Ný saga - 01.01.1990, Síða 51

Ný saga - 01.01.1990, Síða 51
ROMM ER SU TAUG á þann hóp sem flutti til Reykjavíkur utan af landi á sjöunda og áttunda áratugn- um. Vissulega fluttu margir til að dvelja hjá börnum sínum eða í nánd við þau. Aðrir komu til þess að njóta um- önnunar og þjónustu á stofn- unum af ýmsu tagi sem ekki var boðið upp á í dreifbýlinu. Enn aðrir treystu sér ekki til að stunda erfiðisvinnu úti á landi vegna aldurs eða heilsu- brests og sóttu til borgarinnar af þeim sökum. í slíkum til- vikum var mikilvægt fyrir fólk að eiga vandamenn í borg- inni, aðstandendur sem höfðu jafnvel flutt þangað um og upp úr miöri öldinni. Peir þættir í starfsemi átt- hagafélaganna sem áttu enn miklu fylgi að fagna fram á ní- unda áratuginn voru jólatrés- fagnaðir barna, kaffisamsæti eldra fólksins og félagslíf sem byggði á öðrum sjónarmiðum en ætterni, búsetu eða mægð- um. Dæmi um hið síðasttalda var „Bridgedeild Breiðfirðinga- félagsins" en hún var opnuð upp á gátt fyrir öðrum en Breiðfirðingum og átti fátt annað sameiginlegt með félag- inu en nafnið.'” En jólaböllin áttu jafnvel undir högg að sækja á níunda áratugnum hjá sumum félögum. Sem svar við |:>ví tóku Strandamenn og Breiðfiröingar það til ráðs að standa sameiginlega að slíkri skemmtun vegna þess að að- sókn að slíkum samkomum hafði farið minnkandi hjá báð- um félögunum. Af þeim sök- um var þessi nýbreytni á- nægjuleg og „báðum félögun- um örugglega styrkur fjárhags- lega."50 Sameiginlegt skemmt- anahald var ekki alveg nýtt af nálinni, Strandamenn og Hún- vetningar stóðu t.d. saman að mannfundum undir lok sjö- unda áratugar.51 Kaffisam- kvæmi gamla fólksins, sem að jafnaði voru haldin einu sinni á ári, voru hvað best sóttu samkundur átthagafélaganna er á leið. Par fjölgaði fólki fremur en fækkaði. „Alltaf er fullt hús á þessum samkom- um,“ stóð í ársriti Breiðfirð- ingafélagsins árið 1968. „Öldruðum Breiðfirðingum fækkar ekki og allir kunna að meta þessar hljóðlátu hátíða- stundir...“ harna hittist gamla fólkið, spjallaði saman yfir kaffibollum og brauði, rifjaði upp gamlar minningar, hitti vini og kunningja sem það haföi stundum ekki séð lengi, Breidfiröingar gerðu sér glaöan dag á 30 ára afmæli Breiöfiröingafélgsins 1968. Þá ávarpaöi m.a. sr. Árelíus Níelsson hátíðargesti en hann varlengi í forystusveit félagsins. Þeir þættir í starfsemi átthagafélaganna sem áttu enn miklu fylgi aö fagna fram á níunda áratuginn voru jóla- trésfagnaðir barna, kaffisamsæti eldra fólksins og félagslíf sem byggði á öðrum sjónarmiöum en ætt- erni, búsetu eöa mægöum. Sú kynsióö sem bast samtökum í átthagafé- iögunum varö að sætta sig viö þaö aö meö breyttum iifnaöar- háttum unga fólksins í Reykjavík rofnuöu tengslin viö heimili, umhverfi, oröaforöa, áhöld og tæki gamla timans, tengslin milli fortíöar, nútíöar og framtíöar. talaði við Breiðfirðinga, sem ekki höfðu áður orðið á vegi. „Líklega eru þessar stundir há- markið í starfsemi Breiðfirð- ingafélagsins. Dulardjúp þess innsta, sem átthagaástin leynir, ljúkast upp og viðkvæmir strengir bærast angurblítt í hverju vakandi hjarta.“52 Kaffi- dagarnir spegluðu betur en margt annað þróun átthagafé- laganna. Eftir því sem þau elt- ust hækkaði meðalaldur fé- lagsmanna. Afkomendurnir, unga fólkið, fylltu ekki raðirn- ar. Verulegur hluti starfandi fólks innan átthagafélaganna eftir 1960 var kynslóð hins liðna tíma. Öll átthagafélög, nema Breiðfirðingafélagið, fylgdu annaðhvort sýslumörk- um eða kenndu sig við kaup- staði eða þorp úti um land. Þegar ungt og uppvaxandi fólk, sem ekki var nákunnugt innbyrðis en átti ættir að rekja til ákveðinna byggðarlaga sem það þekkti jafnvel lítt til, fyllti flokk höfuðborgarbúa, máðust út hugtök eins og „Arnesing- ur“, „Sauðkræklingur", „Dal- víkingur" eða „Dalamaður", svo dæmi séu nefnd. Unga kynslóðin kenndi sig ekki við heimahaga foreldranna. Sú kynslóð sem bast samtökum í átthagafélögunum varð að sætta sig við það að með breyttum lifnaðarháttum unga fólksins í Reykjavík rofnuðu tengslin við heimili, umhverfi, orðaforða, áhöld og tæki gamla tímans, tengslin milli fortíðar, nútíðar og framtíðar. Erfitt reyndist að sameina hin- ar sundruðu kynslóðir sveitar og borgar. Niðjar þeirra sem fluttu til bæjarins um miðja öldina var fólk lramtíðarinnar - borgarinnar. „HEIMSBORGARINN" Alls staðar var kvartað yfir því að illa gengi að fá æskufólkið til starfa, endurnýjun í félög- unum skorti. Tímarnir voru 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.