Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
✝ Erla Ólafsfæddist á Siglu-
firði 15. desember
1923. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Fjallabyggðar 29.
maí 2011. Móðir
Erlu var Arnfinna
Björnsdóttir frá
Siglufirði. Sem
kornabarn var Erla
tekin í fóstur af
móðursystur sinni,
Ólínu Björnsdóttur, og manni
hennar, Ólafi Gottskálkssyni.
Erla var skírð Erla Ólafs og ólst
upp sem eitt af ellefu börnum
þeirra hjóna.
Erla hóf sambúð með Stein-
grími Viggóssyni, f. 8. júlí 1917.
Hann lést árið 1997. Með Stein-
grími eignaðist hún dótturina
Guðlaugu, f. 27. febrúar 1944.
Guðlaug er gift Hákoni J. Ant-
onssyni og eiga þau tvo syni,
Steingrím Óla og Þóri Þormar.
Barnabörnin eru fjögur, Ólafur
Darri, Hákon Orri, Vaka Rán og
Viktor Snær. Bróðurson Erlu,
Ólaf Jóhann Rögnvaldsson, f. 9.
janúar 1947, ólu þau upp frá
unga aldri, en Ólafur lést af
slysförum 11. ágúst 1974. Árið
1957 auðnaðist þeim svo í fóstur
systursonur Erlu, Róbert Guð-
finnsson, f. 11. mars 1957, og
var hann sem sonur
þeirra, þó ekki hafi
hann verið á heim-
ili þeirra nema
fyrstu uppvaxt-
arárin. Börn Ró-
berts eru Gunn-
hildur, Sigríður
María, Ragnheiður
Steina og Bryndís
Erla. Barnabörn
Róberts eru Róbert
Orri og Brice
Brynjar. Voru þau öll sem
ömmu Erlu og afa Steingríms
barnabörn. Má þó segja að í
huga allra barna í ættinni var
hún alltaf amma Erla.
Erla vann ýmis störf hér í bæ,
en varð henni þó tíðrætt um
gömlu og góðu dagana í Herter-
vigsbakaríinu og þá seinna
hversu vel hún fann sig við ræst-
ingar í Gagnfræðaskóla Siglu-
fjarðar innan um glaðværa ung-
linga og gott samstarfsfólk.
Eftir að Erla hætti að vinna
hafði hún nóg fyrir stafni, úti-
vist, gönguferðir um fjörðinn og
sund, þar sem margt var spjall-
að og skipst á skoðunum, oft um
bæjarpólitík en þar var hún í
essinu sínu.
Útför Erlu fer fram frá Siglu-
fjarðarkirkju í dag, 11. júní
2011, kl. 15.
Það eru erfið spor að fylgja til
grafar konu sem hafði jafnmikil
áhrif á líf mans og gaf manni jafn-
mikið og Erla Ólafs gerði. Þessi
merka kona, móðursystir mín,
sem tók mig í fóstur nokkurra
vikna gamlan og ól mig upp fyrstu
árin, er mín hvunndagshetja. Hún
var mér móðir, vinkona og félagi.
Þeir sem til hennar þekktu
minnast flestir hversu mikill eld-
hugi hún var þegar umræðan
barst að stjórnmálum. Hún var
með kratablóð í æðunum og vék
aldrei af þeirri stjórnmálaskoðun.
Þegar kosningar nálguðust
breyttist fóstra mín. Hún varð ör-
ari og auðvelt var að koma henni í
hörkusamræður um stjórnmálin.
Í hennar veröld voru allir kratar
óskeikulir.
Þegar minningarnar hrynja yf-
ir mann og litið er yfir farinn veg
sér maður hvað það var gefandi að
fá að verða samferða manneskju
eins og Erlu. Þessi djúpa réttlæt-
iskennd, sem oft átti það til að
verða ofstækisfull, vakti mann til
umhugsunar um hvort maður
væri á réttri leið. Ef hún var
ósammála því sem ég tók mér fyr-
ir hendur, hvort sem það var í við-
skiptum eða í einkalífinu, lét hún í
sér heyra. Óhrædd við afstöðu
annarra og alltaf sjálfri sér sam-
kvæm.
Það er engin tilviljun að öll
börnin í hverfinu minnast hennar
sem ömmu Erlu.
Hún gerði engan greinarmun á
þeim börnum sem til hennar
sóttu. Þau voru öll ömmubörnin
hennar hvort sem þau komu úr
hennar fjölskyldu eða höfðu flutt í
nágrennið. Það hefur stundum
verið sagt um þá miklu ætt sem
Erla var af að sá sem átti nógan
mat hann ól upp börnin. Þetta
hugarfar gerði það að verkum að
það er stór hópur sem hefur átt
viðkomu á heimili fóstru minnar á
Hlíðarvegi 3.
Þegar lífskrafturinn fór að
þverra og styttast tók í stundina
stóru var hugurinn allur hjá ung-
viðinu. Það var yndisleg sjón að
sjá hvernig það lifnaði yfir henni
þegar yngstu fjölskyldumeðlim-
irnir komu í heimsókn. Hún sá
framtíðina í þeim og var treg til að
kveðja án þess að sjá þau vaxa úr
grasi. Það verður nú hlutverk
okkar að halda uppi minningunni
um Erlu Ólafs og fræða barna-
börnin um þessa merku konu.
Hvíldu í friði móðir kær.
Róbert Guðfinnsson.
Elsku kerlingin mín. Nú er
þinn dagur kominn og mikið á ég
eftir að sakna þín. Þú varst alltaf
til staðar fyrir mig þegar ég þurfti
á þér að halda. Það var ekki bara
Róbert sem þú hjálpaðir mér með,
það voru líka hin börnin tvö, þú
passaðir þau líka. Ég gæti skrifað
heila bók um okkur, en ég ætla að
eiga þær minningar í hjarta mínu.
Svo ég ætla að kveðja þig með
sálminum sem hann faðir okkar
söng svo oft:
Lýs, milda ljós, í gegnum þennan
geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái
skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar samt.
Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög
trú
og hennar ljós?
Mér sýndist bjart, en birtan þvarr,
og nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið,
uns fáráð öndin sættist Guð sinn við.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr.
(Matthías Jochumsson)
Elsku Erla mín. Ég bið góðan
Guð að taka vel á móti þér. Ég hitti
þig svo þegar minn dagur kemur.
Þín systir,
Steinfríður Ólafsdóttir
(Steina).
Látin er á Siglufirði sómakonan
og jafnaðarmaðurinn Erla Ólafs.
Erlu kynntist ég ungur að aldri
þegar ég var sendill á kosninga-
skrifstofu Alþýðuflokksins. Þá
tíðkaðist að skrifa niður á kjördag
hverjir kæmu að kjósa og við unga
fólkið vorum í því að koma skrán-
ingunni á kosningaskrifstofuna
þar sem þeir fullorðnu merktu við
í kjörskrá og reyndu að skipta
háttvirtum kjósendum niður á
flokka. Þegar líða fór á kjördaginn
samdi Erla alltaf á sinn ljúfa hátt
við okkur um að fá að sjá listana
fyrst til að athuga hverjir væru
búnir að kjósa.
Erla var alltaf með á hreinu
hverjir væru búnir að kjósa og
hverjir eftir. Hún þurfti hvorki að
skrifa það niður né nota síðari
tíma tölvutækni. Þetta var greypt
í huga hennar.
Erla trúði mér fyrir því að hún
notaði alltaf sparidúkinn sinn til
að hafa á tertuborðinu í kosninga-
kaffinu. Þegar dúkurinn var not-
aður fyrst unnum við stórsigur og
því notaði hún hann alltaf síðan,
oftast með góðum árangri. Áhugi
Erlu var ekki eingöngu bundinn
við kjördaginn sjálfan og það sem
fram fór þá. Strax í aðdraganda
kosninga var hún komin á fullt.
Hún var með það á hreinu
hverjir væru utan bæjar á kjör-
degi, og þyrftu því að kjósa utan
kjörfundar, og hverjir væru á leið
úr bænum. Ég velti því oft fyrir
mér hvers vegna Erla var svona
áhugasöm og hvers vegna hún
lagði svona mikið á sig vegna
kosninga. Svar við þessum vanga-
veltum mínum fékk ég í einu
morgunkaffinu hjá henni. Þetta
var hugsjónastarf, hún gerði þetta
fyrir jafnaðarstefnuna og bæinn
sinn.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Erlu fyrir mikinn stuðning við
mig í mínu pólitíska starfi og sér-
staklega hin síðari ár eftir að ég
settist á Alþingi. Spjall í síma um
pólitíkina og bæjarmálin á Siglu-
firði var ávallt uppbyggilegt og
skemmtilegt. Erla var í raun og
veru eins og alfræðiorðabók um
málefni Siglufjarðar og íbúa bæj-
arins og með allt á hreinu.
Það væri hægt að skrifa heila
bók um Erlu og áhuga hennar á
stjórnmálum. En nú sný ég mér
að Erlu sem vini okkar hjóna og
fjölskyldunnar allrar. Þegar ég
kom til Siglufjarðar árið 1978 frá
Bolungarvík, nýgiftur, tók Erla á
móti okkur hjónum á eftirminni-
legan hátt. Hún tók á móti konu
minni eins og hún væri búin að
þekkja hana í tugi ára og ætti í
henni hvert bein, eins og sagt er.
Margar stundir okkar hin síðari
ár í morgunkaffi á Hlíðarveginum
hjá Erlu eru eftirminnilegar og
alltaf nýbakað muffins og besta
soðbrauð sem hægt er að fá.
Gott dæmi um þennan vinskap
eru orð og hvatning yngsta sonar
okkar, sem er að útskrifast úr HÍ
á útfarardegi Erlu, en hann sagði
ekki annað koma til greina en að
við hjónin tækjum útför Erlu fram
yfir útskrift sína og útskriftar-
veislu. Erla er búin að vera vinur
og pólitískur samherji alla tíð,
fyrst í Alþýðuflokknum og síðar í
Samfylkingunni, og fyrir það vilj-
um við þakka með þessum minn-
ingarorðum um heiðurs- og jafn-
aðarkonuna Erlu sem verður sárt
saknað.
Blessuð sé minning hennar.
Kristján L. Möller,
Oddný og synir.
Kveðja frá siglfirskum jafn-
aðarmönnum
Siglfirskir jafnaðarmenn
standa í mikilli þakkarskuld við
baráttukonuna og jafnaðarmann-
inn Erlu Ólafs. Erla gekk ung að
árum til liðs við Alþýðuflokkinn og
starfaði í honum alla tíð og síðar í
Samfylkingunni eftir stofnun
hennar.
Erla tók mikinn þátt í öllu starfi
jafnaðarmanna. Hún var drjúg við
að baka meðlæti og hita kaffi á al-
mennum fundum, stórum sem
smáum, svo ekki sé talað um störf
á kosningadögum. Hún hafði
sterka réttlætiskennd og
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum. Alltaf var hún fremst í
flokki í aðdraganda kosninga og
mikil keppniskona um kosninga-
sigra sem voru þó nokkuð margir í
gegnum árin, enda styrkur jafn-
aðarmanna á Siglufirði jafnan
mikill, meira að segja í andbyr
flokksins á landsvísu. Erla mætti
á nær alla fundi og tók þátt í um-
ræðum og lagði ávallt eitthvað
gott til málanna, sérstaklega um
vöxt og viðgang bæjarins okkar –
Siglufjarðar.
Erla var mikill Siglfirðingur og
var mjög umhugað um vöxt og
viðgang bæjarins og tók það
nærri sér þegar áföll riðu yfir, t.d.
fækkun atvinnutækifæra og
fækkun íbúa. Erla var kappsfull
og jafnvel óþreyjufull og fannst að
málefni bæjar síns ættu að ganga
betur fram. Þess vegna er það
ánægjulegt hvað mikið hefur ver-
ið að gerast í bænum okkar hin
síðari ár. Hún samgladdist yfir öll-
um sigrum og uppgangi, hvort
heldur það var opnun Héðins-
fjarðarganga eða uppbygging
gamalla húsa við innri höfnina,
sem er glæsilegt framtak eins
ættingja hennar. Þrátt fyrir erfið
veikindi hin síðari ár og þverrandi
þrótt var Erla alltaf með hugann
við starf okkar og fylgdist vel
með.
Erlu verður sárt saknað en
minning hennar mun efla okkur til
dáða við að vinna að vexti og við-
gangi bæjarfélagsins. Með þess-
um minningarorðum viljum við
þakka Erlu áratuga stuðning,
traust og mikla vinnu fyrir sigl-
firska jafnaðarmenn og jafnaðar-
stefnuna sem hún barðist alltaf
fyrir og lét aldrei bugast.
Við sendum ættingjum Erlu
innilegar samúðarkveðjur. Hvíl í
friði, heiðurskona.
F.h. siglfirskra jafnaðarmanna,
Ólafur Kárason.
Erla Ólafs
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
LOFTUR MAGNÚSSON,
síðast til heimilis að
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa-
vogi mánudaginn 6. júní.
Útför hans verður gerð frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 14. júní
kl. 15.00.
Aðalheiður Steina Scheving,
Guðjón Scheving Tryggvason, Sigrún Stefánsdóttir,
Jón Loftsson, Jóhanna Björgvinsdóttir,
Hreinn Loftsson, Ingibjörg Kjartansdóttir,
Magnús Loftsson, Gunnar Ásgeirsson,
Ásdís Loftsdóttir, Guðmundur Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinar-
hug vegna andláts og útfarar
PÁLS VALDIMARS MAGNÚSSONAR
fv. bónda
á Vindhæli A-Hún.
Alúðarþakkir sendum við starfsfólki Heil-
brigðisstofnunarinnar á Blönduósi fyrir frá-
bæra umönnun síðustu árin.
Fyrir hönd ástvina,
Magnús Guðmannsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURFLJÓÐ JÓNSDÓTTIR
frá Litla-Langadal
á Skógarströnd,
Sóltúni 2,
sem lést sunnudaginn 5. júní, verður jarð-
sungin frá Áskirkju þriðjudaginn 14. júní kl. 15.00.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Sigrún Ögmundsdóttir, Þórarinn Böðvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
GARÐAR SIGURÐSSON,
lést á líknardeild Landspítalans fimmtudag-
inn 2. júní.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 14. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélagið og líknardeild Landspítalans.
Valgerður Garðarsdóttir, Svanur M. Krisvinsson,
Guðrún Garðarsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Bergur Garðarsson, Nína Margrét Perry,
Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ríkarður Pétursson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar
okkar, bróður, mágs og frænda,
ÁRMANNS SIGVALDASONAR,
Borgartúni,
Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir færum við öllum í Álftarima 2 og á vinnu-
stofunni Viss.
Jóna Katrín Guðnadóttir, Sigvaldi Ármannsson,
Dagný Sigvaldadóttir,
Guðni Sigvaldason, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Sigurjóna Sigvaldadóttir, Emil Jakob Ragnarsson,
Margrét Árdís Sigvaldadóttir, Óskar Eyberg Aðalsteinsson,
Guðfinna Björk Sigvaldadóttir,Erlendur Reynir Guðjónsson,
Eyþór Jónsson
og frændsystkini.
✝
Einlægar þakkir til allra þeirra er sýndu sam-
úð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu
og langömmu,
VALGERÐAR GUÐRÚNAR
VILMUNDARDÓTTUR,
Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A6 Landspítala Fossvogi
og starfsfólks Múlabæjar fyrir góða umönnun.
K. Kolbrún Baldursdóttir, Guðmundur Fr. Ottósson,
Ásgeir Torfason, Hrefna S. Sigurnýasdóttir,
Ástríður G. Torfadóttir, Trausti Ævarsson,
Valgerður G. Torfadóttir, Elías Kári Halldórsson,
Ragnhildur Torfadóttir, Kristján Sigurðsson,
Þórunn Vilmundardóttir,
Jón Árni Vilmundarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS ANDRÉSSONAR,
Bauganesi 39,
Reykjavík.
Árna Steinunn Rögnvaldsdóttir,
Steinar Þór Guðjónsson, María Jolanta Polanska,
Hilmar Guðjónsson, Agnes Henningsdóttir,
Marta Guðjónsdóttir, Kjartan Gunnar Kjartansson,
Raggý Guðjónsdóttir, Ágúst Einarsson
og afabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800