Morgunblaðið - 03.02.2011, Side 3

Morgunblaðið - 03.02.2011, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2011 Knattspyrnu-maðurinn Jón Guðni Fjólu- son skrifaði í gær undir nýjan samning við Fram sem gildir til ársloka 2013. Jón Guðni, sem er 21 árs og spilar með 21-árs landsliði Íslands, hafnaði á dögunum tilboði frá AEK í Grikk- landi en hann hefur verið til reynslu hjá Bayern München og PSV Eindhoven í vetur.    Christopher Samba, varnar-maðurinn sterki og fyrirliði Blackburn Rovers í ensku úrvals- deildinni, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2015. Samba, sem fór fram á að vera seld- ur frá félaginu eftir að Sam All- ardyce fyrrverandi knattspyrnu- stjóri liðsins var rekinn frá félaginu um miðjan desember síðastliðinn, hefur ákveðið að gleyma því og tryggja félaginu starfskrafta sína næstu 4 árin.    Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði21-árs landsliðsins í knatt- spyrnu, fékk langþráð tækifæri í byrjunarliði Mechelen í Belgíu í gærkvöld. Hann hefur hingað til að- eins komið inná hjá liðinu en spilaði allan leikinn í sigri gegn Kortrijk, 1:0.    Möguleikar Eggerts GunnþórsJónssonar og félaga í Hearts á að slást við Celtic og Rangers um skoska meistaratitilnn eru litlir eftir 1:0 tap gegn Rangers á Ibrox í gær- kvöld. Kyle Lafferty skoraði sigur- markið strax á 4. mínútu. Fólk sport@mbl.is g þegar Snæfell ttum líka í basli in sem eru í topp- eitt til leiks gegn þá getur farið illa. ngt fram í tím- amla tugga, mað- nu og undirbýr Ég geri mér samt m eftir að fara á bara á því þegar outube i verið heppnir ta tímabilið en Je- ð liðinu fyrir ára- mót meiddist og samningnum við hann var sagt upp. Þá rifti Brock Gillespie samningi við félagið áður en hann kom til landsins en hann átti að taka við af Kelly. „Ég veit ekki hvaða áhrif þetta er búið að hafa á hópinn en við erum líklega búnir að spila án Bandaríkjamanns meira en einn þriðja af mótinu. Ég er hinsvegar mjög stoltur af þeim sem hafa komið inní liðið og hvernig leikmennirnir hafa brugðist við. Þessi óvissa er slæm, við vorum komnir með annan leikmann en hann hætti við. Þetta tekur mikinn tíma og á meðan pappírsflóðið gengur í gegn þá getur alltaf eitthvað gerst eins og í tilfelli Gillespie. Þetta er ekki það skemmtilegasta sem maður gerir, að horfa á Youtube myndbönd allan daginn.“ Sá nýi er lítill og snöggur Grindvíkingar eru hinsvegar loksins bún- ir að tryggja sér nýjan erlendan leikmann sem kemur frá Tulane-háskólanum í Banda- ríkjunum. Hann heitir Kevin Sims og bindur Helgi góðar vonir við hann. „Þetta er algjör leikstjórnandi, lítill, snöggur og það var nokkuð sem okkur vantaði. Leikmann sem getur stjórnað okkur. Þetta er auðvitað allt- af happdrætti, þeir líta alltaf vel út á mynd- böndunum en spurningin er alltaf hvernig persónu þú færð.“ Sims er kominn til landsins og verður með í Breiðholtinu gegn ÍR. „Þetta er fínn og skarpur strákur og hann er kominn inní allt hjá okkur á mjög skömmum tíma.“ r upp eftir síðasta leik“ ld  Heil umferð leikin í úrvalsdeildinni Nýr Kevin Sims leikur sinn fyrsta leik með Grindvíkingum í kvöld þegar þeir mæta ÍR. ið við eiga nd- ð í m a. Þýskir handknattleiksmenn eru í sárum eftir slakan árangur lands- liðsins á nýafstöðnu heimsmeist- aramóti í Svíþjóð þar sem það hafnaði í 11. sæti. Það er slakasti árangur Þjóðverja frá upphafi að undanskildu heimsmeist- aramótinu 1997 þegar þeir náðu ekki að vinna sér keppnisrétt. Að- eins eru fjögur ár liðin síðan þýska landsliðið varð heimsmeist- ari. Heiner Brand landsliðsþjálfari hefur verið harðlega gagnrýndur. Hann er sagður staðnaður eftir 14 ár í sæti landsliðsþjálfara og hafi upp á fátt nýtt að bjóða. Brand, sem er með samning við þýska handknattleikssambandið fram til ársins 2013, hefur svarað fullum hálsi og segir að þýskir handknattleiksmenn séu einfald- lega ekki betri en raun ber vitni um nú um stundir. Þeir leiki margir hverjir aukahlutverk í sín- um liðum á meðan útlendingum fjölgi ár frá ári og þeim sé ætlað að bera lið sín uppi. Brand hefur lengi sagt útlendinga vera alltof marga í þýsku 1. deildinni og eft- ir að hafa verið harðlega gagn- rýndur síðustu daga hefur hann ítrekað skoðun sína um að kvóti verður settur á hversu marga út- lendinga hvert félag megi hafa. Forráðamenn stærstu félag- anna hafa vísað skoðunum og vangaveltum Brands á bug og sagt þær ekki vera lausn á þeim vanda landsliðsins. Benda þeir m.a. á að þegar árangur þýska landsliðsins var hvað slakastur 1989 þegar það féll niður í C- heimsmeistarakeppni eftir B- keppnina í Frakklandi, hafi hvert lið 1. deildar aðeins mátt hafa einn útlending innan sinna raða. iben@mbl.is Reuters Þjálfarinn Heiner Brand vill fækka erlendum leikmönnum í Þýskalandi. Skiptar skoðanir um kvóta  Brand vill færri útlendinga  Félögin segja það enga lausn Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ármann Smári Björnsson, Hornfirð- ingurinn hávaxni sem leikur með enska C-deildarliðinu Hartlepool, segir óvíst hvað taki við hjá sér eftir að tímabilinu á Englandi lýkur í vor. Hann útilokar ekki að spila á Íslandi í sumar en samningur hans við Hart- lepool rennur út eftir leiktíðina. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun varðandi framhaldið. Það er mögu- leiki á að ég framlengi samninginn við Hartlepool. Það hefur þó ekkert verið rætt við mig um það en þeir sem stýra félaginu eru frekar rólegir í tíðinni. Ég vil eðlilega spila meira en það er víst þjálfarinn sem ræður því,“ sagði Ármann Smári við Morg- unblaðið í gær. Ármann kom til Hartlepool frá norska liðinu Brann í ágúst 2009 en hann var í herbúðum Brann í þrjú eftir að hafa leikið með FH og áður Val en ferilinn hóf hann með Sindra á Hornafirði. Spurður hvort það komi til greina að spila á Íslandi í sumar sagði Ár- mann: „Ég er bara opinn fyrir öllu. Það kemur alveg til greina eins og hvað annað.“ Ármann Smári, sem er þrítugur, hefur komið við sögu í 16 leikjum Hartlepool í C-deildinni á tímabilinu en hefur aðeins þrívegis verið í byrj- unarliðinu. Ármann hefur ýmist spil- að í stöðu miðvarðar eða framherja í leikjum liðsins. „Ég æfi sem miðvörður en í nokkrum leikjum á tímabilinu hefur mér verið hent í framherjastöðuna þegar við höfum farið í þennan „kick and run“ bolta. Ármann og félagar hans komust á gott skrið undir lok ársins og náðu hæst upp í 6. sæti en illa hefur geng- ið hjá liðinu á nýju ári. Það hefur enn ekki fagnað sigri á árinu 2011 og er komið niður í 14. sæti. Liðið steinlá, 4:0, fyrir Oldham í fyrrakvöld en Ár- mann var ekki í leikmannahópi liðs- ins í þeim leik. gummih@mbl.is Ísland er í myndinni hjá Ármanni Smára  Með útrunninn samning hjá Hartle- pool í vor  Gæti leikið þar áfram Morgunblaðið/Árni Torfason England Ármann Smári Björnsson spilar með enska liðinu Hartlepool. veir iel- við ika g nig ekki r –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Skólahreysti þriðjudaginn 1. mars 2011. Skólahreysti er starfrækt í flestum grunnskólum landsins og í ár taka um 120 skólar þátt. Þetta er eitt af vinsælustu íþróttum sem grunnskólakrakkar á öllu landinu taka þátt í. Meðal efnis: Saga Skólahreystis. Fyrrum þátttakendur skólahreysti. Besti árangur í Skólahreysti. Þrautabrautin sem keppt er eftir. Undirbúningur fyrir keppnina. Góð ráð varðandi heilsu og hreyfingu frá þekktum íþróttamönnum. Stuðningsmenn. Aðstandendur keppninnar. Ásamt fullt af spennandi efni um Skólahreysti. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, fimmtudaginn 24. febrúar. Skólahreysti S É R B L A Ð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.