Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 3

Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010 Þrír Íslands-meistarar eru í karlalands- liðinu í golfi sem tekur þátt í Evr- ópumóti landsliða 6.-10. júní. Þeir eru Ólafur B. Loftsson, Sig- mundur Einar Másson og Kristján Þór Einarsson. Einnig eru í liðinu Hlynur Geir Hjartarson sem stóð sig frábærlega með landsliðinu í fyrra, Alfreð Brynj- ar Kristinsson og Axel Bóasson. Karlaliðið keppir í Svíþjóð.    Kvennaliðið keppir hins vegar áSpáni sömu daga, en Ragnar Ólafsson landsliðseinvaldur tilkynnti liðin í gær. Kvennaliðið er nokkuð jafnt og er skipað þeim Valdísi Þóru Jónsdóttur, Signýju Arnórsdóttur, Tinnu Jóhannsdóttur, Eygló Myrru Óskarsdóttur, Ólafíu Þórunni Krist- insdóttur og Rögnu Björk Ólafs- dóttur.    Landsliðs-konan Rakel Hönnudóttir skoraði þrennu fyrir Þór/KA þeg- ar liðið skellti Fjarðabyggð/ Leikni 9:0 í 16-liða úrslitum Visa- bikarkeppni kvenna í gærkvöldi. Arna Sif Ás- grímsdóttir, Bojana Besic, Lára Ein- arsdóttir, Amanda Mist Pálsdóttir, Laufey Hlynsdóttir og Katla Ósk Káradóttir skoruðu sitt markið hver.    Hlín Hauksdóttir gerði einnigþrennu þegar ÍBV sló ÍA út úr keppninni með 6:0-sigri. Lerato Kga- sago, Karítas Þórarinsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir gerðu sitt markið hver.    Fimleikasamband Íslands fer með268 manna hóp til Óðinsvéa í Danmörku dagana 10.-16. júlí en þar fer fram sýningahátíð Fimleika- sambands Evrópu, Eurogym. Hátíð- in er fyrir 12 ára og eldri og íslensku þátttakendurnir koma frá níu fé- lögum. Einn hópur frá hverju landi mun sýna á sérstakri „galasýningu“ og frá Íslandi verða það stúlkur frá Gerplu, Akranesi og Ármanni undir stjórn Bjarkar Óðinsdóttur, Karenar Sifjar Viktorsdóttur og Tönju Krist- ínar Leifsdóttur.    Einar Örn Guðmundsson hefurákveðið að leika með Val í N1- deildinni í handknattleik á næsta keppnistímabili. Hann lék með sænska úrvalsdeildarliðinu IFK Kristianstad á liðnum vetri. Áður var hann í herbúðum Víkings og Aftur- eldingar en hann er alinn upp í Val.    Eygló ÓskGúst- afsdóttir úr Ægi setti stúlknamet í 800 m skriðsundi á Aldursflokka- meistaramóti Ís- lands í sundi sem stendur yfir í Ás- vallalaug í Hafnarfirði til sunnudags. Hún synti á 8:49,26 mínútum. Krist- inn Þórarinsson úr Fjölni setti tvö drengjamet en hann synti 200 m skriðsund á 2:01,51 mínútu og 100 m flugsund á 1:00,10 mínútum.    Michael Ballack hefur ekkert get-að leikið með Þýskalandi á HM í knattspyrnu í Suður-Afríku vegna meiðsla. Hann hefur í staðinn nýtt tímann til að semja við sitt gamla fé- lag, Bayer Leverkusen, til tveggja ára. Ballack, sem er 33 ára, mun því líklega ljúka ferlinum með Leverkus- en en hann var leikmaður Englands- meistara Chelsea frá 2006. Fólk sport@mbl.is Í dag stendur frjálsíþróttadeild ÍR fyrir alþjóðlegu kastmóti á kastvellinum í Laugardal. Bestu ís- lensku kastararnir í kúluvarpi karla, spjótkasti ung- linga, kvenna og karla, kringlukasti karla og ung- linga og sleggjukasti kvenna og unglinga etja kappi sín á milli auk þess sem írskir kastarar eru skráðir til leiks. Meðal keppenda eru Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni, ein fremsta spjótkastskona Evrópu, Óð- inn Björn Þorsteinsson, kúluvarpari úr FH, og Guð- mundur Hólmar Jónsson, spjótkastari úr Ármnni, sem bætti sinn fyrri árangur um fjóra metra í Evr- ópubikarkeppni landsliða á Möltu um síðustu helgi. Einnig tekur Sandra Pétursdóttir, Íslandsmeistari í sleggjukasti, þátt í mótinu. Athyglisvert verður að fylgjast með hinum hálf- íslenska kringlukastara Blake Jakobsson. Hann er sonur Óskars Jakobssonar, eins fremsta spjót- og kringlukastara og kúluvarpara landsins fyrir um 30 árum. Blake er búsettur í Bandaríkjunum en er í heimsókn hér á landi. Þess má geta að Blake og Óðinn Björn kúluvarpari eru bræðrasynir. Einnig tekur stór hópur ungra og efnilegra íslenskra kastara þátt í mótinu. Það er hugsað sem árlegt mót fyrir íslenska kastara en þátttaka erlendra keppenda verður efld á næstu árum gegn- um tengsl við Íra og hinar Norðurlandaþjóðirnar, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá frjálsíþróttadeild ÍR. Keppni hefst kl. 13:00 á sleggjukasti pilta og lýk- ur um kl. 16. iben@mbl.is Kastarar gera strandhögg í Laugardal Ásdís Hjálmsdóttir Þetta er fyrsta sjöþraut- arkeppnin sem Helga Margrét tekur þátt í frá því í fyrrasumar þegar hún meiddist undir lok sjö- þrautarkeppninnar á Evrópu- meistaramóti 19 ára og yngri þar sem hún hafði gullverðlaunin innan seilingar. Stefán segir mjög forvitnilegt að sjá hvar Helga Margrét stend- ur um þessar mundir. „Vegna meiðsla sem hún glímdi við í vor þurftum við aðeins að breyta æfingunum og fyrir vikið eru nokkrir hlutir í óvissu hjá henni. Ég veit að tæknilega stendur hún vel að vígi en við þurfum að sjá hvar hún stendur á ýmsum sviðum,“ segir Stefán Jóhannsson. iben@mbl.is Margréti í Tel Aviv Helga Margrét Þorsteinsdóttir Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þessi sigur gefur okkur meira sjálfstraust. Eftir að hafa tapað fyrsta leik mótsins vantaði meiri yfirvegun í menn, og núna er hún fengin,“ sagði Vicente del Bosque, þjálfari Spánar, eftir að Evr- ópumeistararnir tryggðu sér efsta sæti H-riðils með 2:1-sigri á Chile, og þar með sæti í 16-liða úrslitum HM í knattspyrnu í Suður-Afríku. Þangað fer hið skemmtilega lið Chile líka þrátt fyrir tapið því Sviss náði aðeins markalausu jafn- tefli við Hondúras sem lauk keppni án þess að skora mark. Verðskulduðum ekki að fara áfram í keppninni Það fór því svo að frækinn sigur Svisslendinga á Spánverjum, sem del Bosque talaði um, skipti í raun engu máli þegar allt kom til alls og hlutirnir gengu upp á endanum hjá Evrópumeisturunum. „Við erum virkilega vonsviknir því sigurinn á Spáni gaf okkur byr undir báða vængi. En við verð- skulduðum bara ekki að fara áfram því okkur tókst ekki að skora,“ sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari Sviss. Með sigrinum tókst Spánverj- um að sneiða framhjá fimmföldum heimsmeisturum Brasilíu en í staðinn mæta þeir nágrönnum sín- um frá Portúgal í 16-liða úrslitum. „Leikurinn við Portúgal verður ekki auðveldur. Við erum hins vegar á réttri braut núna. Fern- ando Torres gat leikið 60 mínútur og Andrés Iniesta er kominn í gott stand. Við finnum fyrir mikilli pressu en það er það sem fylgir því að spila fyrir Spán,“ sagði del Bosque. David Villa kom Spáni yfir í gær með sínu þriðja marki í keppninni og hann er þar með einn þriggja markahæstu leikmanna mótsins til þessa. Villa nýtti sér þá slæm markmannsmistök og skoraði af löngu færi, og hann lagði svo upp annað markið fyrir Andrés Iniesta. Skörð í leikmannahóp Chile Í sömu andrá var Marco Est- rada, leikmanni Chile, vikið af velli þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Tveir til viðbótar, þeir Waldo Ponce og Gary Medel, fengu einnig gult spjald í leiknum og verða þeir einnig í leikbanni í 16-liða úrslitunum, svo ljóst má vera að Chile mætir með laskað lið í Suður-Ameríkuslaginn við Bras- ilíu. Tapið í gær var fyrsta tap Suð- ur-Ameríkuþjóðar á HM til þessa sem er ansi mögnuð staðreynd. Það var þó augljóst af leik Chilem- anna í seinni hálfleik, eftir að þeir höfðu minnkað muninn, að þeim var slétt sama um slíkt. Staðan var nefnilega þannig þá að Sviss hefði þurft að skora tvö mörk í sínum leik, svo leikmenn Chile brugðu á það ráð að leika af meiri varfærni en áður enda manni færri. „Þetta var frekar skrýtið en þeir [Chilemenn] virtust vissir um að Sviss myndi ekki vinna með tveimur mörkum, og að 2:1-tap myndi þá duga þeim. Þessi úrslit voru því báðum aðilum til góða,“ sagði markaskorarinn David Villa. „Við vissum þegar við fórum í þennan leik að við yrðum að vinna, en við neituðum að láta það hafa áhrif á okkur og leystum þetta verkefni fagmannlega. Tapið í fyrstu umferð var áfall en nú erum við á réttri leið,“ bætti þessi nýi leikmaður Spánarmeistara Barce- lona við. Allt gekk upp á endanum hjá Spánverjum  Chile fylgdi Spáni þrátt fyrir tap  Fyrsta tap Suður-Ameríkuþjóðar silíumenn og Portúgalar tryggðu tvö efstu sætin í G-riðli á HM í ur-Afríku með því að gera marka- t jafntefli í lokaumferð riðlakeppn- ar í gær. Brasilía vann riðilinn með g og mætir Chile í 16-liða úrslitum. túgal náði öðru sætinu með 5 stig Fílabeinsströndin fékk 4 stig eftir afa unnið Norður-Kóreu 3:0. túgal og Fílabeinsströndin gerðu tefli en með því að bursta Norður- eu 7:0 tókst Portúgölum að koma í mjög góða stöðu. Portúgal mætir nágrönnum sínum Spánverjum í 16- liða úrslitum keppninnar. Knattspyrnuáhugamenn höfðu gert sér vonir um að leikur Brasilíu og Portúgals yrði mikil skemmtun enda geta bæði lið leikið leiftrandi sóknar- bolta á góðum degi. Leikurinn var hins vegar tíðindalítill fyrir utan að sjö gul spjöld fóru á loft og öll í fyrri hálfleik. Sigurvilji leikmanna virtist afskaplega takmarkaður, jafnvel þótt efsta sæti riðilsins hafi verið í húfi sem getur gef- ið ,,auðveldari“ andstæðing í 16-liða úrslitum. „Hinn leikreyndi miðvörður Brasilíu, Lucio sagði ekki óeðlilegt að leikurinn hefði þróast með þessum hætti en gagnrýndi að Cristiano Ro- naldo skyldi hafa verið valinn maður leiksins. „Þetta er án efa ákvörðun FIFA. Við vitum hvað hann getur en það er ekkert réttlæti í knattspyrnu,“ sagði Lucio og hafnaði því að siguvilj- ann hefði skort hjá leikmönnum. „Við vitum að bæði lið vildu vinna þennan leik og stundum voru tækling- arnar nokkuð harðar. En það er eðli- legt,“ sagði Lucio og samherji hans Ju- lio Cesar er bjartsýnn fyrir framhaldið. „Við erum ánægðir með að vera komnir áfram í efsta sæti úr erf- iðum riðli. Við viljum vera hérna til 11. júlí. Það er sama hverjir verða and- stæðingar okkar, við erum tilbúnir til þess að fara lengra,“ sagði markvörð- urinn snjalli. Didier Drogba, stærsta stjarna Fíla- beinsstrandarinnar, sagðist vera svekktur en ekki of svekktur vegna styrkleika riðilsins. kris@mbl.is Reuters ugur David Villa braut ísinn fyrir Spán með laglegu marki og lagði upp annað. 7 gul spjöld í fyrri hálfleik en engin mörk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.