Morgunblaðið - 03.06.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2011
SVIÐSLJÓS
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Frumvörp sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra um breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu eru „árás
á Vestmannaeyjar“, sagði Stefán
Friðriksson, formaður Útvegs-
bændafélags Vestmannaeyja, á
blaðamannafundi í Sjóminjasafninu í
gær. Til fundarins boðaði Útvegs-
bændafélagið ásamt Útvegsmanna-
félagi Austfjarða, en á honum
kynntu félögin niðurstöður útreikn-
inga sinna á áhrifum boðaðra breyt-
inga á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Félögin tvö sameinuðu krafta sína
þar sem umsvifamesta uppsjávar-
vinnsla landsins er á starfssvæðum
þeirra og skerðingin mikil á því sviði.
Svarar til 150-160 starfa
Samkvæmt útreikningunum
munu aflaheimildir 14 sjávarútvegs-
fyrirtækja í Vestmannaeyjum verða
skertar um samtals 15.500 þorsk-
ígildistonn á fimmtán árum, þar af
um 7.500 tonn á fyrsta ári, þegar
fyrirliggjandi stjórnarfrumvörp
verða að fullu komin til fram-
kvæmda. Útreikningarnir miða við
meðaltal aflaheimilda þessara fyrir-
tækja undanfarna tvo áratugi, en
meðaltalið er umtalsvert hærra en
aflaheimildir þeirra á yfirstandandi
fiskveiðiári. Það var hins vegar talið
rétt að miða við meðaltal yfir lengri
tíma, frekar en að miða aðeins við
eitt ár.
Í máli Stefáns, sem einnig er
framkvæmdastjóri Ísfélags Vest-
mannaeyja, kom fram að skerðingin
svaraði til atvinnu allt að 160 manns
við veiðar og vinnslu, sem aftur svar-
ar til þess að öll fiskvinnsla Vinnslu-
stöðvarinnar hf., stærsta fisk-
vinnslufyrirtækis Vestmannaeyja,
yrði lögð af eða flutt á brott. Ofan á
vænta skerðingu bætist síðan „ofur-
skattur“, hið hækkaða veiðigjald.
Fimmtungur missi vinnuna
Gunnþór Ingvason, formaður Út-
vegsmannafélags Austfjarða og
framkvæmdastjóri Síldarvinnslunn-
ar í Neskaupstað, hafði svipaða sögu
að segja. Miðað við 20 ára meðaltals-
úthlutun myndu aflaheimildir í
Fjarðabyggð skerðast um 13.300
þorskígildistonn á ári þegar lögin
verða komin að fullu til fram-
kvæmda. Af þeim 500 sem starfa hjá
sjávarútvegsfyrirtækjum í Fjarða-
byggð sé fyrirséð að um 100 geti
misst vinnuna vegna skerðingarinn-
ar, og kjör þeirra sem eftir verði
rýrni. Samkvæmt útreikningunum
lækka laun starfsmanna í landi um
ríflega 150 þúsund krónur á fyrsta
ári, og hlutur sjómanna um 575 þús-
und. Aflaheimildaskerðingin svari til
tvöfaldra aflaheimilda Loðnuvinnsl-
unnar á Fáskrúðsfirði, eins þriggja
stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna í
Fjarðabyggð.
Mikilvægt að ræða saman
Auk þeirra Stefáns og Gunnþórs
tóku þeir Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum, Jens Garðar Helgason, for-
maður bæjarráðs Fjarðabyggðar, og
Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins, til máls á
fundinum. Þeir voru á einu máli um
það að málsmeðferðin hefði verið
óvönduð af hálfu stjórnvalda. Vil-
mundur sagði þvertekið hafa verið
fyrir það að SA eða Landssamband
íslenskra útvegsmanna hefðu nokk-
uð um frumvarpsgerðina að segja.
„Ég held nú að þegar fólk fer að
átta sig á staðreyndum málsins þurfi
menn bara að setja niður vopnin og
ná farsælli lausn saman,“ sagði
Gunnþór. Hann kvaðst vorkenna
hinum almenna þingmanni, sem
þyrfti, á stuttum tíma, að reyna að
komast til botns í raunverulegum
áhrifum boðaðra breytinga. Stíf
tveggja vikna vinna hefði til að
mynda legið til grundvallar útreikn-
ingunum sem kynntir voru í gær.
„En tölur eru eitt og kjör fólks ann-
að. Við þurfum að standa vörð um
kjör fólksins okkar og við þurfum að
standa vörð um kjör alls fólks í land-
inu.“
„Frestur er á illu bestur,“ sagði
Stefán spurður að því hvort meðferð
frumvarpanna væri komin á það stig
að kynning útvegsmanna í gær
kæmi of seint. Til stendur að af-
greiða „minna“ frumvarpið sem lög
áður en Alþingi fer í sumarfrí eftir
næstu viku. „Ég vona að minnsta
kosti að þingmenn vilji kynna sér
málið betur og fara betur yfir það.
Það verður enginn heimsendir þó að
menn taki upp á því að skoða málið
vel áður en þeir afgreiða það,“ sagði
Stefán.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, gaf ekki kost
á viðtali í gær þrátt fyrir að ítrekað
væri leitað eftir því.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skerðing Stefán Friðriksson kynnir niðurstöður útreikninga Útvegsbændafélags Vestmannaeyja á blaðamannfundi í gær. Stefán er formaður félagsins.
„Frestur er á illu bestur“
Segja breytt fiskveiðistjórnunarkerfi hafa neikvæð áhrif í Eyjum og Fjarða-
byggð Fleiri hundruð gætu misst vinnuna og kjör þeirra sem eftir yrðu rýrnað
„Ef við köllum
einhvern á fund,
sem ég reikna
auðvitað með, þá
er það eðlilegt að
fulltrúar úr
sjávarútveginum
verði þar efstir á
blaði. Það segir
sig sjálft,“ segir
Lilja Rafney
Magnúsdóttir,
formaður sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefndar Alþingis. Hún
hafði ekki kynnt sér útreikninga út-
vegsmanna og vildi því ekki tjá sig
um þá. „Eins og sjávarútvegs-
ráðherra hefur kynnt er verið að
vinna að hagrænni úttekt á þessu
frumvarpi af hálfu ráðuneytisins,“
segir Lilja. Sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefnd mun funda í það
minnsta tvisvar í dag, að sögn Lilju,
en stefnt er að því að ljúka við að
afgreiða „minna“ frumvarpið sem
lög fyrir þinglok. Hún segir ólíklegt
að kallað verði eftir utanaðkom-
andi útreikningum á áhrifum þess.
Meðferð beggja frumvarpa sé enn í
vinnuferli innan nefndarinnar.
einarorn@mbl.is
Unnið að
meðferð
frumvarpa
Útvegsmenn fyrstir
meðal gesta nefndar
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
„Útvegsmenn
hafa, alveg frá
því að umræðan
hófst um breyt-
ingar á fisk-
veiðistjórn-
uninni, hrópað
um að sjávar-
útvegurinn
myndi hrynja ef
það væru gerðar
nokkrar breyt-
ingar. Það kemur mér ekkert á
óvart að þeir reyni að reikna sig til
þessarar niðurstöðu,“ segir Ólína
Þorvarðardóttir, varaformaður
sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefndar. Hún segir spár um at-
vinnumissi hins vegar ekki munu
rætast. „Ég mæli um og legg svo á
að það verði ekki.“ Niðurstöðu sér-
fræðingahóps um hagræn áhrif
frumvarpsins er að vænta eftir
helgi. „Eigum við ekki að sjá hvað
sú úttekt leiðir í ljós áður en við
fellum einhverja dóma um svona
spár?“ spyr Ólína. „Ég held að það
sé skynsamlegast.“ einarorn@mbl.is
Frá upphafi
hrópað að allt
mundi hrynja
Ólína Þorvarð-
ardóttir
„Ég skal alveg
viðurkenna það
að þessar tölur
eru miklu verri en
ég átti von á. Þær
eru mjög slá-
andi,“ sagði Vil-
mundur Jósefs-
son, formaður
Samtaka atvinnu-
lífsins, þegar
hann var spurður
hvort þetta væri eitthvað sem hann
hefði vitað af við undirbúning kjara-
viðræðna. Hann sagði að stjórnvöld
hefðu þvertekið fyrir aðkomu SA eða
Landssambands íslenskra útvegs-
manna að frumvarpsgerðinni. „Ég
skil ekki hvernig í ósköpunum mönn-
um dettur í hug að vinna svona.“
Úr takti við raunveruleikann
Aðilar vinnumarkaðarins fengu
ákveðin fyrirheit frá stjórnvöldum til
þess að liðka fyrir samningagerð, en
Vilmundur segist ekki telja að þau
hafi lagst í útreikninga líka þeim sem
kynntir voru á fundinum í gær. „Mín
tilfinning er einfaldlega sú að þeir
hafi ekki reiknað nokkurn skapaðan
hlut,“ sagði hann. „Það virðist sem
það sé einhver pólitísk hugmynda-
vinna sem liggi að baki frumvörp-
unum og sé gjörsamlega úr takti við
raunveruleikann. Núna, þegar við
sjáum hver raunveruleikinn verður,
þá hlýtur stjórnin að átta sig á því
hverslags bull þetta í raun er.“
Fyrir þann 22. júní næstkomandi
munu aðilar vinnumarkarðins meta
það hvort nauðsynlegar forsendur
séu til staðar þannig að nýir kjara-
samningar gildi til þriggja ára. Vil-
mundur kveðst ekki vilja fullyrða um
það hvort þeim forsendum sé ógnað.
„En ég trúi því ekki fyrr en ég tek á
því að stjórnvöld ætli að eyðileggja
frið á vinnumarkaði með svona
vinnubrögðum. Ég trúi ekki öðru en
að stjórnvöld fari að nota skynsem-
ina.“ einarorn@mbl.is
„Gjörsamlega úr takti
við raunveruleikann“
Telur stjórnina ekki hafa reiknað „nokkurn skapaðan hlut“
Vilmundur
Jósefsson
15.500
fjöldi þorskígildistonna sem afla-
heimildir fjórtán sjávarútvegsfyrir-
tækja í Vestmannaeyjum skerðast
um á fimmtán árum, miðað við for-
sendur sem greint er frá hér til hlið-
ar.
13.300
þorskígildistonnin sem aflaheimildir
í Fjarðabyggð skerðast um miðað
við sömu forsendur.
151.796 kr.
launalækkun starfsmanns í land-
vinnslu í Fjarðabyggð á fyrsta ári,
verði frumvörpin að lögum, sam-
kvæmt útreikningum útvegsmanna.
575.965 kr.
lækkun hlutar sjómanns í Fjarða-
byggð á fyrsta ári, verði frumvörpin
að lögum, samkvæmt útreikningum
útvegsmanna.
‹ SKERÐING ›
»