Ný saga - 01.01.1990, Page 69

Ný saga - 01.01.1990, Page 69
SOSIALISMI I ANDA FRJALSHYGGJU? yrði til áframhaldandi þróunar. Var mælt með því að ríkis- valdið styddi íbúa þessara þorpa til að flytjast til annarra og lífvænlegri staða. Tók greinarhöfundur Snæfellsnes sem dærni um þetta og hvatti eindregið til þess að uppbygg- ingu sjávarútvegs og fisk- vinnslu yrði beint að einum stað þar sem hafnarskilyrði væru best. Þannig yrði tryggt að fjárfesting i frystihúsum, samgöngumannvirkjum o.s.frv. myndi nýtast.26 Hér var um „stórbæjastefnu" að ræða og þótt sósíalistar teldu að gera þyrfti áætlun um uppbyggingu á landsbyggðinni í anda sósí- alismanns þá var hún engu að síður réttlætt með arðsemis- kröfunni. Þá fór fjarri að sósí- alistar teldu rekstrarformið skipta sköpum varðandi upp- byggingu sjávarútvegsins og mætti nefna tillögur flokksins í bæjarstjórn Reykjavíkur sem dærni þar um, en hann lagði til að bærinn keypti svonefnda „Svíþjóðarbáta" en ýtti jafn- framt undir það að einstak- lingar og félög legðu út í út- gerð.27 Því má segja að ólikt stefnunni í innflutnings og iðnaðarmálum, þá hafi stefna flokksins í sjávarútvegsmálum byggst á hugmyndum um „blandað“ hagkerfi. Kannski er þetta óþarflega hátíðlegt orðalag og réttara að tala um að tilgangurinn helgaði með- alið, þ.e. að mestu máli skipti að útvega skip. Á hinn bóginn er ljóst að is- lenskir sósíalistar litu á þróun sjávarútvegsins í víðu sam- hengi. Þeir sáu fyrir sér við- tækt alþjóölegt samstarf í efnahagsmálum að styrjöldinni lokinni þar sem sérhver þjóð myndi einbeita sér að fram- leiðslu þeirra vara sem hag- kvæmast þætti að framleiða í viðkomandi landi. Að þeirra mati var sjávarútvegurinn sá atvinnuvegur sem best stæðist alþjóðlegan samanburð um hagkvæmni og því ættu þjóðir heimsins að viðurkenna rétt íslendinga til að sitja að nýt- ingu fiskimiðanna við landið. Á sama hátt ættu íslendingar að viðurkenna samsvarandi rétt annnarra þjóða til fram- leiðslu iðnaðarvara og falla frá öllum hugmyndum um vernd- artolla. Hér er vísað til greinar Áka Jakobssonar, „ísland og þjóðasamfélag Evrópu“, sem fjallaði um framtíðarþróun ís- lensks samfélags að stríði loknu og þar lagði hann höf- uðáherslu á Evrópumarkað- inn.28 Hvað sem þvi líður var hér um afar athyglisverðar vangaveltur að ræða, t.a.m. það að krafa sósíalista um yf- irráðin yfir fiskimiðunum var upphaflega byggð á alþjóða- hyggju, en ekki þjóðernis- hyggju. Eins má benda á að þótt Áki gerði ráð fyrir því að viðskipti þjóðanna yrðu reist á samningum en ekki á frjáls- um viðskiptum þá byggðust rök hans fyrir alþjóðlegri verkaskiptingu á þeirri kenn- ingu sem Ricardo lagði fram á öndverðri 19- öld um sam- bærilegan kostnað („the the- ory of comparative advanta- ge“).29 Þetta sýnir enn og aftur hve islenskir sósíalistar voru miklir alþjóðasinnar á þessum tima og hve hugmyndir þeirra voru skyldar kenningum frjáls- hyggjumanna. IILVÍSANIR 1. Vilhjálmur Hjálmarsson: Eysteinti í Eldlínu stjórnmálanna, Rv. 1983, bls. 294-295. Ttminn, 3. mars 1942. 2. Morgunblaðiö, 3. og 5. september 1941. Um þetta leyti lýsti blaðið sig andvígt lögbindingu kaupsins en sagði að hugmyndin að baki lögunum væri góð. 3. Alþýðublaðíb, 6. júní 1943. Einnig mætti benda á grein Sigurðar Jónassonar í Alþýðublaðinu 10. apríl 1943 þar sem hann varaði sterklega við vexti Reykjavíkur og hvatti til stórfellds landnáms í dreifbýli. 4. Nýtt dagblaö, 31. júlí 1941. 5. Sigurður Guðmundsson: „Sigurhorfur", Réttur 28(1943) bls.11-12. 6. Þjóðviljinn, 11. júlí 1943. 7. Ólafur Ásgerisson: Iðnbylting bugar- farsins. Átök um atvinnuþróun á íslandi 1900-1940, Rv. 1988, bls. 144. 8. Laquer, Walter, Etirope since Hitler, London 1970, bls. 119. 9. Hunt, R.N. Carew: The Theory and Practice of Communism, Harmonds- worth 1978, bls. 81 og 94. 10. Sama rit, bls. 204-208. 11. Þjóðviljinn, 19. febrúar 1941. 12. Alþingistíðindi B 1941,714. 13. AlþingistíðindiB 1940, 71. 14. Þjóðviljinn, 29. júní 1944. 15. Þjóðviljinn, 4. júlí 1944. 16. Þjóðviljinn, 14. febrúar 1943. 17. Alþingistíðindi 13 1941, 714. 18. Þjóðviljinn, 5. janúar 1943. 19. Alþý>ðublaðvb, 25. júní 1943. 20. Alþingistíðindi B 1940. Fyrra þing, 36- 37. 21. Alþingistíðindi B 1940. Fyrra þing, 71- 72. hess skal getið að tilefnið til á- deilu sósíalistanna varð það að Siglfirðingum hafði verið neitað um leyfi til byggingar síldarbræðslu, sbr. Alþingistíðindi 13 1940. Fyrra þing, 36. 22. Hunt, R.N. Carew: The Theory and Practice of Communism, bls. 197. Sbr. og Brynjólfur Bjarnason: „Hvaö er framundan", Réttur 23(1938), bls. 114- 115. 23. Þjóðviljinn, 16. júlí 1944. 24. Þjóðviljinn, 26. mars 1941. 25. Þjóðviljinn, 21. nóvember 1943. 26. Þjóðviljinn, 16. júlí 1943. 27. Þjóðviljinn, 8. febrúar 1944. 28. Þjóðviljinn, 17. júní 1944. 29. Barber, William J.: A History of Economic Thought, New York 1981. Hér var um „stórbæja- stefnu“ aö ræða og þótt sósíalistar teldu að gera þyrfti áætlun um uppbyggingu á landsbyggðinni í anda sósíalismanns þá var hún engu að síður réttlætt með arð- semiskröfunni. 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.