Ný saga - 01.01.1990, Side 21

Ný saga - 01.01.1990, Side 21
slík liðsemd geti komið að gagni, er nauðsynlegt að þeir fái flotamálaráðuneyt- inu til afnota flota- og flug- stöðvar. Ráðuneytið kynni utanríkisráðherranum þökk fyrir, ef hann vildi íhuga að bera þetta erindi upp við ríkisstjórn íslands.1" Sjóliðsforingjar höfðu metið hinar nýju aðstæður. Þeir sáu í hendi sér, að með tilstyrk þýska flughersins átti ofan- sjávarfloti Þriðja ríkisins nú greiðan aðgang að Noregi og gat sótt þaðan beint inn á opið Atlantshaf um sundin ofan við Bretlandseyjar. Ef hafnbannið á Þýskaland átti ekki að falla um sjálft sig, varð að loka þessum leiðum að út- hafinu. Það gátu Bretar ekki gert nema með því að koma sér upp flota- og flugbæki- stöðvum á íslandi. Bretastjórn hafði, eins og fyrr segir, séð sér hag í þessu, jafnvel á með- an hún vonaðist til að geta hrakið Þjóðverja burt frá Nor- egi. Breskt hernám hafði því vofað yfir íslandi frá 9. apríl, en eins og mál höfðu nú skip- ast var það orðið óhjákvæmi legt, svo framarlega sem ríkis- stjórn íslands synjaði Bretum um aðstöðu í landinu. Á nokkrum vikum hafði það gerst, að yfirráð Breta á Atl- antshafi virtust geta oltið á því, að þeir fengju hér fót- festu. „FORKURINN“ Þegar hér var komið sögu í apríllok 1940, hafði ríkisstjórn íslands hafnað tilmælum Breta um samstarf og bækistöðvar og lýst yfir því, að hún ætlaði að halda fast við hlutleysi." Utanríkisráðuneytið breska vænti þess engu að síður, að telja mætti Islendinga á að veita Bretum herstöðvar með samningi. íslendingar áttu alla innflutnings- og útflutnings- verslun sína undir náð Breta- stjórnar, og embættismenn í Lundúnum hugðust hagnýta sér þetta til að knýja fram her- stöðvakröfuna. Skyldi hún fram borin af væntanlegum sendiherra hans hátignar í Reykjavík, C. Howard Smith, sem sigla skyldi út til Islands með her manns. Breski flotinn var að undirbúa þennan leið- angur og var stefnt að því, að flotadeildin gæti siglt eigi síðar en 7. maí. Leiöangur þessi hlaut dulnefnið „forkurinn“ (Operation Fork).'2 ÖRLAGARÍKUR MÁNUDAGUR Á ríkisstjórnarfundi í Lundún- um mánudaginn 6. maí 1940 voru örlög íslands í ófriðnum endanlega ráðin. Winston Churchill flotamálaráðherra kvaddi sér hljóðs og lagði til, að ísland yrði hernumið án tafar. Hann hélt því fram, að varhugavert væri að láta sendiherrann fara bónleið að íslendingum. Þjóðverjar kynnu að hafa veður af þessu og gætu notað tækifærið til að setja her á land, meðan menn sætu að tali í Reykjavík. Enn yrðu Þjóðverjar því fyrri til og Bretar færu sömu ófarir á ís- landi og í Noregi. Æskilegast væri að hernema landið þegj- andi og hljóðalaust, síðan mætti ræða við landsmenn um samstarf. Utanríkisráðherrann, Halifax lávarður, treysti sér sýnilega ekki til að malda í móinn, jorátt fyrir ráðagerðir undir- manna sinna. Hann viður- kenndi, að vísast væri, að Is- lendingar harðneituðu að semja við Howard Smith, og færi svo, yrði landganga breska herliðsins þeim enn ó- geðfelldari en ella. Fyrirvara- laust liernám kynni „að leiða til formlegra mótmæla, en þegar frá liöi yröi það mönn- um þolanlegra". Að j^essum umræðum loknum, samþykkti Bretastjórn tillögu Churchills.13 Bretar dirfðust ekki lengur að eiga neitt á hættu, svo miklir sem hernaðarhagsmunir þeirra voru. Sama dag og Bretastjórn tók Breskur herilokkur á hernámsdaginn. í baksýn Stjórnarráðshúsið og stytta af Hannesi Hafstein. 19
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.