Morgunblaðið - 16.10.2010, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.10.2010, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2010 „Ég myndi örugglega ná að skora 100 stig í leik ef ég væri upp á mitt besta í deildinni í dag,“ segir Michael Jordan, fyrrverandi leikmaður NBA- liðsins Chicago Bulls, í gær í viðtali við bandaríska dagblaðið USA Today. Jordan, sem skoraði 30,1 stig að meðaltali á 15 ára ferli sínum, telur að breytingar á reglum NBA-deildarinnar hefðu gert honum auðveldara um vik í sóknarleiknum. „Það er ekki leyfð eins mikil harka í vörn og ýmsar aðrar reglubreytingar hafa opnað fleiri möguleika í sókninni. Ég er viss um að ég hefði fengið fleiri vítaskot og þar með væri möguleiki á að skora 100 stig í leik,“ sagði Jordan í gær en hann var að kynna nýja tölvuleik, NBA 2K11, þar sem hann kemur við sögu. Jordan var einnig spurður að því hvort hann teldi að Kobe Bryant væri einn af bestu leikmönnum sögunnar. „Það er alltaf erfitt að bera saman hæfileika leikmanna sem voru upp á sitt besta á mis- munandi tímum. Kobe Bryant er án efa á meðal 10 bestu skotbakvarða NBA-deild- arinnar frá upphafi,“ bætti Jor- dan við. Hann er í dag aðaleigandi NBA-liðsins Charlotte Bobcats og samhliða þeim skyldum gerir hann lítið annað en að spila golf. Jordan hefur m.a. verið aðstoðar- maður hjá bandaríska Ryder-liðinu. seth@mbl.is Jordan er viss um að geta skorað 100 Michael Jordan FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Rauði hlutinn í Liverpoolborg fagn- aði í gær þegar fótboltaliðið þeirra losnaði við hina hötuðu Tom Hicks og George Gillett og fékk landa þeirra, bandaríska kaupsýslumann- inn John W. Henry, sem aðaleig- anda í staðinn. Hicks og Gillett gáfu þá eftir, þeir neyddust í gærmorgun til að aflétta tímabundnu lögbanni á söluna sem þeir eru afar ósáttir við. Fyrirtæki Henrys, New England Sports Ventures, sem er hinn nýi eigandi félagsins, greiðir 300 millj- ónir punda fyrir Liverpool. Hicks og Gillett vildu fá helmingi hærri upp- hæð og þeir hóta því enn að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hnekkja sölunni. Þeir krefjast áfram eins milljarðs punda í skaðabætur og segja málið eina stóra svikamyllu stjórnarmanna Liverpool, Royal Bank of Scotland og NESV. Þeir Henry og Martin Broughton voru í London þegar niðurstaðan lá fyrir og þeir leyndu ekki ánægju sinni. Sama er að segja um stuðn- ingsmenn Liverpool en fullyrða má að þeir hafi nánast allir sem einn beðið þeirrar stundar þegar Hicks og Gillett hyrfu á brott eftir þriggja ára eignarhald á félaginu. „Ég er stoltur og auðmjúkur og get ekki lýst ánægju minni með orð- um. Við erum komnir hingað til að sigra,“ sagði Henry við breska fjöl- miðla þegar niðurstaðan lá fyrir. Skuldabyrðin að mestu horfin Í yfirlýsingu frá Liverpool kemur m.a. fram að allar skuldir fyrri eig- enda félagsins séu á brott með þess- um viðskiptum og þar með sé skuldabyrði félagsins farin úr 25-30 milljónum punda á ári niður í 2-3 milljónir punda á ári. Þar með virðist hættan á greiðslustöðvun Liverpool úr sög- unni en þá hefði getað farið svo að félagið yrði svipt níu stigum í úr- valsdeildinni. Með þessu lýkur hálfs árs fram- haldssögu en í dag er nákvæmlega hálft ár síðan söluferli Liverpool fór af stað. Þá tilkynntu Hicks og Gil- lett að félagið væri til sölu. Síðustu tíu dagar hafa svo verið þeir við- burðaríkustu í sögu félagsins, utan vallar, þar sem sjálfri tilveru þess var ógnað um tíma. Næst beinast sjónir manna vænt- anlega að knattspyrnustjóranum, Roy Hodgson. Hann tók við liðinu í sumar en hefur ekki farið sérlega vel af stað og reynir þegar verulega á þolrif margra stuðningsmanna fé- lagsins. Þeim finnst fótbolti liðsins þegar minna of mikið á Fulham, sem eigi ekki að vera viðmiðið þeg- ar þeirra félag á í hlut. Og svo er að sjálfsögðu stigasöfnun liðsins í sögu- legu lágmarki um þessar mundir. En nú geta Liverpoolmenn farið að hugsa um fótboltann sjálfan á ný. Það er auðvelt því þeirra bíður sjálfur grannaslagurinn við Everton á Goodison Park á morgun. Ljóst er að fylgismenn þeirra rauðu verða með heldur hýrari há en und- anfarnar vikur og mánuði. En Liv- erpool mætir í þann leik í óvenju- legri stöðu, í fallsæti úrvalsdeildarinnar, enda hefur liðið aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikj- um sínum í deildinni það sem af er tímabilinu.  Umfjöllun um nýja eigandann, John W. Henry, er að finna á bls. 13 í Sunnudagsmogganum. Reuters Ánægður John W. Henry fagnar sigri í baráttunni um gamla knattspyrnurisann Liverpool sem lauk væntanlega í gær. „Við erum komnir hingað til að sigra“  Ánægja í Liverpool  Nýir bandarískir eigendur teknir við KNATTSPYRNA Þýskaland A-DEILD: Köln – Dortmund ......................................1:2 Staða efstu liða: Dortmund 8 7 0 1 20:6 21 Mainz 7 7 0 0 18:7 21 Hannover 7 4 1 2 11:8 13 Leverkusen 7 3 3 1 15:12 12 Freiburg 7 4 0 3 11:11 12 Hoffenheim 7 3 2 2 13:10 11 Hamburger SV 7 3 2 2 12:11 11 Wolfsburg 6 3 1 2 11:9 10 St. Pauli 7 3 1 3 8:8 10 KNATTSPYRNA 1. deild karla: Stjarnan – Víkingur ..........................31:21 Grótta – Fjölnir ................................ 27:15 Selfoss U – FH U..............................26:32 Mörk Selfoss U: Eyþór Lárusson 6, Sveinbjörn Jóhannsson 6, Einar Sverr- isson 5, Atli Hjörvar Einarsson 4, Trausti Eiríksson 3, Óskar Kúld Pét- ursson 2. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk FH U: Halldór Guðjónssn 12, Bogi Eggertsson 6, Ársæll Ársælsson 4, Bjarki Jónsson 3, Þorkell Magnússon 2, Þórir Traustason 2, Agnar Helgason 1, Atli Friðbergsson 1, Ísak Rafnsson 1. Utan vallar: 6 mínútur. Staðan: FH U 3 3 0 0 86:75 6 ÍBV 3 2 1 0 77:73 5 Stjarnan 3 2 0 1 82:58 4 Grótta 3 2 0 1 79:67 4 ÍR 3 1 1 1 88:78 3 Víkingur R. 3 1 0 2 86:86 2 Selfoss U 3 0 0 3 79:97 0 Fjölnir 3 0 0 3 50:93 0 Þýskaland A-DEILD: Grosswallstadt – Melsungen ...........34:27  Sverre Jakobsson lék að vanda í vörn Grosswallstadt. Hann var með spakara móti í gær og fékk hvorki gult spjald né brottrekstur af leikvelli. Staðan: Füchse Berlin 7 7 0 0 183:154 14 RN Löwen 8 7 0 1 250:227 14 Kiel 8 7 0 1 275:192 14 Hamburg 7 6 0 1 236:179 12 Flensburg 9 6 0 3 274:238 12 Gummersbach 8 6 0 2 243:223 12 Grosswallst. 8 6 0 2 227:213 12 Magdeburg 7 5 0 2 224:199 10 Lemgo 7 3 2 2 201:198 8 Göppingen 8 3 2 3 221:224 8 Burgdorf 7 2 0 5 183:215 4 Balingen 7 1 2 4 190:225 4 Friesenheim 8 1 2 5 206:244 4 Wetzlar 8 1 1 6 192:218 3 N-Lübbecke 7 1 0 6 188:219 2 Rheinland 7 1 0 6 159:202 2 Ahlen-Hamm 7 0 1 6 181:212 1 Melsungen 8 0 0 8 188:239 0 Noregur A-DEILD Runar - Viking Stavanger ...............28:33  Ingvar Árnason skoraði fimm mörk fyrir Viking og var einu sinni vísað af leikvelli.  Drammen er í efsta sæti norsku úr- valsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Sigurður Ari Skúlason og fé- lagar í Elverum eru í öðru sæti, einu stigi á eftir Drammen. Haslum er síðan í þriðja sæti með átta stig. Elverum sækir Haslum heim í dag. Þriðja Íslendingalið- ið í deildinni, Oppsal, situr á botninum án stiga. Oppsal sækir Follo heim á morgun í Ski. Danmörk A-DEILD: AG – Nordsjælland............................29:19  Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk og Arnór Atlason fjögur fyrir AG. Uppselt var á leikinn í Ballerup, 7.500 áhorfendur mættu sem er metfjöldi á leik í dönsku úrvalsdeildinni. Team Tvis Holstebro – FIF.............24:23  Gísli Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir FIF og var einu sinni vísað af velli.  AG trónir á toppi dönsku úrvalsdeild- arinnar sem fyrr, hefur 13 stig að lokn- um sjö leikjum. Gísli og félagar í FIF eru á botninum ásamt Viborg án stiga, en sex stig voru dæmd af FIF fyrir skömmu eftir að rekstrarfélag hand- knattleikdeildar FIF varð gjaldþrota í síðasta mánuði. HANDBOLTI 1. deild karla FSu – Breiðablik...................................85:70 FSu: Richard Field 24/19 fráköst, Valur O. Valsson 24/6 stoðsendingar, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 14, Orri Jónsson 10/5 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 6, Svav- ar Stefánsson 5, Sigurbjörn Jónsson 2. Breiðablik: Nick Brady 21/12 fráköst, Steinar Arason 13, Arnar Pétursson 10, Aðalsteinn Pálsson 9, Atli Örn Gunnarsson 8/8 fráköst, Þorsteinn Gunnlaugsson 7/12 fráköst, Helgi Freyr Jóhannsson 2. FSu: Richard Field 24/19 fráköst, Valur Orri Valsson 24/6 stoðsendingar, Guð- mundur Auðunn Gunnarsson 14, Orri Jóns- son 10/5 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 6, Svavar Stefánsson 5, Sigurbjörn Jónsson 2. Skallagrímur – Valur ..........................85:84 Staðan: FSu 2 2 0 176:125 4 Þór A. 2 2 0 148:125 4 Skallagrímur 2 2 0 161:154 4 Þór Þ. 1 1 0 101:73 2 Breiðablik 2 1 1 141:136 2 Valur 2 0 2 152:157 0 Höttur 1 0 1 70:76 0 Ármann 1 0 1 73:101 0 Leiknir R. 1 0 1 55:91 0 Laugdælir 2 0 2 108:147 0 KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Safamýri: Fram – Akureyri...............L15.45 Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin: Austurberg: ÍR – ÍBV........................L13.00 Safamýri: Fram – Stjarnan ...............L13.45 Seltjarnarnes: Grótta – Haukar........L13.30 Kaplakriki: FH – Fylkir ....................L16.00 Eimskipsbikar karla, 32 liða úrslit: Ísafjörður: Hörður – Stjarnan ..........L14.00 Austurberg: Árborg – ÍR2.................L15.00 Vestmannaeyjar: ÍBV2 – Spyrnir .....S13.00 Vestmannaeyjar: ÍBV – ÍR................S15.00 Húsavík: Völsungur – FH ..................S15.30 Mýrin: Stjarnan 2 – Afturelding........S16.00 Víkin: Víkingur 2 – Selfoss.................S18.00 Ásvellir: Haukar 2 – HKR..................S20.00 EHF-keppni kvenna, 2. umferð: Vodafonehöllin: Valur – Oldenburg..L17.00 Vodafonehöllin: Valur – Oldenburg ..S20.00 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin: Grindvík: Grindavík – KR..................L16.00 Keflavík: Keflavík – Snæfell ..............S16.15 Hveragerði: Hamar – Haukar ...........S19.15 Úrvalsdeild karla, IE-deildin: Njarðvík: Njarðvík – Snæfell ............S19.15 Sauðárkr.: Tindastóll – Grindavík.....S19.15 DHL-höllin: KR – Haukar .................S19.15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót kvenna: Akureyri: SA Ynjur – Björninn.........L17.00 Íslandsmót karla: Akureyri: SA Jötnar – SR .................L19.30 KARATE Íslandsmót unglinga 12-17 ára í kumite fer fram í MEST-húsinu í Norðlingaholti á morgun, sunnudag. Keppni hefst kl. 10 og úrslit kl. 13.30. UM HELGINA! Íslenski fó UPPRIFJUN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Það mætti halda að íslenski fótboltin verið fundinn upp í gær,“ sagði „göm kempa“ við mig í vikunni. Sá góði ma alls ekki gera lítið úr þeim afrekum 2 landsliðsins að vera komið í átta liða Evrópukeppninnar en kvaðst vonast t að árangur fyrri ára væri ekki fallinn gleymskunnar dá. Já, minni manna er gloppótt og ein hef áður bent á í vikunni hafa tvö ísle karlalandslið áður leikið í átta liða úr Evrópukeppni. Það voru U19 ára liðið 1997 og U17 ára liðið árið 2007. Samt ýmsir klifað á því síðustu daga að ald hafi íslenskt karlalandslið náð eins la boltanum og okkar efnilega 21-árs lið nú gert. Ragna Ingólfsdóttir komst í gær í átta manna úrsl þjóðlega badmintonmótinu á Kýpur og heldur þar Helgi Jóhannesson tapaði hins vegar eftir harða b manna úrslitum karla og er úr leik. Ragna vann Marcelu Nesvedovu frá Tékklandi, fyrstu umferðinni í gær. Andstæðingur hennar í 1 var Christina Andersen frá Danmörku. Ragna van 21:13, í fyrstu lotu, og sigraði síðan eftir framleng 23:21. Ragna keppir snemma í dag við Claudiu Mayer manna úrslitunum. Ragna er metin fjórði sterkast liðaleik kvenna á mótinu en Claudia er númer sjö. Helgi, sem vann Raj Popat frá Wales í 1. umferð mætti Gert Hansen frá Danmörku í 16 manna úrsl vann fyrstu lotu 21:16, Helgi aðra lotu 21:17 en Da úrslitalotunni, 21:16. vs@mbl.is Ragna í átta manna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.