Ný saga - 01.01.2001, Page 11

Ný saga - 01.01.2001, Page 11
Forsetinn og utanríkisstefnan 5) „Við viljum blönduð hjónabönd. Ég er með í huga þær þúsundir bandarískra hermanna, sem kvænst hafa íslenskum konum og setjast að á íslandi eftir stríð, ef þið samþykkið slíkt. Það er allt í góðu Iagi; ég mótmæli því alls ekki. Okkur líkar það vel og vonumst til að sum barna þeirra muni síðan koma hingað og verða hluti af bandarísku þjóðinni.“ 6) Gagnkvæmur vilji til samninga skiptir mestu í allri samningsgerð á milli landanna. Þegar náðst hefur samkomulag, eins og nú er verið að reyna, þarf öldungadeild Banda- n'kjaþings að ljalla um það. Vonandi mun deildin samþykkja heildarsamning um við- skipti og vináttu landanna tveggja en ekki bregða fæti fyrir samningana vegna óvildar í garð Bandaríkjaforseta. Forseti Islands þakkaði fyrir ræðu Roose- velts og flutti svarræðu sem draga má saman með eftirfarandi hætli:24 1) íslendingar eru mjög þakklátir Banda- ríkjaforseta, þinginu og bandarísku þjóðinni fyrir stuðninginn við Iýðveldisstofnun og kosningu fyrsta forseta íslands. 2) Ekki skal tekin afstaða til þess hvort ís- land tilheyrir Evrópu eða Vesturheimi. 3) Fyrir þremur árum óttuðust íslendingar inn- rás Þjóðverja. Þess vegna báðu ríkisstjórn Is- lands og Alþingi Bandaríkin um að taka að sér hervemd Islands í þágu heimsálfunnar, Ameríku. 4) íslenska þjóðin og forystumenn hennar bera fullt traust til bandarísku þjóðarinnar og ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Báðar þjóðirnar trúa á lýðræði og sammannleg gildi. 5) Framkoma bandarískra hermanna á ís- landi hefur verið óaðfinnanleg. Þess vegna berum við enn meiri virðingu en áður fyrir Bandaríkjaniönnum. 6) Vonandi munu viðskipti milli landanna aukast. íslendingar þurfa að flytja mikið inn frá Bandaríkjunum, þar á meðal vélar og efni til landbúnaðar. íslendingar verða hins vegar að auka útflutning til Bandaríkjanna. 7) Margir gætu haft efasemdir um að stór- veldi eins og Bandaríkin séu að senda her- menn sína til að verja annað land, án þess að vera urn það beðið. Á íslandi hefur þetta gengið að óskum. Um nóttina gistu Sveinn og Vilhjálmur í Hvíta húsinu. Daginn eftir lluttu þeir sig yfir í Blair House sem er á lóð Hvíta hússins og einkum notað fyrir erlenda gesti forsetans. Næstu tvo dagana dvaldi forseti Islands og fylgdarlið í Washingtonborg. Á laugardags- morgninum héldu Sveinn Björnsson og Vil- hjálmur Þór blaðamannafund. Utanríkisráð- herrann sagði meðal annars að íslenska ríkis- stjórnin væri þess fullviss að Bandaríkin myndu standa við herverndarsamninginn frá 1941 og kalla herliðið á íslandi heim um leið og stríðinu lyki. Aðspurður sagðist forsetinn ekki hafa sett fram slíka kröfu í viðræðum sínum við forseta Bandaríkjanna.25 Sunnudaginn 27. ágúst fór forseti Islands ásamt föruneyti til New York borgar. Þar bjuggu íslendingarnir á einu fínasta hótelinu, Waldorf-Astoria, í boði Bandaríkjastjórnar. Mynd 8. Sveinn Björnsson kemur til fundar við Roosevelt Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu. Við hlið forsetans stendur Anna Boettiger dóttir hans. Mynd 9. Kvöldverðarboð sem Helgi R Briem sendiherra hélt á Waldorf-Astoria hótelinu í New York til heiðurs forseta Islands. 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.