Morgunblaðið - 11.06.2011, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
!"# $% " &'( )* '$*
++,-,.
+/0-1/
++2-10
11-+0/
1+-3,/
+/-13+
+.4-/,
+-,1/.
+/.-.4
+04-.4
++,-2
+/0-2.
++2-0
11-1..
1+-++
+/-14,
+.0-11
+-,.14
+/.-5
+04-/+
113-015/
++,-52
+/2-+/
++2-5,
11-15/
1+-+21
+/-.32
+.0-0
+-,.02
+/,-,4
+00-12
● Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hef-
ur verið falið að annast söluferli á BLIH
ehf., móðurfélagi bílaumboðanna Ingv-
ars Helgasonar ehf. og Bifreiða og land-
búnaðarvéla ehf. Samhliða verður fast-
eign sem hýsir starfsemi félagsins að
Sævarhöfða í Reykjavík boðin til
kaups. Eigendur fyrirtækisins, eftir end-
urskipulagningu sem lauk fyrr á þessu
ári, eru Miðengi ehf., dótturfélag Ís-
landsbanka, SP fjármögnun hf. og Lýs-
ing hf.
Í tilkynningu frá bankanum segir að
saman myndi Ingvar Helgason og Bif-
reiðar og landbúnaðarvélar eitt stærsta
bifreiðaumboð landsins, með níu sterk
vörumerki innan sinna raða. Stefnt sé á
að söluferlið hefjist formlega í ágúst á
þessu ári. Á þeim tíma verði það aug-
lýst og tilkynnt um tímasetningar og
kröfu seljenda til þeirra sem þátt geti
tekið.
ivarpall@mbl.is
Ingvar Helgason og B&L
til sölu hjá Íslandsbanka
FRÉTTASKÝRING
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Að sögn talsmanns Íslandsbanka er
það mat sérfræðinga bankans að
lánsformið sem Hæstiréttur dæmdi
ólöglegt í Motormax-málinu svokall-
aða í vikunni sé ósambærilegt flest-
um lánsformum bankans. Hinsvegar
mun bankinn gera gera frekari út-
tekt á lánasöfnum sínum með hlið-
sjón af dómnum og meta áhrif hans.
Samkvæmt Arion-banka eru lög-
menn að meta áhrif dómsins út frá
því hvort og þá að hve miklu leyti
hann mun hafa áhrif á lánasamninga
bankans.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjár-
málaeftirlitinu mun dómurinn ekki
hafa nein áhrif á eiginfjárþörf bank-
anna. Fulltrúar allra bankanna stað-
festa þetta mat, en eins og fram hef-
ur komið telur Landsbankinn að
kostnaðurinn vegna dómsins muni
verða um 16 milljarðar. Búið var að
gera varúðarráðstafanir fyrir að úr-
skurður Hæstaréttar yrði á þennan
veg.
Kúabændur og eigendur
smábáta fagna dómnum
Ýmis hagsmunasamtök atvinnu-
rekenda hafa fagnað niðurstöðu
dómsins. Fram kemur í tilkynningu
frá Landssambandi kúabænda að
dómurinn geti haft verulega jákvæð
áhrif á fjárhag bænda, til að mynda
þeirra sem stofnað hafa einkahluta-
félög um búreksturinn. Landssam-
band smábátaeigenda tekur í sama
streng og telur að dómurinn leiði til
þess að eigendur smábáta fái nú loks
leiðréttingu sinna mála. Í tilkynn-
ingu frá samtökunum kemur fram að
það sé von sambandsins að dómur-
inn hrindi af stað allsherjar leiðrétt-
ingu lána hjá öðrum lánastofnunum
þar sem lán hafa verið greidd út í
krónum.
Morgunblaðið ræddi við nokkra
lögmenn í gær sem annast mál fyrir
atvinnurekendur sem eru með sam-
bærilega lánasamninga við Lands-
bankann og þann sem Hæstiréttur
dæmdi ólöglegan. Þeir eru sammála
um að dómurinn sé fagnaðarefni en
hinsvegar benda þeir á að útfærslan
á leiðréttingu kunni að verða flókin.
Undir þetta mat er tekið í yfirlýs-
ingu frá Landsbankanum vegna
dómsins, en þar kemur að fram að
framundan er mikil vinna við end-
urútreikning lána sem falla undir
dóminn og má búast við að sú vinna
taki talsverðan tíma.
Þrátt fyrir að bankarnir leggi á
það áherslu að dómurinn og hugs-
anleg fordæmi hans grafi ekki undan
eiginfjárstöðu þeirra með marktæk-
um hætti þá er ljóst að hann kemur
til með að hafa umtalsverð áhrif í
bankakerfinu.
Verðtryggingarmisvægi bank-
anna versnar að öllum líkindum
Telja má líklegt að dómurinn komi
til með að auka verðtryggingarmis-
vægi bankanna að því marki sem
ólögmætu lánunum verður breytt í
verðtryggð lán. Í nýjustu fjármála-
stöðugleikaskýrslu Seðlabankans er
lýst yfir áhyggjum yfir þessu mis-
vægi. Samkvæmt skýrslunni nam
misvægið hjá viðskiptabönkunum
tæpum 170 milljörðum króna um síð-
ustu áramót en það er tilkomið
vegna þess að eignir bankanna eru
verðtryggðar í mun meiri mæli en
skuldir þeirra. Í dag eru bankarnir
að stærstum hluta fjármagnaðir með
óbundnum og óverðtryggðum inn-
lánum. Þetta misvægi gerir meðal
annars að verkum að bankarnir
hagnast verulega af verðbólguskot-
um en að sama skapi getur viðvar-
andi verðbólga leitt til þess að
greiðslugeta lántakenda versni og
þar af leiðandi gæði útlánasafna
bankanna.
Færð sem erlend eign
við útgáfu skuldabréfs
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum voru lánin sem
Hæstiréttur dæmdi ólöglega færð
inn sem erlend eign þegar samning-
ar voru gerðir um útgáfu gengis-
tryggðs skuldabréfs sem Lands-
bankinn gaf út til þrotabúsins árið
2009. Hinsvegar segir Landsbank-
inn að þá hafi verið horft til þess að
stór hluti erlendra lána væri til veik-
burða fyrirtækja með litlar eða eng-
ar erlendar tekjur í erlendri mynt –
og því aðeins litið á hluta slíkra lána
sem raunverulega gjaldeyriseign.
Dómnum fagnað en áhrif sögð lítil
Morgunblaðið/ÞÖK
Kátar kýr Landssamband kúabænda er í flokki þeirra sem fagna dómi Hæstaréttar í Motormaxmálinu svokallaða.
Íslandsbanki telur Motormax-dóminn ekki eiga við stærstan hluta lána bankans Áhrif dómsins á
eiginfjárstöðu bankanna sögð vera lítil Gæti leitt til þess að verðtryggingarmisvægi bankanna aukist
Áhrif á bankakerfið
» Samkvæmt upplýsingum
frá Fjármálaeftirlitinu mun
dómurinn ekki hafa mikil
áhrif á eiginfjárþörf bank-
anna.
» Landsbankinn telur kostn-
aðinn vegna hans nema um
16 milljörðum.
» Dómurinn mun sennilega
auka verðtryggingarmisvægi
bankanna, sem þýðir að þeir
hagnast á verðbólguskoti.
» Verðtryggingarmisvægi
bankanna var tæpir 170 millj-
arðar um áramót.
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Tekjur ríkissjóðs á fyrstu fjórum
mánuðum ársins minnkuðu um þrjá
og hálfan milljarð frá sama tímabili
ársins 2010. Gjöld lækkuðu einnig,
um 13,6 milljarða króna, þannig að
afkoman var rúmum 10 milljörðum
betri á tímabilinu en því sama árið
áður.
Tekjujöfnuður var þannig nei-
kvæður um 14 milljarða, borið sam-
an við rúma 24 fyrstu fjóra mánuði
ársins 2010.
Þegar tekjuhliðin er skoðuð kem-
ur í ljós að skatttekjur og trygginga-
gjöld drógust saman um 1,5 millj-
arða króna milli ára. Tekjur af
tekjuskatti á einstaklinga drógust
saman um milljarð, tekjur af tekju-
skatti á lögaðila hækkuðu um hálfan
milljarð og tekjur af fjármagns-
tekjuskatti hækkuðu um 600 millj-
ónir.
Tekjur af virðisaukaskatti lækk-
uðu um fjóra milljarða króna milli
tímabilanna og alls lækkuðu tekjur
af sköttum á vöru og þjónustu um
5,6%. Tryggingagjöld hækkuðu hins
vegar um tæplega 1,7 milljarða
króna.
Á gjaldahliðinni munar mestu um
lægri vaxtagreiðslur, en þær lækk-
uðu um rúma sex milljarða króna
milli ára. Vaxtagreiðslur eru illvið-
ráðanlegur þáttur í rekstri ríkissjóðs
– ekki hluti af svokölluðum frumjöfn-
uði – en þegar útgjöld til reglulegrar
starfsemi ríkisins eru skoðuð kemur
í ljós að gjaldaliðurinn „almenn op-
inber þjónusta“ lækkar um hálfan
milljarð, löggæsla, réttargæsla og
öryggismál lækka um tæpar 400
milljónir, heilbrigðismál lækka um
700 milljónir, menningar-, íþrótta-
og trúmál um 300 milljónir, al-
mannatryggingar um milljarð og
óregluleg útgjöld um 1,4 milljarða.
Aðrir útgjaldaliðir standa svo að
segja í stað.
Tekjur ríkisins
lækka en gjöld
lækka meira
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkissjóður Tekjujöfnuður batnaði
um 10 milljarða króna á milli ára.
14 ma.kr. halli á ríkissjóði í janúar-apríl
● Þrotabú breska bankans Singer & Friedlander, sem var dótturfélag Kaup-
þings, seldi kröfur sínar á bresku verslunarkeðjuna Jane Norman fyrir 6% af
nafnvirði. Þetta kom fram á vef breska blaðsins Independent í gær. Þar kemur
einnig fram, að Ian Findlay hætti störfum sem forstjóri félagsins eftir að lánar-
drottnar þess fengu PricewaterhouseCoopers í síðustu viku til að selja fyrir-
tækið. Baugur og Kaupþing keyptu Jane Norman fyrir 117 milljónir punda, 22
milljarða króna á núvirði, árið 2005.
Seldi kröfur á Jane Norman fyrir 6% af nafnvirði
● Landsbankinn hefur gert sam-
komulag við Lýsi hf. um að bankinn
fjármagni byggingu nýrrar verk-
smiðju fyrirtækisins og tækjabúnað í
hana. Með nýju byggingunni fer fram-
leiðslugeta Lýsis úr 6.500 tonnum í
um 13.000 tonn. Fyrirhugað er að
hefja framleiðslu í verksmiðjunni í
mars á næsta ári.
Áætlaður framkvæmdakostnaður
er um 1.180 milljónir króna.
Talið er að um 150 manns muni
vinna við byggingu verksmiðjunnar
og að 20 ný störf skapist hjá Lýsi
vegna þessara breytinga.
Ný verksmiðja hjá Lýsi
STUTTAR FRÉTTIR
Eignastýringarsjóðir, trygginga-
félög og lífeyrissjóðir voru lang-
stærstu kaupendurnir í erlendu
skuldabréfaútboði ríkisins í fyrra-
dag og keyptu þau 85% af skulda-
bréfunum, en útgáfan nam einum
milljarði Bandaríkjadala. Vogunar-
sjóðir keyptu 8% skuldabréfanna.
Um tveir þriðju þátttakendanna í
útboðinu komu frá Bandaríkjunum
en aðrir komu frá Evrópu, Mið-
Austurlöndum og Afríku. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
höfðu íslensk stjórnvöld ekki sterka
skoðun á því hvort skuldabréfaút-
gáfan ætti að vera í evrum eða
Bandaríkjadal þegar undirbún-
ingur hófst. En eftir að fulltrúar
stjórnvalda höfðu fundað með um
85 fjárfestum var einsýnt að um-
talsverður áhugi væri vestanhafs á
útgáfunni. Upphaflega stóð til að
gefa út skuldabréf fyrir 500 millj-
ónir dala, en vegna mikils áhuga
fjárfesta var ákveðið að hækka út-
gáfuna upp í einn milljarð.
ornarnar@mbl.is
Bandarísk-
ir fagfjár-
festar
stærstir Skannaðu kóð-ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á