði í samvinnunni
„Hér er meiri samvinna og hún smitar út
frá sér í gleði sem síðan smitast í mynd-
ina. Eins og í Eastwood-myndinni þá
fengum við lánaða ljósastanda í ljósa-
deildinni, þurftum að kvitta upp á lánið
og svo fóru þau með þá út í fjöru. Það
byrjaði síðar að flæða að og við sáum að
þeir voru að fara að lenda í sjó. Við hlup-
um til og ætluðum að taka þá en máttum
það ekki því það var í verkahring ljósa-
deildarinnar. Það fólk var hins vegar
langt í burtu svo standarnir blotnuðu all-
ir og ryðguðu. Þetta fannst manni svolít-
ið asnalegt. Hér er meiri ástríða fyrir
kvikmyndagerð. Hana vantar víða í bíó-
myndir í heiminum finnst mér. Það skil-
ar sér á tjaldið ef þér er annt um það sem
þú ert að segja og gera.“
skápur,“ segir hann dularfullur í bragði.
Auk Sveppa og Villa leikur Gói í mynd-
inni en hann er líka fastagestur í þátt-
unum. Hvernig er að vinna með þessum
strákum?
„Það er bara yndislegt. Það er besta
efni sem leikstjóri getur ímyndað sér að
vinna með svona gaurum.“
Eftir að Bragi Þór og Sveppi eru búnir
að skrifa handritið lesa þeir allir yfir það
saman. „Þá fæðast oft góðir punktar sem
eru til að styrkja söguna og galdrana. Það
eru allir ótrúlega mikið í takt hver við
annan í þessum hópi. Þeir skilja mig og
það sem ég vil ná myndrænt. Þeir skilja
hver annan. Þetta gengur eins og smurð
vél.“
Viðtalið fór fram undir lok síðasta
mánaðar, á fjórða degi af tökum, en áætl-
að var að tökurnar stæðu yfir út næstu
viku.
Æsilegur eltingaleikur í myndinni
„Við förum bæði í Þjóðskjalasafn Íslands
og Þjóðminjasafnið. Það er eltingaleikur
sem fer frá Þjóðminjasafni niður Há-
skólalóðina, framhjá Norræna húsinu, út
á flugvöll, yfir flugbrautina og niður í
Nauthólsvík. Æsilegur eltingaleikur!“
Það er kannski nóg til af barnaefni á ís-
lensku en ekki úr íslenskum veruleika en
fólk hefur auðvitað gaman af því að sjá
staði sem það þekkir. „Þetta er ævintýri
sem gerist á okkar tímum, í okkar um-
hverfi, borg og landi.“
Leikstjórinn rifjar upp ævintýramynd-
irnar sem höfðuðu til hans þegar hann
var strákur. „Myndir eins og Back to the
Future, E.T., Indiana Jones og Star
Wars. Það er gaman að heimfæra æsing-
inn, ævintýrið og hasarinn í þessum
myndum. Mér finnst við svolítið hafa náð
því. Það er alltaf eitthvað að gerast og
hetjurnar uppskera ávallt laun erfiðis
síns.“
Hann kemur með vísanir úr þessum
gömlu myndum í eigin myndum. „Eins
og í mynd númer tvö eru þeir í Ghost-
busters-göllum, með byssur að skjóta á
drauga,“ segir Bragi Þór en honum finnst
mikilvægt að koma með eitthvað sér-
staklega fyrir foreldrana. „Við könnumst
allir við það að fara með börnin okkar í
bíó á mynd sem við okkur finnst ekkert
skemmtileg. Börnin horfa en við erum
hrjótandi úti í sal. Okkur er mjög um-
hugað um að gera eitthvað fyrir foreldr-
ana líka og lítum á Toy Story og Shrek í
þessum efnum. Koma með eitthvað sem
krakkarnir ekki skilja en foreldrarnir eru
ofboðslega þakklátir fyrir og gera þannig
bíóferðina með fjölskyldunni enn meira
virði.“
Byrjaði í auglýsingum
Bragi Þór stofnaði fyrirtækið Hreyfi-
myndasmiðjuna árið 1997, þegar hann
var aðeins 23 ára. „Ég stefndi til að byrja
með inn á auglýsingar. Ég var alltaf að
reyna að fá að leikstýra auglýsingum fyrir
stærri fyrirtæki en það gekk illa að sann-
færa þau því ég var nýr í þessu. Ég ákvað
að búa til eitthvert batterí til að koma
sjálfum mér á framfæri.“
Það gekk eftir og Hreyfimyndasmiðjan
gerði margar auglýsingar. Það var síðan
árið 2003 sem Bragi Þór gerði sína fyrstu
stuttmynd, Síðasta kynslóðin: Boðorðin
10, sem fjallar um ungan athafnamann,
„Það eru allir ótrúlega mikið í takt hver við annan í þessum hópi. Þeir skilja mig og það sem
ég vil ná myndrænt. Þeir skilja hver annan. Þetta gengur eins og smurð vél,“ segir Bragi Þór
um samstarfið við strákana.
Frá fjórða degi af tökum á Algjör Sveppi og töfraskápurinn.
Stjörnurnar þrjár, Vilhelm Anton Jónsson (Villi), Guðjón Karlsson (Gói) og Sverrir Þór Sverr-
isson (Sveppi) slaka á í græna herberginu í upptökuveri Latabæjar á milli taka.
Leikstjórinn spáir í spilin ásamt Sveppa og Villa.
’
Við könnumst allir
við það að fara með
börnin okkar í bíó á
mynd sem við okkur finnst
ekkert skemmtileg. Börnin
horfa en við erum hrjótandi
úti í sal. Okkur er mjög um-
hugað um að gera eitthvað
fyrir foreldrana líka, koma
með eitthvað sem krakk-
arnir skilja ekki en foreldr-
arnir eru ofboðslega þakk-
látir fyrir.