Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
HHHH
“SJÓNRÆN VEISLA”
“STÓR SKAMMTUR AF HASAR”
- K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
“SANNKALLAÐUR GIMSTEINN! HIN
FULLKOMNA SUMARMYND Í ALLA STAÐI.
JACK SPARROW ER SANNARLEGA
KVIKMYNDAFJÁRSJÓÐUR”
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
„Djarfasta og best skrifaða
X-Men-myndin til þessa.”
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
HHHH
„Þetta er sannarlega fyrsta
flokks ofurhetjumynd!“
-Þ.Þ., Fréttatíminn
NÚTÍMA ÚTGÁFA
AF BEAUTY AND THE BEAST
FRÁBÆR MYND
SEM KEMUR
SKEMMTILEGA
Á ÓVART
HHH
EF ÞÚ HAFÐIR GAMAN AF
TWILIGHT-MYNDUNUM
MUNT ÞÚ FALLA FYRIR
BEASTLY
- S.F. CHRONICLE
HHH
- MIAMI HERALD
HHH
- ORLANDO SENTINEL
VANESSA HUDGENS - ALEX PETTYFER - NEIL PATRICK HARRIS
SUPER 8 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
MR. POPPER´S PENGUINS kl. 5:30 - 8 - 10:20 L
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:25 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 8 - 10:45 14
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 5:30 L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5 10
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
BEASTLY kl. 6 - 8 - 10:10 10 SOMETHING BORROWED kl. 8 L
SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. kl. 6 L
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 VIP KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 6 L
THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 M/ensku tali kl. 10:20 M.texta L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 4 kl. 5:20 VIP - 8 - 10:40 10
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Anna María Björnsdóttir er ein af
meðlimum IKI, níu stúlkna spuna-
söngsveit. Stelpurnar gáfu út frum-
raun sína 20. júní síðastliðinn og
héldu útgáfutónleika í Kaupmanna-
höfn samdægurs. Anna María er
eini Íslendingurinn í hljómsveitinni
en ásamt henni er ein finnsk stúlka,
þrjár norskar og fjórar danskar.
Útgáfutónleikarnir heppnuðust
vel og segir Anna María að margir
hafi sótt þá. „Þetta gekk rosalega
vel, það var alveg troðfullt. Við
fengum til liðs við okkur gesta-
tónlistarmenn, Lotte Anker saxó-
fónleikara, Aino Juutilainen selló-
leikara og Tobias Wiklund á
trompet. Þetta var mjög skemmti-
legt,“ segir Anna María en einnig
stigu á svið tveir dansarar úr Dan-
ish national school of Contemporary
dance.
70 lög á þremur dögum
Hljómplata IKI var spunnin í
hljóðveri en stelpurnar eyddu
þremur dögum þar og tóku upp sjö
klukkustundir af tónlist. „Við vorum
komnar með um 70 mismunandi lög
sem urðu til á þessum tíma. Við
völdum síðan 12 lög sem voru í
uppáhaldi til þess að vera á plöt-
unni.“ Anna María segir að platan
hafi fengið góð viðbrögð enda fjöl-
breytt og frumleg tónlist hér á ferð.
„Við erum svo margar og frá mis-
munandi stöðum, allar með ólíkan
bakgrunn. Þetta er fjölbreytt tónlist
með mörgum tónlistarstílum.“
Stelpurnar hafa fengið styrk frá
Dansk Skuespillerforbund og stefna
að því að gefa út tónlistarmyndband
með haustinu.
Gömul íslensk ljóð í lögunum
En hvernig ætli það sé að halda
utan um níu manna stúlknasveit?
„Það er mesta furða hvað það geng-
ur ótrúlega vel. Við skiptum bara á
milli okkar verkefnum og ábyrgð.
Ég get ekki sagt að það verði
nokkrir árekstrar. Við erum líka all-
ar að vinna að okkar eigin sjálf-
stæðu verkefnum fyrir utan hljóm-
sveitina. Við erum allar með okkar
eigin tónlist, vinnum að eigin plöt-
um og sumar nú þegar búnar að
gefa út plötu“.
– Er þá von á sólóplötu frá þér?
„Já, ég er að vinna að plötu sem
verður tekin upp í haust með minni
tónlist. Ég var með útskriftar-
tónleika í FÍH fyrir um mánuði og
var þar með frumsamið efni. Ég er
búin að semja fullt. En það gæti
líka verið að ég mundi vinna þetta
frjálst í stúdíói“.
Áhugi á gamalli íslenskri menn-
ingu kviknaði hjá Önnu Maríu þeg-
ar hún bjó í Danmörku í eitt ár.
Tónlist hennar mun því einkennast
af ljóðum eftir gömul íslensk skáld
en hún semur síðan sjálf tónlist við
þau. „Ég hef verið að gera mikið af
þessu. Það er til svo afskaplega
mikið af ljóðum sem heyrast ekki
neins staðar,“ segir hún að lokum.
Röddin eina hljóðfærið
Stúlknasveitin IKI gefur út
sína fyrstu plötu Taka upp
tónlistarmyndband í haust
Ljósmynd/Kajsa Gullberg
Listrænar Hægt er að kaupa plötuna þeirra á netinu á heimasíðu iTunes. Heimasíða IKI er ikivocal.com
Fjör Stelpurnar skemmta sér saman. Anna María er önnur frá vinstri.