Siglfirðingur - 30.05.1970, Blaðsíða 1
ri □dihuciid
uLrmulHbUn
Togskip h.f.
Nýtt útgerðaríyrirtæki á Siglufirði
2. töluiblað
Málgagn Sjálfstæðismanna í Siglufirði
Laugardagiur 30. maí 1970
41. árgangur.
Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri :
Kosið er «m hagsmoni Siglnfjarðar
Siglufjörður ætti að vera „Vestmannaeyjar Norðurlands"
TUefni iþess, að ég rita
þessar línur, er fyrst og
fremst skrif Mjölnis að und-
anfömu, en skætingstónninn
í umræðum kommúnista um
atvinnumál Siglufjarðar er
með þeim hættí, að ekki
verður hjá því komizt að
vekja á þvi athygli og árás-
irnar á bæjarstjórann svo
ódrengilegar, að ég fæ ekki
orða bundizt.
Satt að segja hefði mátt
ætla, að erfiðleikamir í sigl-
firzkum atvinnumálum væra
með þeim hættí, að öll öfl
ættu að leggjast á eitt um
að greiða fram úr vandan-
um. Að minnsta kosti ættí
ekki að hafa lífshagsmuna-
mál Siglufjarðar í flimting-
um, en kommúnistar era
samir við sig. Þeir hafa ekk-
ert lært og engu gleymt.
Ég hef náin kynni af störf-
um Stefáns Friðbjamarson-
ar, bæjarstjóra, því að
vart líður sá dagur, að við
tölum ekki saman um ein-
hver siglfirzk hagsmunamál,
sem greiða þarf fram úr.
Og ég fullyrði, að Stefán
Friðbjamarson hefur gegnt
störfum bæjarstjóra af mik-
illi prýði, og honum hefur
tekizt að leysa flestan vanda
sem að hefur steðjað. Og
vissulega er það rétt, að
vandi Sigluf jarðar hefur ver-
ið mikill, því að tekjur hans
hafa ekki numið nema sem
svarar % þess, sem aðrir
sambærilegir bæir hafa. Ste-
fán Friðbjamarson nýtur
mikilla vinsælda og trausts
ráðamanna syðra, og ekki
sízt þess vegna hefur hon-
um tekizt að ráða fram úr
erfiðleikunum.
Þau mái em líka mörg,
sem unnið hefur verið að og
verið er að vinna að, til að
rétta Sigluf jörð við og skapa
hér blómlegt atvinnulíf, sem
vissulega er hægt, ef menn
hafa vilja og þor, ekki sízt
á sviði sjávarútvegsins, því
að Siglufjörður ætti að vera
„Vestmannaeyjar Norður-
landsins“. Hér ættí útgerðin
að vera öflugust. Hér er
bezta höfnin, stytzt á miðin
og aðstaða öll í landi til að
stórefla útgerð. Á bæjar-
stjómarfundi í jan. í fyrra
lét ég þessa skoðxm í ljós
og lagði tíl, að unnið yrði að
stofnun öflugs útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækis, sem
keypti 2—3 fiskiskip og Isa-
fold. Annar bæjarfulltrúi
kommúnista gerði grín að
þessum tíllögum, og vafa-
laust hefur hann og sálufé-
lagar hans gert það, sem í
þeirra valdi hefur staðið, til
að koma í veg fyrir, að sam-
staða næðist í bænum um
uppbyggingu atvinnulífs, líkt
og t. d. gerðist á Hofsósi,
þegar í því litla byggðarlagi
var safnað saman tveim
og hálfri miiljón króna í
hlutafé.
Niðurstaðan varð því mið-
ur sú, að ekki tókst að
þessu sinni að sameina kraft
ana, en hins vegar tókst að
útvega nægilegt fé til þess,
að ísafoldarmenn gætu end-
urnýjað frystihúsið og hafið
þar rekstur. Áfram var svo
junnið að stofmm útgerðar-
jfélags, sem nú hefur borið
! þann gleðilega árangur, að
Togskip hefur fest kaup á
fyrsta skipi sínu. Ef útgerð
þess gengur að óskum, mun
bæði þetta félag og aðrir
útgerðaraðilar gera fleiri
skip út frá Siglufirði og
sannfærast um, að hér sé
hinn æskilegastí útgerðar-
staður norðanlands.
Vissulega hefur útgerð
smærri bátanna, sem nú
fjölgar óðum, líka verulega
þýðingu. Þar er einkafram-
takið að verki, sem svo til-
finnanlega hefur skort í
Siglufirði.
Að sjálfsögðu verður að
reka með fullum þróttí þau
atvinnufyrirtæki ríkisins,
sem á staðnum era, og sam-
vinna bæjarins og síldar-
verksmiðjauna um útgerð
er einnig knýjandi nauðsyn,
enda mun nú tryggt, að
þessir aðilar fái nýtt skip.
Þá var það eitt af fyrstu
verkum Jóhanns Hafsteins,
eftír að Siglóverksmiðjan
var lögð undir hans ráðu-
neytí, að ákveða að tryggja
fjárhag hennar og aðskilja
jreksturinn frá rekstri Síld-
I arverksmiðjanna, og hafði
hann um þetta fullt samráð
við Stefán bæjarstjóra.
. .En þótt ríkisfyrirtækin
verði rekin af þróttí, er al-
gjör nauðsyn að efla einka-
rekstur, bæði tíl að tryggja
fjárhag bæjarins og vekja
þá bjartsýni og dugnað, sem
nægir til þess að Sigluf jörð-
ur eflist á ný. I því efni er
ýmislegt í athugun, sem ekki
er tímabært að skýra frá.
Þó vita menn um hugmynd-
ir Vigfúsar Friðjónssonar
og endurbygging Slippsins
á líka að geta haft tals-
verða þýðingu.
Ef boranimar í Skútudal
nú næstu vikumar bera tíl-
ætlaðan árangur, á líka að
vera unnt að hrinda hita-
veituframkvæmdum af stokk
unum, jafnvel að byrja á
þeim þegar á þessu ári.
| I Siglufirði vantar meira
einkaframtak. Sem betur fer
'er það nú að hefjast — og
liálfnað er verk þá hafið er.
j Afturhaldsmennimir í komm
únistaflokknum hafa gert
allt, sem í þeirra valdi hefur
Framhald á 4. síðu
Þann 18. maí 1970 var
stofnað útgerðarfélag hér á
Siglufirði, Togskip h. f. —
Stofnendur félagsins eru 20
—30 talsins, og er hlutafé
félagsins ákveðið 4 millj. kr.
með heimild fyrir stjóm
þess til að auka það í allt að
5V2 millj. kr. Þegar þetta er
ritað (27.5.) nemur innborg-
að hlutafé tæpum 5 millj.
kr. Tilgangur félagsins er út-
gerð fiskiskipa, vinnsla fiskj-
ar og annar Skyldur rekst-
ur. í stjóm félagsins em:
Enútur Jónsson, formaður,
Sveinbjörn Tómasson, Sverr-
ir iSveinsson, Þórhallur
Björnsson og Sigurður
Finnsson.
Er Sigurður stærsti hlut-
hafinn, og hefur stjóm fé-
lagsins ráðið hann sem
framkvæmdastjóra þess.
I janúarlok á yfirstand-
andi ári hófust á vegum
undirbúningsstjórnar félags-
ins samningsumleitanir um
kaup á rúml. 3ja ára gömlu
togskipi, 550 tonna, sem
boðið var til sölu í V-Þýzka-
landi. Samtímis þurfti að
leysa ýmis vandamál vegna
lánaútvegana og lánsabyrgða
en fyrir aðstoð velviljaðra
manna hefur nú tekizt að
fá fyrirgreiðslu f járfestingar
lánasjóða á Islandi og banka
í V-Þýzkalandi, svo að kleift
er að ganga frá kaupum á
skipinu, en kaupverð þess
er um 50 millj. kr.
Hér er um iað ræða skut-
byggt togskip án rennu,
smíðað í Hollandi, skrásett
21.10. 1966. Lengd skipsins
er 49,15 m. og breidd þess
8,52 m. Stærð fiskilestar er
410 rúmmetrar. Aðalaflvél
er af gerðinni Deutz, 1200
ha. dieselvél, en auk hennar
eru í skipinu 4 hjálparvélar
með samtals 635 hö. Elds-
neytisgeymar rúma 106 tonn
og ganghraði skipsins er 13
hnútar. Hluti fiskilestar er
frystilest, og igeta frystitæki
afkastað all't að 5 tonnum af
hraðfrystingu á sólarhring.
Þá er Skipið búið fullkomn-
um sighngar- og fiskileitar-
tækjum, auk fjölbreytilegs
veiðitækjabúnaðar, sem til-
heyrir þeirri tækni, sem við-
höfð er við veiðar á þessari
gerð togskipa.
1 flestum gerðum er hér
um að ræða sams konar
skip og útgerðarfélag SR og
Siglufj.kaupstaður hyggst
láta smíða hér innanlands.
Verður rejmslan af útgerð
Togskips h.f. því einkar lær-
dómsrík varðandi tilhögun
þeirrar nýsmíði. — Stefnt
er að því, að Sigurður
Finnsson, framkvstj. fari til
Þýzkalands nú um mánaða-
mótin til að ganga endan-
lega frá samningum um
skipakaupin, en skipið er til
afhendingar, frágengið úr
slipp, um 4 vikuim eftir und-
irskrift samninga. Ef allt
fer að vonum, ætti skipið að
koma til Siglufjarðar í byrj-
un júlímánaðar. Skipinu hef-
ur enn ekki verið vahð nafn.
Togskipið Sigurður Bjarnason keypt
Á fundi bæjarstjórnar
Siglufjarðar s. 1. þriðjudag
var samþ. bæjarábyrgð til
handa hlutafél. Höfn h. f.,
Siglufirði, að uppihæð kr.
6.5 milljónir, vegna kaupa á
togskipinu Sigurði Bjarna-
syni frá Akureyri hingað til
Siglufjarðar. Þá mun At-
vinnujöfnunarsjóður lána 2.2
millj. vegna þessara kaupa.
Hvorttveggja framangreind
fyrirgreiðsla er háð vissum
skilyrðum, svo sem að hluta-
'fé viðkomandi hlutafélags
Iverði ekki undir 2 milljónir
króna.
Með þessari fyrirgreiðslu
eru kaup á þessu 250 itonna
togskipi ráðin, en það mun
igert út til hráefnisöflunar
fyrir frystihúsið Isafold,
sem búið hefur við hráefnis-
skort nú um sinn. Ásamt
kaupum á 550 lesta togskipi
ifrá V-Þýzkalandi og nýsmíði
jsiglufjarðarkaupstaðar og
SR á 450 tonna skuttogara,
er stigið myndarlegt skref í
, aukningu siglf irzks skipa-
Stóls og til atvinnuaukning-
ar í frystiiðnaði bæjarins.
Áð þessum málum hefur
undanfarið verið unnið af á-
hugamönnum, sem að greind
um hlutafélöigum standa, í
samráði við bæjarstjórn og
! atvinnumálanefnd Siglufjarð
I arkaupstaðar, og með fyrir-
^ greiðslu atvinnumálanefndar
ríkisins og atvinnujöfnunar-
sjóðs, á grundvelli markaðr-
ar stefnu Norðurlandsáæ’tl-
unar um atvinnuuppbygg-
ingu á Norðurlandi. Má segja
að þessar lyktir séu tákn-
rænn árangur af því bæjar-
málasamstarfi, sem verið
hefur í bæjarstjórn Siglu-
fjarðar á líðandi kjörtíma-
bili, og ætti að vera fagn-
aðarefni öllum Siglfirðing-
um.