Morgunblaðið - 07.06.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Samkvæmt minna frumvarpi sjávar-
útvegsráðherra um stjórn fiskveiða
hefur hann heimild til að ráðstafa
allt að 2.400 lestum af þorski og 600
lestum af ufsa til strandveiða á þessu
fiskveiðiári og því næsta. Verði
frumvarpið að lögum koma þessar
strandveiðiheimildir til viðbótar við
þær sex þúsund lestir sem kveðið er
á um í núgildandi lögum. Um 500
bátar hafa nú leyfi til strandveiða og
hafa eigendur þeirra margir hverjir
selt frá sér aflaheimildir, sumir oftar
en einu sinni, en síðan fengið leyfi til
strandveiða.
En hvernig hafa menn getað selt
frá sér heimildir oftar en einu sinni?
Í upphafi kvótakerfisins 1984 var
stuðst við aflareynslu þriggja síð-
ustu ára á undan. Smám saman náðu
bátar undir tíu brúttólestum til sín
um fjórðungi botnfiskaflans í stað
1,96% sem hún var á viðmiðunarár-
unum. „Þessi hlutdeild óx ekki með
viðskiptum með aflaheimildir,“ skrif-
aði Björn Jónsson hjá Kvótamiðlun
LÍÚ fyrir rúmum áratug.
Í mörg ár var reynt að koma bönd-
um á veiðar smábáta með misjöfnum
árangri. Kerfinu var breytt nokkr-
um sinnum, en með því að fara „inn
og út um gluggana“ gátu menn selt
hlutdeild á einhverju árabili og byrj-
að í nýju kerfi án þess að kaupa
heimildir. Allt á löglegan hátt.
Úr aflamarki í krókaaflamark
Við endurskoðun laga um fisk-
veiðistjórnun árið 1990 voru allir
bátar af stærðinni 6-10 brúttólestir
settir í aflamark, en eigendum ann-
arra smábáta gefinn kostur á að
velja milli aflamarks og krókaleyfis.
Strax í kjölfarið nýttu margir smá-
bátamenn sér þann möguleika afla-
markskerfisins að selja veiðiheimild-
ir sínar. Margir þeirra keyptu
krókaaflamarksbát í staðinn.
Svokallað banndagakerfi var við
lýði árin 1990-1994. Þeir sem voru í
því kerfi máttu ekki vera á sjó ákveð-
inn dagafjölda á hverju ári. Í upphafi
var þessum bátum heimilað að veiða
2.900 tonn, en síðasta árið áður en
banndagakerfið var lagt af lönduðu
banndagabátarnir um 36 þúsund
tonnum. Banndagakerfið var endan-
lega aflagt 1996 og heimildum breytt
í hlutdeild, sem menn gátu þá selt.
1999 voru teknir upp sóknardagar
með handfæri og gekk það kerfi í
nokkur ár. Aflaheimildum var enn
breytt í hlutdeild árið 2004 til að tak-
marka veiðarnar sem höfðu aukist
með hverju ári. Allur afli átti að vera
bundinn hlutdeild frá árinu 2004 og
náðist það markmið árið 2005.
Í þessari upptalningu eru ótaldir
þeir sem hafa selt sig út úr hinu
hefðbundna aflamarkskerfi.
Strandveiðarnar hófust síðan fyrir
rúmum tveimur árum og þar má sjá
menn sem hafa selt sig út úr fyrr-
nefndum kerfum. Einn viðmælandi
blaðsins sagðist óttast að stöðugt
yrði bætt í strandveiðikerfið. Þrýst-
ingur á stjórnvöld um auknar heim-
ildir fyrir minni báta hefði oftar en
ekki borið árangur.
Niðurskurður heimilda
Margir viðmælendur blaðsins
hafa undanfarið haft á orði að það
geti vart talist eðlilegt að menn sem
hafa selt frá sér heimildir á síðustu
tveimur áratugum, fyrir tugi eða
jafnvel hundruð milljóna króna, geti
komist aftur á veiðar án þess að
greiða fyrir heimildir. Niðurskurður
heimilda á liðnum árum hafi verið
mikill á heildina litið og einkum bitn-
að á þeim sem gert hafa sjómennsku
að ævistarfi.
Erfitt er að henda reiður á hversu
margir nákvæmlega hafa selt frá sér
heimildir og stunda nú strandveiðar.
Fyrirtæki eru gjarnan stofnuð um
ný verkefni eða nöfn fleiri en eins
fjölskyldumeðlims koma við sögu.
Kerfisbreytingar í fiskveiðistjórnun hafa opnað glufur til að selja hlutdeild og byrja upp á nýtt
Margir hafa selt frá sér aflahlutdeild á síðustu áratugum og eru nú með leyfi til strandveiða
Inn og út um glugga kerfisins
Morgunblaðið/Heiddi
Löndun Afla úr strandveiðibát land-
að á Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Uppsetning Þjóðleikhússins á Lé
konungi eftir William Shakespeare
fékk flestar tilnefningar til Grím-
unnar, íslensku leiklistarverð-
launanna, 2011, eða tíu. Tilnefning-
arnar voru birtar í gær.
Fimm leiksýningar hlutu tilnefn-
ingar sem sýning ársins 2011: Allir
synir mínir, Elsku barn, Fjalla-
Eyvindur, Fólkið í kjallaranum og
Lér konungur. Tilnefnt var í sextán
flokkum en alls komu áttatíu leik-
listarverkefni til álita í ár.
Fimm barnasýningar hlutu til-
nefningar sem barnasýning ársins
2011; Ballið á Bessastöðum í svið-
setningu Þjóðleikhússins, Gilitrutt í
sviðsetningu Brúðuheima, Gói og
Eldfærin í sviðsetningu Bauna-
grassins og Borgarleikhússins,
Herra Pottur og ungfrú Lok í svið-
setningu Óperartic í samstarfi við
Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleik-
húsið og Hvað býr í pípuhattinum? í
sviðsetningu Krílisins.
Í flokknum leikkona ársins eru
tilnefndar: Edda Björg Eyjólfs-
dóttir fyrir Fjalla-Eyvind, Halldóra
Geirharðsdóttir fyrir Elsku barn,
Ilmur Kristjánsdóttir fyrir Fólkið í
kjallaranum, Sigrún Edda Björns-
dóttir fyrir Fólkið í kjallaranum og
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir
Elsku barn. Tilnefndir sem leikarar
ársins eru: Arnar Jónsson fyrir Lé
konung, Árni Pétur Guðjónsson
fyrir Svikarann, Björn Thors fyrir
Allir synir mínir, Bergur Þór Ing-
ólfsson fyrir Enron og Jóhann Sig-
urðarson fyrir Allir synir mínir.
Sem leikstjórar ársins eru til-
nefndir: Benedict Andrews fyrir Lé
konung, Jón Páll Eyjólfsson fyrir
Elsku barn, Jón Páll Eyjólfsson fyr-
ir Strýhærða Pétur, Kristín Ey-
steinsdóttir fyrir Fólkið í kjall-
aranum og Stefán Baldursson fyrir
Allir synir mínir.
Gríman verður veitt í Borgarleik-
húsinu 16. júní.
Lér konung-
ur með tíu
Gríman Arnar Jónsson í hlutverki
sínu í Lé konungi.
Sparað á netinu
Tölvuleikur: Toy Story 3: The Video Game
amazon.co.uk
4.195 kr.
Elko
11.995 kr.
Skífan
10.999 kr.
Tollur: 420kr.
Vsk: 1.177 kr.
Verðmeð
gjöldum: 5.792 kr.
Verðmunur
6.203 kr.
207%
Verðmunur
5.207 kr.
190%
Tölvuleikur: Lego Harry Potter - Episodes 1-4
amazon.co.uk
2.007 kr.
Elko
11.995 kr.
Skífan
12.999 kr.
Tollur: 201 kr.
Vsk: 563kr.
Verðmeð
gjöldum: 2.771 kr.
Verðmunur
9.224 kr.
433%
Verðmunur
5.207 kr.
469%
Tölvuleikur:Call of Duty: Black Ops
amazon.co.uk
2.796 kr.
Tollur: 280kr.
Vsk: 784kr.
Verðmeð
gjöldum: 3.860 kr.
Elko
11.995 kr.
Verðmunur
8.135 kr.
311%
Miðað er við gengi 186,52 kr. á pundið. Miðað er við verð að frádregnum vsk í Bretlandi. Sendingarkostnaður fellur niður ef pantað er fyrir 25 pund eða meira.
Reiknað er út frá genginu 113,73 fyrir bandaríkjadalinn en það var miðgengi á vef Seðlabankans í gær. Villur eru á ábyrgð blaðamanns.
Fartölva: Dell XPS 17
dell.uk
207.783 kr.
EJS
339.900 kr.
Skattstofn: 175.283kr.
Vsk: 44.697kr.
Verðmeð
gjöldum: 252.480 kr.
Verðmunur
87.420 kr.
35%
*Tölvankeypt í Bretlandi ogflutt heim í handfarangri.Breskur vsk. (32.828kr.) fæst þáendurgreiddur.
Myndavél: Canon Powershot S95
amazon.com
45.486 kr.
Í handfarangri*
45.492 kr.
Vefversl.Nýherja
84.900 kr.
Sendingark.: 9.320kr.
Vsk: 13.976kr.
Verðmeð
gjöldum: 68.782 kr.1)
3.313 kr.
48.805 kr. 2)
Verðmunur
1) 16.118kr. (23%)
2)36.095kr. (74%)
*Keypt í verslunJ&R íNewYorkogflutt heimmeðhandfarangri.Skattstofn er 12.992kr.
Myndavél:Canon Powershot G12
bhphotovideo.com
63.120 kr.
Sendingark. 5.573kr.
Vsk: 17.517 kr.
Verðmeð
gjöldum: 86.210 kr.
Beco
109.900 kr.
Verðmunur
23.690 kr.
27%
Linsa:CanonEF14mmf/2.8LIIUSMUltra-Wide
amazon.com
255.779 kr.
Sendingark. 12.277 kr.
Vsk: 68.354kr.
Verðmeð
gjöldum: 336.410 kr.
myndavelar.is
399.900 kr.
Verðmunur
63.490 kr.
19%
Linsa:Canon EF 70-200mm f/2.8L IS II USM
bhphotovideo.com
286.145 kr.
Sendingark. (Innifalinn)
Vsk: 72.967kr.
Verðmeð
gjöldum: 359.112 kr.
Beco
469.900 kr.
Verðmunur
110.788 kr.
31%
Minniskort: SanDisk 16GB Extreme SDHC
bhphotovideo.com
5.573 kr.
Tollur 557kr.
Vsk: 1.563kr.
Verðmeð
gjöldum: 7.693 kr.
Beco
16.900 kr.
Verðmunur
9.207 kr.
31%
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Flestir kannast eflaust við frásagnir
af Íslendingum sem töldu sig hafa
upp í ferðakostnað við utanferð með
hagstæðum kaupum á raftækjum.
Lausleg athugun á vörum sem
valdar voru af handahófi bendir til
að í þessu leynist sannleikskorn.
Og verðið hefur áhrif á kaup-
mátt.
Gengið hefur veikst
Byrjað var á tölvuleikjum.
Raftækjaverslunin Elko og
hljómplötuverslunin Skífan gefa
báðar upp verð á völdum tölvu-
leikjum á vefsíðum sínum.
Valdir voru þrír vinsælir leikir
sem hægt er að fá senda frá útibúi
Amazon í Bretlandi en sendingar
þaðan til Íslands eru tímabundið
ókeypis sé pantað umfram 25 pund.
Því kann að fylgja einhver kostn-
aður og fyrirhöfn að sækja tölvuleik-
ina á pósthús og er litið framhjá því
hér.
mun hagstæðari kjörum í Bretlandi.
Eykst verðmunurinn ef tekið er tillit
til virðisaukaskatts en upplýsingar
um hann fengust hjá þjónustuveri
Bell í Bretlandi símleiðis í gær.
Bauð sölumaður hagstæðari kjör
gegn því að pöntun væri lögð fram í
gær en hann sagði virðis-
aukaskattinn endurgreiddan við
heimferð á flugvelli.
Hagstæðara getur verið að
kaupa hlut erlendis en að panta
hann í gegnum netið þar sem opin-
berar álögur á hvern hlut í farangri
telja ekki fyrr en umfram 32.500 kr.
Ólíkir markaðir
Þá leiðir samanburður á verði
myndavéla og linsa til að verðið sé í
mörgum tilfellum hátt hér á landi.
Er hér meðal annars horft til
útsöluverðs í verslun J&R í New
York en vart þarf að taka fram að
markaðurinn þar er miklu stærri en
sá sem verslun Beco hefur úr að
spila á Íslandi. En eins og sjá má á
kortinu hér fyrir ofan er 16GB
minniskort mjög dýrt í versluninni.
kemur á vef Seðlabankans. Sú pró-
sentutala er hins vegar lítið brot af
hlutfallslegri álagningu á leikina.
Einnig var farið út í samanburð
á nokkrum raftækjum og skal ítrek-
að að valið er handahófskennt.
Leitað var ráðgjafar hjá tölvu-
fræðingi og bendir lausleg athugun
til að hægt sé að fá Dell-fartölvur á
Þá skal tekið fram að valdir
voru leikir sem eru í dýrari kant-
inum á Íslandi og kann það að ýta
undir að samanburðurinn sé Elko og
Skífunni óhagstæður. Á móti kemur
að miðgengi pundsins var 178 kr.
um síðustu áramót og hefur krónan
því veikst gagnvart gjaldmiðlinum
um 4,6% á tímabilinu, að því er fram
Vel smurt á tölvuleiki, myndavélar,
minniskort og myndavélalinsur
Undirstrikar að gengishrun krónunnar skýrir hátt verðlag aðeins að hluta
Morgunblaðið/Ernir
Úr einni af verslunum Elko Tilkoma stórra raftækjaverslana leiddi til
verðlækkunar á raftækjum. Val á verslunum er hér handahófskennt.