Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010 Gylfi Þór Sigurðsson virðist ætla að stimpla sig fljótt inn í þýsku bundesligunni í knatt- spyrnu með liði sínu Hoffenheim. Hann kom inná sem varamaður gegn Mainz á laugardag- inn og endurtók leikinn frá því gegn Kais- erslautern fyrir tveimur vikum með því að skora úr sinni fyrstu snertingu glæsilegt mark úr aukaspyrnu. Markið dugði þó skammt því Hoffenheim tapaði 4:2. Gylfi Þór sýndi það og sannaði með Reading á síðustu leiktíð að hann býr yfir frábærri spyrnutækni og þá er mörgum í fersku minni þegar hann skoraði úr aukaspyrnu með U21- landsliðinu gegn Þýskalandi í undankeppni EM. Hann er einmitt í U21-landsliðshópnum sem Eyjólfur Sverrisson valdi fyrir umspilsleikina tvo við Skotland en fyrri leikurinn er nú á fimmtu- daginn. Mainz hefur komið liða mest á óvart í þýsku deild- inni í upphafi leiktíðar og unnið alla sjö leiki sína hingað til. Með sigrinum á Hoffenheim komst hið lítt þekkta lið Mainz í hóp með Bayern München og Kaiserslautern yfir einu liðin sem hafa afrekað það að vinna alla fyrstu sjö leikina á nýrri leiktíð. sindris@mbl.is Aftur skoraði Gylfi í fyrstu snertingu Gylfi Þór Sigurðsson Neil Warnock knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins QPR var óspar á hrósið í garð Svarfdælingsins Heiðars Helgusonar eftir að íslenski landsliðsmaðurinn skoraði mikilvægt sigurmark með skalla í 2:1 sigri á Crystal Pa- lace. Markið skoraði Heiðar á 90. mínútu, rétt eftir að Palace-menn höfðu jafnað metin. Markvörður Palace, Julian Speroni, vildi reyndar meina að brotið hefði verið á sér en því var Warnock ekki sammála. „Þeir voru eitthvað að kvarta en ég held að þeir hafi bara verið sársvekktir vegna þess á hvaða tíma markið kom. Hann [Heiðar] hopp- aði mörgum metrum ofar en allir hinir. Það þurfti besta skalla sem ég hef séð í mörg ár til að vinna leikinn, og Heiðar var stórkostlegur,“ sagði Warnock eftir leikinn. „Ég vildi að ég hefði haft hann fyrir nokkrum ár- um,“ bætti Warnock við en hann hefur áður stýrt með- al annars Sheffield United sem lék í úrvalsdeildinni 2006-07. Hann tók svo við Palace en hefur verið stjóri QPR frá því í mars. QPR er eftir sem áður á toppi 1. deildarinnar og liðið hefur ekki tapað leik í fyrstu 10 umferðunum og hefur sex stiga forskot. sindris@mbl.is „Vildi að ég hefði haft Heiðar fyrr“ Heiðar Helguson ENGLAND Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þau eru orðin þrettán mörkin sem Fílabeinsstrendingurinn Didier Drogba hefur skorað í jafnmörgum leikjum gegn Arsenal eftir að hann gerði fyrra markið í 2:0 sigri Chelsea í stórleik ensku úrvals- deildarinnar um helgina. Drogba virðist hafa einkar gott lag á að skora gegn Arsenal og Chelsea er sömuleiðis með hreðjatak á grönn- um sínum í London því Englands- meistararnir hafa nú unnið Arsenal í fjórum deildaleikjum í röð. Þeir eru þar með fyrsta liðið til að ná að vinna Arsenal í fjórum deilda- leikjum í röð frá því að Arsene Wen- ger tók við stjórnartaumunum þar árið 1996. Markið sem Drogba skoraði var ansi laglegt en hann skilaði lágri fyrirgjöf frá Ashley Cole í markið af stuttu færi. Drogba hefur þar með skorað átta mörk í deildaleikjum gegn Arsenal og aðeins einn knatt- spyrnumaður hefur skorað fleiri gegn þessu fornfræga félagi, Rob- bie nokkur Fowler. Hann skoraði 10 mörk í deildaleikjum gegn Arsenal á sínum ferli. Undarleg byrjun Drogba er orðinn 32 ára gamall og á sinni sjöundu leiktíð hjá Chelsea eftir að hann kom til félags- ins frá Marseille. Sennilega hefur hann aldrei verið betri en á síðustu leiktíð þegar Chelsea vann tvöfalt, en hann hefur einnig byrjað vel á þessari leiktíð. Þess vegna komu orð hans fyrir leikinn við Arsenal nokk- uð á óvart, og skjóta kannski and- stæðingum skelk í bringu. „Þetta er svolítið undarleg byrjun á leiktíðinni fyrir mig. Ég er búinn að skora mörk og leggja upp en ég er ekki enn kominn í 100% form. Að- gerðin sem ég fór í á undirbúnings- tímabilinu hefur haldið aftur af mér en ég er á góðri leið með að komast í mitt besta stand og reikna með að það takist á næstu tveimur vikum,“ sagði Drogba. Úr því að Drogba skoraði enn einu sinni gegn lærisveinum Arsene Wen- ger er ekki úr vegi að rifja upp að þegar Drogba var enn óslípaður demantur í frönsku deildinni, rúm- lega tvítugur hjá Le Mans, velti Wenger því fyrir sér hvort hann ætti að festa kaup á kappanum. Talið er að Drogba hafi verið falur fyrir 100.000 pund á þeim tíma, sem sagt algjört gjafverð, en Wenger og hans aðstoðarmenn hættu við vegna þess að þeir töldu Drogba ekki vera „al- veg tilbúinn“. Hafa verður í huga að Arsenal var með annan snilling, Thierry Henry, í sínum röðum á þessum tíma en sú staðreynd að Drogba stóð þeim til boða á sínum tíma hlýtur að vera salt í sár Arsenal-manna. Sú ákvörðun að kaupa hann ekki virðist ætla að valda Wenger ama lengi. Ray Wilkins aðstoðarknatt- spyrnustjóri Chelsea svaraði spurn- ingum fréttamanna eftir leik í fjar- veru Carlo Ancelotti sem missti föður sinn í síðustu viku og tók af þeim sökum lítinn þátt í undirbún- ingi liðsins fyrir leikinn í gær. Wilk- ins var ánægður með liðið og tók undir að Drogba ætti stóran þátt í sigrinum. „Árangur Didiers gegn Arsenal er stórfenglegur en hann skorar gegn öllum liðum, ekki bara Arsenal. En í dag skoraði hann mjög gott mark. Þetta var hælspyrna sem sýndi hvað hann getur gert og hvernig leik- maður hann er. Hann gerir svo sann- arlega gæfumuninn þegar hann er í stuði eins og í dag,“ sagði Wilkins. Það var hins vegar alls ekki svo að Chelsea hefði mikla yfirburði í gær og Arsenal hefði vel getað komist yf- ir í leiknum. Heimamenn spiluðu hins vegar sterka vörn. Í áskrift hjá Arsenal  Wenger sér eflaust eftir því að hafa ekki keypt Drogba þegar færi gafst  Fílabeinsstrendingurinn skoraði 13. markið í 13. leiknum gegn Arsenal Reuters Enn eitt markið Didier Drogba hafði ástæðu til að brosa í gær þegar hann skoraði enn einu sinni gegn Arsenal. Markahæstir » Didier Drogba blandaði sér í hóp markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar með mark- inu gegn Arsenal í gær. » Drogba og félagi hans hjá Chelsea, Florent Malouda, hafa gert 6 mörk hvor líkt og Dimit- ar Berbatov hjá Man. Utd. » Chelsea er nú með 4 stiga forskot á toppi deildarinnar en Man. City kemur næst. Það blæs ekkibyrlega hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Eftir að hafa tap- að fyrir nýliðum Blackpool í gær, 2:1, er liðið í fall- sæti í fyrsta sinn í yfir 46 ár, gefið að minnst þrjár um- ferðir hafi verið spilaðar. Blackpool komst í 2:0 í fyrri hálfleiknum en Grikkinn Sotirios Kyrgiakos náði að minnka muninn eftir aukaspyrnu frá Steven Gerrard.    Ekki bætti úr skák fyrir Liver-pool að spænski framherjinn Fernando Torres meiddist enn á ný og fór af velli eftir aðeins um tíu mínútna leik. Talið er að um nára- meiðsli sé að ræða en ekki var ljóst í gær hve alvarleg þau væru.    Miðvall-arleikmað- urinn Jónas Guðni Sæv- arsson minnti á sig fyrir valið á A- landsliði Íslands í knattspyrnu sem tilkynnt verður í dag með því að skora seinna mark Halmstad í 2:0- sigri á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Sigurinn var mikilvægur fyrir Halmstad sem er þar með búið að slíta sig nokkuð frá fallbaráttunni og er sjö stigum frá fallsæti nú þegar aðeins fjórar um- ferðir eru eftir. Á laugardaginn gerðu Íslendingarnir í GAIS slíkt hið sama með því að vinna Hels- ingborg á útivelli, 1:0.    Steinþór FreyrÞor- steinsson gerir líkt og Jónas Guðni hér að ofan tilkall til þess að vera í A- landsliðinu í knattspyrnu sem tilkynnt verður í dag og hann skor- aði fyrsta mark sitt fyrir Örgryte í sænsku 1. deildinni í gær. Steinþór Freyr kom til Örgryte frá Stjörn- unni í sumar og skoraði fyrsta mark leiksins í gær þegar Örgryte vann Assyriska á útivelli, 3:1. Örgryte á þó ekki möguleika á að komast upp í úrvalsdeild því liðið er sjö stigum frá möguleikanum á því nú þegar það á aðeins tvo leiki eftir.    Wayne Rooney var ekki í leik-mannahópi Manchester Unit- ed þegar liðið náði aðeins marka- lausu jafntefli við Sunderland á laugardaginn. Þetta er fjórða jafn- tefli United á útivelli á leiktíðinni en liðið hefur enn ekki tapað leik. Sund- erland hefur þar með gert jafntefli í síðustu fjórum leikjum sínum en þrír þeir síðustu hafa verið gegn United, Liverpool og Arsenal. Áður hafði lið- ið unnið Manchester City. Fólk sport@mbl.is Veigar Páll Gunnarsson var sem oft áður á skotskónum með liði sínu Stabæk í gær þegar það vann Aale- sund 2:1 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Veigar sýndi galdra sína í fyrra marki Stabæk en hann lék þá á tvo varnarmenn, tók þrí- hyrningsspil með félaga sínum, og lék svo á aðra tvo varnarmenn áður en hann skoraði úr þröngu færi. Markið vakti ekki kátínu hjá landsliðsmanninum fyrrverandi og núverandi þjálfara Aalesund, Kjetil Rekdal, sem var hundfúll eftir leikinn. „Þetta var ódýrt mark. Veigar gerði þetta frábærlega en hann fór samt framhjá ein- hverjum sex leik- mönnum. Það á ekki að gerast í þessari deild,“ sagði Rekdal. Norskir fjölmiðlar eru ósparir á hrósið í garð Veigars og segja hann fylla vel í skarð Daniels Nannskog sem hefur yfirleitt séð um að skora mörkin fyrir Stabæk, með dyggri aðstoð Veigars, en Nannskog er meiddur. Veigar lét ekki nægja að skora því hann lagði svo upp seinna markið. Hann hefur nú skorað níu mörk og lagt upp önnur níu á þess- ari leiktíð. Veigari var skipt af leik- velli í lokin en Pálmi Rafn Pálma- son lék allan leikinn fyrir Stabæk líkt og Bjarni Ólafur Eiríksson. Gunnar Heiðar á skotskónum Veigar var ekki eini Íslending- urinn á skotskónum í Noregi í gær því Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði annað mark Fredrikstad sem vann Sandnes Ulf 3:1 í 1. deild- inni. Fredrikstad er í harðri bar- áttu um að komast upp í úrvalsdeild og er sem stendur í 2. sæti nú þegar aðeins sex umferðir eru eftir af deildinni. sindris@mbl.is Rekdal reiður yfir marki Veigars  Veigar Páll skoraði eitt og lagði upp annað  Fyllir vel í skarð markaskorara Stabæk Veigar Páll Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.