Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010 RolandEradze, þjálfari fyrstu- deildarliðs Stjörnunnar í handknattleik karla, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ vegna grófrar, óíþróttamanns- legrar framkomu í leik Stjörnunnar og ÍBV í meistaraflokki karla síðasta laugardag. Roland tekur út bann sitt í kvöld þegar Stjarnan sækir Víking heim í Víkina.    Þýska handknattleiksliðið Gross-wallstadt hefur sagt þjálfara liðsins, Michael Biegler, upp störf- um. Hann stýrði Grosswallstadt- liðinu í síðasta skipti á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn þegar liðið vann öruggan sigur á Íslands- meisturum Hauka og sló þá út úr EHF-keppninni. Með liði Grosswall- stadt leikur landsliðsmaðurinn Sverre Jakobsson en liðið er í 9. sæti þýsku 1. deildarinnar. Það hefur unnið sex leiki, tapað sex og gert eitt jafntefli.    Nær öruggt er að Cristiano Ron-aldo verði fjarri góðu gamni með Real Madrid gegn Valencia í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Portúgalinn gat ekki æft í gær vegna meiðsla í ökkla sem hann varð fyrir í niðurlægingu Real Madrid gegn Barcelona á Nou Camp á mánudagskvöldið. Ronaldo hefur byrjað inná í öllum 18 leikjum Ma- dridarliðsins, 13 í deildinni og fimm í Meistaradeildinni, og hefur skorað í þeim 18 mörk.    Landsliðsnefnd BlaksambandsÍslands hefur endurnýjað ráðn- ingarsamning við Apostol Apostolov vegna þjálfunar A-landsliðs kvenna. Tvö verkefni verða á árinu 2011. Í janúar tekur liðið þátt í móti í Lúx- emborg og í maí keppir það á Smá- þjóðaleikunum í Liechtenstein. Apostol Apostolov hefur verið landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna síðan 2008 og hefur landsliðsnefnd BLÍ nú endurnýjað samninginn fram í júní 2011.    Jóhann Helga-son, leik- maður Grindavík- ur, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við fé- lagið en samn- ingur hans var útrunninn. Jó- hann, sem er 26 ára, hefur verið einn af lykilmönnum Grindavíkur und- anfarin ár. Hann lék 21 leik í sumar. Hann hefur leikið með Grindavík síðan 2006 en lék áður með KA. Jó- hann hefur leikið 93 leiki með Grindavík og skorað 10 mörk. Hann hefur leikið einn með U21 árs lands- liðinu og fimm með U19. Fólk folk@mbl.is Á VELLINUM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sennilega felur fátt í sér meira skemmtanagildi og nautn en að ger- ast hetja síns liðs í mikilvægum og spennandi leik. Segja má að skyttan unga í liði Fram, Arnar Birkir Hálf- dánsson, hafi fengið að upplifa slíkt í gær þegar hann fór hamförum á lokakaflanum í tíu marka sigri Fram á HK í 9. umferð N1-deildar karla í handknattleik, 36:26. Með sigrinum komst Fram tveimur stig- um frá HK og er liðið í 2. sæti, tveimur stigum á eftir taplausum Akureyringum. Framarar höfðu náð sér í fimm marka forskot í fyrri hálfleiknum og haldið því framan af þeim seinni. En þá, þegar um korter var eftir af leiknum, virtist sem allt ætlaði að falla með gestunum úr HK. Róbert Aron Hostert hafði farið meiddur af velli, Andri Berg Haraldsson fékk að líta rauða spjaldið, Ólafur Bjarki Ragnarsson hafði tekið upp á því að skora (sem hann gerði ekki í fyrri hálfleik) og munurinn var kominn niður í eitt mark. En þá var komið að Arnars þætti Hálfdánssonar. Þessi 17 ára gamli leikmaður raðaði inn mörkum utan af velli þegar út- litið var orðið svo dökkt sem áður segir, og átti ríkan þátt í því að Framarar gátu fagnað vel og inni- lega í leikslok. Hetjuleg innkoma, svo ekki sé meira sagt, og gaman að sjá unga menn með stáltaugar láta til sín taka á ögurstundu. „Arnar Birkir átti þvílíka inn- komu. Hann skoraði hreinlega að vild og leysti sitt hlutverk bara frá- bærlega. Hann kom okkur yfir erf- iðasta hjallann þegar við vorum í vandræðum í sókninni,“ sagði Einar Jónsson, aðstoðarþjálfari Fram, eft- ir leikinn. Besti maðurinn sást ekki Textann hér að ofan má þó ekki skilja sem svo að Arnar Birkir hafi séð um HK-inga einn síns liðs. Framarar gátu gengið afar stoltir af velli enda spiluðu þeir frábæra vörn stærstan hluta leiksins með Magnús Stefánsson og Halldór Jó- hann Sigfússon í broddi fylkingar. Fyrrnefndur Ólafur Bjarki var kjörinn besti leikmaður Íslands- mótsins til þessa í vikunni, en hann sást varla í fyrri hálfleik. „Þetta var bara hörkuleikur lengst af. Við spiluðum mjög vel framan af en lentum í erfiðum kafla þarna í seinni hálfleik. Við rifum okkur svo upp úr því og kláruðum leikinn með stæl. Það var virkilega mikil barátta í mönnum og það að hafa náð að stöðva Ólaf Bjarka, einn af þremur bestu mönnum mótsins til þessa, sýnir bara hvers megnug þessi vörn er. HK-liðið er búið að skora ein- hver 35 mörk í flestum sínum leikj- um þannig að það er mjög vel gert að halda þeim í 26 mörkum. Við vorum frábærir í þessum leik,“ sagði Einar. Erlingur Richardson, þjálfari HK, tók í svipaðan streng. „Þeir voru bara betri í dag. Við náðum okkur ekki alveg á strik en komumst inn í þetta um tíma og hefð- um getað jafnað metin, og þá fannst manni þetta vera að snúast með okk- ur. En þetta fór á allt annan veg. Framarar voru bara miklu betri á öll- um sviðum í dag,“ sagði Erlingur. Rauða spjaldið fór tvívegis á loft í leiknum þegar þeir Andri Berg Har- aldsson og Vilhelm Gauti Berg- sveinsson voru reknir af velli. Andri Berg á að hafa slegið í andlit Ólafs Bjarka og Vilhelm Gauti braut á Arnari Birki í lokasókn leiksins. Brottrekstrarnir voru einkennandi fyrir hitann og lætin í leiknum, sem erfitt er að gera skil á prenti. Sjón er alltaf sögu ríkari. Sautján ára skytta sýndi stáltaugar á ögurstundu Morgunblaðið/Eggert Aðalhlutverk Andri Berg Haraldsson var í einu aðalhlutverkanna í leik Fram og HK í gær þar sem hann gerði sjö mörk en fékk svo að líta rauða spjaldið í seinni hálfleik þegar hann átti að hafa slegið til leikmanns HK.  Framarar einir í 2. sæti eftir 10 marka sigur á HK  Arnar Birkir gerði útslagið „Það er ennþá allt opið hjá mér núna. Ég sagði við GAIS að ég ætlaði að nýta mér þessa viku og næstu til að hugsa þessi mál, og taka svo ákvörðun,“ sagði knattspyrnukappinn Eyjólfur Héðinsson sem gæti verið á leið frá sænska úrvalsdeildarfélaginu GAIS eftir tæplega fjögurra ára veru hjá því. „Þeir hafa sýnt því mikinn áhuga á að halda mér sem er náttúrulega mjög gaman og ég útiloka það ekki að vera þarna áfram, en ég hef aðra möguleika og ætla að vega þá og meta. Það eru nokkrir misspennandi mögu- leikar í boði,“ sagði Eyjólfur sem segir áhugann aðallega koma frá félögum í Skandinavíu. Hann er þó ekki orðinn leiður á lífinu í Gautaborg: „Það væri samt gaman að prófa eitthvað nýtt.“ sindris@mbl.is Eyjólfur undir feldi Eyjólfur Héðinsson Norska knattspyrnuliðið Viking hefur gert Stefáni Gíslasyni tilboð en liðið er tilbúið að fá hann í sínar raðir frá Bröndby í Danmörku. Að því er fram kom í norska blaðinu Stavanger Af- tenblad hefur Arnór Guðjohnsen, umboðs- maður Stefáns, gert Viking gagntilboð að kröfu leikmannsins. Stefán á eitt og hálft ár eftir af samningi sín- um við Bröndby en hann hefur verið úti í kuld- anum hjá liðinu síðustu mánuðina. Hann var í láni hjá Viking síðastliðið sumar og þótti standa sig vel með norska liðinu. Stefán er á góðum launum hjá Bröndby og fær sem samsvarar um 55 milljónum ís- lenskra króna á ári. Stefán gerir sér grein fyrir því að hann muni lækka í launum gangi hann í raðir Viking en samningaviðræður um félagaskiptin verða áfram í gangi. gummih@mbl.is Stefán gerði gagntilboð Stefán Gíslason Íslensk ungmenni stóðu sig vel á alþjóðlegu júdómóti sem haldið var í Hilleröd í Dan- mörku um síðustu helgi. Íslendingar sendu um 20 keppendur til leiks og komu þeir frá fimm félögum, Júdófélagi Reykjavíkur, ÍR, Ármanni, Grindavík og KA. Íslendingar unnu tvenn gullverðlaun, Ingi Þór Kristjánsson, JR, varð hlutskarpastur í opnum flokki en hann vann átta af níu glímum sínum á mótinu. Þá vann Helga Hansdóttir úr KA sigur úr býtum í opnum flokki þar sem hún lagði meðal annars þyngri og stærri stúlku frá Þýskalandi. Þá hreppti íslenska júdófólkið fern silfurverðlaun og átta bronsverðlaun og því óhætt að segja að bjart sé framundan í jú- dóíþróttinni hér á landi. gummih@mbl.is Gott hjá júdómönnum Helga Hansdóttir Íþróttahús Fram, úrvalsdeild karla, N1 deildin, miðvikudaginn 1. desember 2010. Gangur leiksins: 4:2, 10:6, 13:9, 16:11, 18:13, 21:15, 23:17, 24:23, 32:24, 36:26. Mörk Fram: Andri Berg Haraldsson 7, Arnar Birkir Hálfdánsson 6/1, Einar Rafn Eiðsson 6/2, Haraldur Þorvarð- arson 4, Róbert Aron Hostert 4, Magnús Stefánsson 3, Halldór Jóhann Sigfússon 3, Matthías Daðason 3. Varin skot: Magnús Gunnar Erlends- son 17 (þar af 8 til mótherja). Utan vallar: 12 mínútur. Mörk HK: Ólafur Bjarki Ragnarsson 8/5, Daníel Berg Grétarsson 7, Bjarki Már Elísson 4/2, Atli Ævar Ingólfsson 4, Hörður Másson 2, Hákon Her- mannsson Bridde 1. Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 15/1 (þar af 4 til mótherja). Utan vallar: 10. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Áhorfendur: 300. Fram - HK 36:26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.