Ný saga - 01.01.1995, Page 102
Hvíta stríðið
Mynd 5.
Hvítliðar ráðast inn
í Suðurgötu 14.
í baksýn eru
byggingarnar
í Landakoti.
Mynd 6. Á þessari
mynd sem tekin
er í garðinum á
Suðurgötu 14 sést
hvar Páll Árnason og
Sigurður Gíslason
lögregluþjónar færa
Ólaf Friðriksson á
brott. Ólafur er sá
eini sem ekki er
með höfuðfat.
ur hér í útbyggingunni voru ræstar í snatri og
þangað fluttar stangdýnur, borð, stólar og
legubekkir og allur viðbúnaður hafður til að
veita viðtöku sárum mönnum. í Góðtempl-
arahúsinu hafði einnig verið settur upp
bráðabirgðaspítali. Ohug miklum og ógn sló á
alla bæjarbúa. Mikils þótti nú við þurfa. Fá-
einir menn fóru svo með „lögreglustjóra“,
brutu upp húsið og tóku Olaf, konu hans og
rússneska drenginn og nokkra unglinga sem
þar voru og var engin mótstaða veitt. Konan
og drengurinn á Franska spítalann en hinir í
tugthúsið í járnum. Svo var verið að smala all-
an daginn á bifreiðum og flytja á sama stað
þeim sem víst þótti að vera mundu ákafastir
fylgismenn Ólafs, leitað að þeim inni í húsum
manna, njósnarar snuðrandi um allt og eru
víst enn, vopnaðir verðir settir kvöldinu áður
og þann dag til kvölds og kannski lengur við
báða bankana - einnig voru verðir við ráð-
herrahúsið á Hverfisgötu, búðir þær sem
byssur fást í og víðar. Þeir voru með hvítan
borða um vinstri handlegg og létu mikið yfir
sér; slíkum piltum sást bregða fyrir fram á
100