Morgunblaðið - 23.06.2011, Síða 9
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
Útsalan er hafin
40-70% afsláttur
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
Í dag, fimmtudag, stendur Félag
eldri borgara í Reykjavík og ná-
grenni og Heimilisiðnaðarfélag Ís-
lands fyrir Jónsmessugleði í Árbæj-
arsafni sem hefst kl. 19:30.
M.a. mun Kór FEB syngja nokkur
lög og Danshópur FEB sýnir dans.
Helgi Seljan stjórnar fjöldasöng og
haldin verður sýning á þjóðbúningi
herra. Hægt verður að fara í skoð-
unarferð um safnið og kaupa kaffi-
veitingar og spóka sig um í sólinni.
Þá verður dansað í Lækjargötu 4 í
Árbæjarsafni, með Gúttósniði við
undirleik Vinabandsins. Kl. 22:30
verður svo farið í Jónsmessugöngu
um Elliðaárdalinn á vegum Árbæj-
arsafnsins fyrir þá sem það vilja.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Árbæjarsafnið mun spila stórt hlut-
verk í Jónsmessugleðinni.
Jónsmessugleði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
mun í sumar halda uppi auknu um-
ferðareftirliti á Vesturlandsvegi,
Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut.
Eftirlitið stendur yfir alla daga
en þungi þess verður þó yfir helg-
arnar þegar umferðin og þörfin er
mest.
Meginmarkmiðið með eftirlitinu
er að draga úr ökuhraða en jafn-
framt að tryggja eins og hægt er að
vanbúin ökutæki séu ekki á ferð um
þjóðvegi landsins. Sérstaklega
verður hugað að ljósabúnaði og
skráningu og hleðslu ökutækja,
tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa.
Einnig verður fylgst með því að
hliðarspeglar ökutækja sem draga
breiða eftirvagna séu samkvæmt
reglum.
Þjóðvegir landsins undir eftirliti
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
30% afsláttur
af völdum bikiníum
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl.11-18 • lau. 10-16
á facebook
daglega
þessa viku
Fylgist með!
Ofurtilboð
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
Útsala
Mikið úrval af
fallegum tískufötum
Opið: mánud. - föstud. kl. 11:00-18:00,
lokað á laugardögum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishorn á www.laxdal.is (la DolceVita)
SUMARÚTSALA HAFIN
20%-50% AFSLÁTTUR
Síðir sumarkjólar
5.000 kr.
Gallabuxur háar í mittið
5.000 kr.
Gallakvartbuxur
5.000 kr.
Gallapils
5.000 kr.
Frakkar, Mussur, kjólar, og margt
margt fleira á aðeins 5.000 kr.
Laugavegi 54, sími 552 5201
5.000 kr. dagar
í Flash
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Þetta eru miklar hækkanir og
ekki hægt að rekja þær til launa-
hækkana. Þetta eru svo háar pró-
sentuhækkanir að það er ekki
hægt að skýra þær með launa-
hækkunum vegna kjarasamning-
anna,“ segir Henný Hinz, hagfræð-
ingur hjá ASÍ, um hækkanir á
mjólkurvörum 1. júlí.
„Menn hafa vonast eftir því að
það yrði sátt um að halda aftur af
verðhækkunum, þannig að hér
gæti orðið þokkalegur stöðugleiki.
Þetta er þvert á það,“ segir Henný.
Verðlagsnefnd búvara hefur
ákveðið að hækka heildsöluverð á
mjólk og mjólkurvörum um 4,25%
um næstu mánaðamót. Smjör
hækkar enn meira eða um 6,7% og
mjólkurduft til iðnaðar um 6%. Frá
sama tíma hækkar afurðastöðva-
verð til bænda um 3,25 krónur á
lítra mjólkur, fer úr 74,38 krónum í
77,63 krónur eða um 4,4%. Ástæð-
ur verðhækkunar á mjólk og
mjólkurvörum eru sagðar launa-
breytingar og hækkun á aðföngum
við búrekstur
Hækkun verðbólgu
Henný segir að þessar fregnir af
verðhækkun á mjólkurvörum ýti
undir verðbólguvæntingar, sem sé
áhyggjuefni. „Ein af forsendum
þess að hægt sé að hafa hér hóf-
lega verðbólgu og tryggja að kjara-
samningarnir skili einhverju, er
samstaða um að menn fari ekki
þessa leið heldur leiti annarra
leiða. Það hefur því miður ekki
gengið allt of vel,“ segir hún.
Almennar launahækkanir á
þriggja ára gildistíma nýrra kjara-
samninga verða 11,4% en lág-
markslaun hækka um 23,6%. Verð-
bólgumælingar á seinustu
mánuðum hafa sýnt að verðbólgan
hefur farið hratt upp á við. Henný
segir ekki útlit fyrir að breyting
verði þar á í þessum mánuði.
Hækkanirnar skerði kaupmátt
launa og þetta séu ekki þær for-
sendur sem menn lögðu upp með
við gerð kjarasamninganna. Hag-
stofan birtir vísitölu neysluverðs
fyrir júnímánuð næstkomandi
mánudag.
Talsverð vonbrigði
„Vissulega verður að teljast tals-
verð vonbrigði að ekki skuli hafa
náðst lengra í að leiðrétta mjólkur-
verð til bænda að þessu sinni,“ seg-
ir Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda, í pistli
á naut.is um ákvörðun Verðlags-
nefndar búvara um breytingar á
mjólkurverði.
„Það var þó mat fulltrúa bænda
að ekki yrði lengra komist nú og að
aðrir kostir væru verri í stöðunni.
Ekkert hefur þó verið útilokð um
frekari leiðréttingar á árinu og
verður unnið að því hér eftir sem
hingað til,“ segir í pistli Sigurðar.
Hækkanir þvert á stöðugleikann
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um 4,25%
Formaður kúabænda segir unnið að frekari leiðréttingum
Morgunblaðið/Skapti