Morgunblaðið - 23.06.2011, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
mikið og hratt á undanförnum árum.
T.a.m. er erfitt að setja orð eins og
skrípi eða skrítinn við þessa nýjustu
plötu Vetiver, tónlistin á bara ekkert
skylt við merkingu þeirra orða. Tón-
listin er melódísk og aðgengileg, já á
köflum má heyra útvarpspopp hérna
en þessi þróun hófst á síðustu plötu,
Tight Knit (2009). Gallinn er hins
vegar sá að tónlistin verður nokkuð
einkennalaus við þetta, hljómar eins
og hvert annað sumarlegið nýbylgju-
popp. Á köflum er þetta komið út í
það mikla léttvigt að lögin týnast í
eyrunum á þér, skilja ekkert eftir.
„Fog Emotion“ hljómar eins og b-hlið
með Lilac Time og tilþrifaleysið og
angurværðin – sem er greinilega
meðvituð – ærir óstöðugan. Svona la
la yfir það heila… ágætt sosum.
Við urðum fyrst
vör við Vetiver sem
hluta af hinni ill-
skilgreinanlegu
stefnu „freak folk“
sem fór mikinn
þegar stutt var lið-
ið á síðasta áratug. Aðrir merkimiðar
voru t.d. „new weird America“ og
„anti-folk“ en á meðal helstu nafna
þar voru Joanna Newsom, Six Organs
of Admittance, Devandra Banhart og
Moldy Peaches. Til að einfalda þetta,
urðu þessir aðilar fyrir áhrifum frá
hefðbundinni þjóðlagatónlist en
krydduðu svo af krafti með allra
handa tilraunastarfsemi. Nálgunin
var þó ólík og stefnan hefur gliðnað
Vetiver - The Errant Charm
bbbnn
Ágætt sosum …
Arnar Eggert Thoroddsen
kennt kammerpopp þar sem lögin
dragnast áfram í sjö eða níu mín-
útur. Sorgmædd rödd McCombs
heldur manni spenntum – eins an-
kannalega og það kann að hljóma –
og það kraumar eitthvað undir allri
framvindu sem heldur manni á brík-
inni út í gegn. Í lögum eins og
„Memory’s Stain“ minnir hann á
Mark Hollis (Talk Talk) eða Robert
Wyatt, þögnin er nýtt á áhrifamikinn
hátt og hverjum tóni leyft að lifa og
líða áfram. „Hermit’s Cave“ minnir
helst á Syd Barrett þegar hann var
hvað innhverfastur („Opal“ t.d.).
Einhver rýnirinn var að væla yfir
þessari plötu, vonaði að þetta væri
hliðarskref og ég verð að vera ósam-
mála slíku. McCombs virðist þvert á
móti vera kominn á beinu brautina.
Frábær plata – og hefði verið rétt-
nefnd Catacombs.
Cass McCombs
hefur fyrir löngu
sannað að hann
hyggist ekki tjalda
til einnar nætur í
Músíklandi, virki-
lega hæfi-
leikaríkur tónlistarmaður, en ég
verð að viðurkenna að ég átti ekki
von á þessu.
Síðasta plata, Catacombs (2009),
var stórgóð nýbylgjurokksplata þar
sem saman fóru glettnir textar og
melódísk, stundum melódramatísk
lög (en ekki eins þunglamaleg og tit-
illinn gefur til kynna).
Á Wit’s End fer McCombs hins
vegar með tónlist sína í nýja átt og
tekur með því glæsilegt skref upp á
við. Hér höfum við myrkt, draum-
Hofmannleg höfgi
Cass McCombs - Wit’s End
bbbbm
Arnar Eggert Thoroddsen
Sögur selja plötur,
það er bara þannig.
Fyrir fjórum árum
gaf Justin Vernon
sjálfur út plötuna
For Emma, For-
ever Ago undir
nafninu Bon Iver (sem þýðir góður
vetur). Gerð plötunnar fór að mestu
fram þegar hann hafði vetursetu í
bústað föður síns einn síns liðs.
Platan var uppgjör við sam-
bandsslit, erfið lifrarveikindi og
sundrun fyrri hljómsveitar hans.
Varla er hægt að ímynda sér betri
sögu á bak við gerð plötu? Orðróm-
urinn berst hratt þegar indí-krakk-
arnir taka eitthvað upp á sína arma.
Sagan passar vel við hljóminn á plöt-
unni, einsemdin og nístandi tilfinn-
ingin í tónlistinni er áþreifanleg.
Árið 2008 komst á hún lista helstu
tónlistarspekúlanta yfir bestu plötur
ársins og áratugarins í því uppgjöri.
Því leit allt út fyrir að Bon Iver
væri þungavigtarmaður í indí-
heimum. Nú er komið að plötu núm-
er tvö sem er alltaf varasöm, ekki
síst þegar væntingarnar eru miklar.
Á nýju skífunni sem heitir bara
Bon Iver er hljómurinn þróaðri. Bon
Iver hefur þróast í að vera fjögurra
manna hljómsveit og hljóðfæraleik-
arar á borð við gítarleikarann Greg
Liesz og saxófónleikarann Colin
Stetson koma einnig við sögu. Legið
hefur verið yfir útsetningum og plat-
an er í raun mjög ólík hinni marg-
umræddu fyrstu plötu. Í sumum lög-
um er mikil eighties-stemming sem
minnir jafnvel á sólóefni frá Phil
Collins! Indie-ið hlýtur að vera kom-
ið í heilhring!
Textarnir eru sem fyrr hrein-
skilnar og berorðar lýsingar eða
sögur sem passa vel við frábæra
söngrödd Vernons. Eftir að hafa
hlustað á gripinn nokkrum sinnum
útundan mér virkaði hún hálfþunn
en þegar ég setti hana í heyrnatóla-
prófið opnaðist hún ágætlega. Þetta
er krefjandi tónlist sem þarf athygli
sem hún á fyllilega skilið. Lögin eru
þó ekki þau bestu sem Vernon hefur
samið og platan geldur svolítið fyrir
það. Perth og Calgary eru virkilega
góð lög en ná samt ekki sömu hæð-
um og Flume eða Blindside gerðu á
For Emma. Einhvern veginn kunni
ég bara betur við Bon Iver þegar
hann var yfirgefinn og einmana í
kofanum í fjöllunum.
Kominn til byggða
Bon Iver - Bon Iver
bbbmn
Hallur Már
Pressa Justin Vernon er maðurinn á bak við Bon Iver.
Erlendar plötur
ÞRÍVÍDD EINS OG
HÚN GERIST BEST
HHHH
- BOX OFFICE
MAGAZINE90/100
VARIETY
90/100
THE HOLLYWOOD
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND Í ÞRÍVÍDD
MEÐ ÍSLENSKU TA
LIDÝRAFJÖR
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
HHHH
"KUNG FU PANDA 2
ER SKOTHELD
SKEMMTUN."
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
„MYNDIN ER FRÁBÆR:
KYNÞOKKAFULL
OG FYNDIN“
- P.H. BOXOFFICE MAGA-
HHHH
- IN TOUCH
HHHHRÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR.
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA!
HHHH
- R.M. - BÍÓFILMAN.IS
HHHH
- TIME OUT NEW YORK
- HOLLYWOOD REPORTER
80/100
BEINT Á
TOPPIN
N
Í USA
HHHHH
- ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
- QUICKFLIX
HHHH
- KVIKMYNDIR.IS/
SÉÐ OG HEYRT
100/100
- TIME- JIMMYO,
JOBLO.COM
HHHH HHHH
- FRÉTTABLAÐIÐ
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
BEASTLY kl. 6 - 8 - 10 10
SUPER 8 kl. 5:50 - 8 - 10 12
KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. tali kl. 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D M/ensku tali kl. 8 Ótextuð L
THE HANGOVER 2 kl. 10:20 12
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
MR.POPPER´S PENGUINS kl. 8 L
BEASTLY kl. 10:10 10
SUPER 8 kl. 8 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 10:20 14
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12
/ SELFOSSI
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG
KRINGLUNNI
SÝND UM HELGINA Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI