Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
norra na husid
e
-
-
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Af samtölum við talsmenn bílaleiga
má ráða að sumarið í ár verði þeim
ekki jafn gjöfult og síðast. Bókanir
fara hægt af stað og segjast þeir ekki
sjá þá miklu aukningu sem flugfélög-
in og Isavia boðuðu í sumar.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu bjóða alls 13 erlend flug-
félög upp á ferðir til og frá Íslandi en
samkvæmt upplýsingum blaðsins
hefur eitthvað borið á afbókunum í
ferðum þýskra flugfélaga hingað í
leiguflugi í sumar, en þau voru all-
nokkur. Þá hefur bandaríska félagið
Delta dregið úr framboði sínu á flugi
til Íslands og hyggst hætta mun fyrr
að fljúga hingað í haust en upphaflega
var boðað, eða í byrjun september nk.
í stað októberloka.
Steingrímur Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar-
Hölds, segist finna fyrir minni bók-
unum hjá þeim í sumar miðað við síð-
asta ár. Hið sama heyrist frá hótelum
og gistiheimilum og þetta rými ekki
alveg við fregnir af mikilli aukningu í
flugi. Verið geti að flugfarþegar fari
meira en áður beint frá Evrópu til
Bandaríkjanna, eða öfugt, án við-
komu hér – nema þá í dagsferðir í
Bláa lónið.
„Við gerðum ráð fyrir minnkun hjá
okkur því það er ekki endalaust hægt
að reikna með aukningu. Það er
kreppa víða annars staðar í heiminum
en hér á landi. Áföll eins og eldgos
núna og í fyrra höggva í, það er alveg
ljóst. Og ekki hjálpa til verkföll hjá
flugvirkjum,“ segir Steingrímur en
eftir eldgosið í Grímsvötnum minnk-
aði innstreymi bókana hjá Bílaleigu
Akureyrar. Afbókanir voru hins veg-
ar fáar.
Hefur Steingrímur það eftir ferða-
skrifstofu í Sviss, sem þeir hafa skipt
við í mörg ár, að minna sé um bókanir
þaðan í allar áttir, hvort sem það er til
Svíþjóðar, Spánar eða Íslands, svo
dæmi séu tekin. Lakari efnahagur
fólks og hækkandi eldsneytisverð
hefur greinileg áhrif á ferðamynstur
Svisslendinga sem margra annarra
Evrópubúa.
„Þetta sumar verður hins vegar allt
í lagi en engin sprengja,“ segir Stein-
grímur.
Fer seinna af stað
Vilhjálmur Sigurðsson, sölu- og
markaðsstjóri hjá bílaleigunni Avis á
Íslandi, tekur undir með Steingrími.
Útlit sé fyrir færri bókanir í sumar en
áður. Hann telur reyndar að eldgosið
í Grímsvötnum hafi ekki haft mikil
áhrif, enda hafi gosið staðið stutt.
„Við sjáum ekki þessa 15-20%
aukningu sem hefur verið boðuð í
fluginu og vitum ekki hvað verður um
ferðamennina. Við áttum von á að
þetta ár yrði svipað og 2009, en síð-
asta ár var ekki það. Sumarið fer
seinna af stað en við áttum von á,“
segir Vilhjálmur.
Hjá Isavia fengust þær upplýsing-
ar í gær að engin erlend flugfélög,
sem hingað ætluðu að fljúga, hefðu
hætt alfarið við Íslandsferðir sínar.
Gerir Isavia áfram ráð fyrir fjölgun
flugfarþega í Leifsstöð í sumar.
Þannig hefur ferðum Íslendinga um
Leifsstöð fjölgað um 20% það sem af
er árinu, miðað við síðasta ár en þá
fjölgaði þeim um sama hlutfall á með-
an fjöldi erlendra ferðamanna stóð
nánast í stað.
„Sumarið í lagi en engin sprengja“
Bílaleigur sjá enga 15-20% aukningu á ferðamönnum sem boðuð hefur verið Farið að bera á afbók-
unum hjá þýskum flugfélögum hingað Isavia reiknar áfram með fjölgun farþega í Leifsstöð í sumar
Morgunblaðið/Ernir
Bílaleigur Um leið og bílaleigur hafa haldið bílasölum á floti þá merkja þær minni bókanir nú en í fyrra.
Eins og talsmenn bílaleiga
segja finna þeir ekki fyrir
fjölgun ferðamanna sem flug-
félögin flytja hingað. Ferða-
menn ferðast þá væntanlega
meira innanlands með öðrum
hætti eða fljúga áfram héðan í
tengiflugi til vesturs og aust-
urs.
Farþegum Icelandair fjölgaði
um 22% í maí, miðað við sama
mánuð í fyrra, en aukningin er
einkum rakin til tafa á flugi í
maí í fyrra eftir gosið í Eyja-
fjallajökli. Þá fjölgaði farþegum
Iceland Express um 42% í maí
síðastliðnum.
Mikil fjölgun
farþega í maí
ÍSLENSKU FLUGFÉLÖGIN