Morgunblaðið - 02.06.2011, Síða 10
„Baltasar og Gerpluhópurinn slógu
í gegn í Bergen um síðustu helgi“
HM íSvíþjóð
m
SunnudagsMogginnFréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað
Rætt við Guðjón Val, Óskar
Bjarna og Gunnar Magnússon
um frábæran árangur til þessa | 13Á heim
23. janúar 2011
Th
m
SunnudagsMogginnFréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað
13. mars 2011
Tengsl
14
Fréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað
SunnudagsMogginn
m
9. janúar 2011
Arnar Eggert Thoroddsen var á staðnum.
Lestu um það í næsta Sunnudagsmogga.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Feðgin Frode skólastjóri mætti að sjálfsögðu með dóttur sína Karen Lilly.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við erum að hugsa um aðgera opið hús að föstum liðí skólastarfinu hjá okkur ávorin, því það lukkaðist svo
vel. Það var hálfgerð útilegu-
stemning, krakkarnir vöfðu meðal
annars brauðdeigi á trjágreinar og
bökuðu yfir opnum eldi,“ segir Frode
F. Jakobsen, skólastjóri Suðurhlíð-
arskóla, um skemmtilegan dag í skól-
anum síðastliðinn sunnudag.
„Við erum svo vel staðsett, erum
með dásamlegan lund hér hinum
megin við götuna, sem við höfum af-
not af. Sumir kennararnir eru mjög
duglegir að hafa þar útikennslu þegar
árstíð og veður leyfir, heimilisfræðin
fer stundum út og sama er að segja
um smíðakennsluna en kennarinn,
Valdór Bóasson, er mikill tálgunar-
snillingur. Næsta haust verður vígð-
ur grenndarskógur tiltölulega nálægt
okkur hér í Öskjuhlíðinni og við kom-
um til með að nýta okkur það í skóla-
starfinu.“
Skólinn er opinn öllum
Suðurhlíðarskóli hefur verið
starfræktur í 21 ár og þeir sem hafa
starfað lengst þar hafa verið í 15-18
ár og einn kennari hefur unnið þar frá
upphafi. „Þetta er sjálfstætt starfandi
skóli, rekinn af aðventistum á Íslandi.
En hann er opinn öllum, við erum
með nemendur úr ýmsum trúfélögum
og af öllu höfuðborgarsvæðinu, frá
Mosfellsbæ til Hafnarfjarðar. Það
sem er sérstakt við Suðurhlíðarskóla
er að hann er kristinn sjálfstætt
starfandi skóli. Hér er að sjálfsögðu
trúarbragðakennsla eins og í öllum
skólum, en kristna trúin hefur þau
áhrif á skólastarfið að við byrjum allt-
af með morgunbæn inni á kennara-
stofu og allir kennararnir mæta
þangað þó þeir séu fæstir aðventistar.
Í kennslustofunum hefst dagurinn
líka á því að kennarar biðja með
krökkunum eða lesa eitthvað kristi-
legt fyrir þau. Einu sinni í viku, á
mánudagsmorgnum, er alltaf sameig-
inleg bæn á sal.“
Kærleiksrík gildi
Frode segir að kristin gildi liti að
sjálfsögðu viðhorf þeirra sem þar
vinna, bæði til starfsins og til krakk-
anna. „Við höldum í heiðri gullnu
regluna um að allt sem þér viljið að
Allt sem þér viljið að
aðrir menn gjöri yður …
Suðurhlíðarskóli stendur í suðurhlíðum Öskjuhlíðar og þar var á dögunum opið hús með öllu því skemmti-
lega sem því fylgir. Áherslan á náungakærleikann er í fyrirrúmi í þessum skóla þar sem fámennið hefur reynst
mikill kostur enda auðveldara að fyrirbyggja einelti í litlum skóla sem og að takast á við það sem upp á kemur.
Morgunblaðið/Kristinn
Vanda sig Einbeiting sumra krakkanna í útileikjunum var gríðarleg en gleðin var ævinlega við völd.
Dyrahjalp.is er heimasíða Dýra-
hjálpar Íslands. Dýrahjálp er félag
sem leitast við að sjá dýrum sem
þarfnast heimilis fyrir skjóli. Félag-
ið var stofnað í maí 2008 og hefur
síðan þá aðstoðað fjölda dýra í
heimilisleit. Samkvæmt upplýs-
ingum af heimasíðunni hefur félag-
ið fundið heimili fyrir á annað þús-
und dýra, þar á meðal fyrir 594
hunda, 658 ketti og 99 kanínur, svo
dæmi séu tekin. Allir þeir sem koma
að því göfuga starfi ,sem félagið
vinnnur, eru sjálfboðaliðar. Auk
þess að hjálpa málleysingjunum við
að finna húsaskjól og fjölskyldu til
að sjá um dýrin, er einnig markmið
félagsins að efla vitund almennings
og auka fylgi og stuðning við dýra-
vernd. Þeir sem eru svo ólánsamir
að verða viðskilja við gæludýrið
sitt, geta auglýst eftir því á síðunni,
sér að kostnaðarlausu. Fyrir þá sem
hafa áhuga á að fá sér gæludýr,
ætti dyrahjalp.is að vera staðurinn
þar sem leitin hefst. Eins og staðan
er í dag eru um 100 dýr á vegum
Dýrahjálpar að leita sér að heimili.
Dýrahjálp hefur ekkert húsnæði fyr-
ir starfsemi sína og því eru dýrin,
sem auglýst eru á dyrahjalp.is, hýst
á heimilum sjálfboðaliða eða dvelja
enn um sinn á heimili núverandi
eigenda. Þeir sem vilja aðstoða
Dýrahjálp geta gerst sjálfboðaliðar,
skráð heimili sitt sem fósturheimili,
gefið félaginu fóður eða dót fyrir
dýrin, eða styrkt félagið fjárhags-
lega.
Dýrahjálp rekur einnig vefverslun
þar sem allur ágóði rennur beint til
starfseminnar. Dýravinir ættu ekki
að láta þessa frábæru síðu framhjá
sér fara.
Vefsíðan www.dyrahjalp.is
Dýr Það eru 30 hundar í heimilisleit.
Hundrað dýr í
heimilisleit
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Suðurhlíðarskóli er fyrir 1-10
bekk. Hann er tiltölulega fá-
mennur, núna eru um 40 nem-
endur en geta verið 60.
Í skólanum er samkennsla,
fleiri en einn árgangur í hverjum
nemendahópi, sem gerir starfið
mjög skemmtilegt. Þetta er
kostur fyrir marga, því þroski
nemenda er ekki alltaf eins þó
þeir séu fæddir sama árið.
Nemendahóparnir eru fjórir:
1.-3. bekkur.
4.-6. bekkur.
7. og 8. bekkur.
9. og 10. bekkur.
Fámennur
góður skóli
SAMKENNSLA ER KOSTUR