Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Íslandsmótið í ökuleikni á trukkum og rútum fór fram á keppnissvæði við Borgartún á laugardaginn. Til leiks mættu 15 keppendur. Keppnin var mjög spennandi og munaði aðeins örfáum sekúndum á efstu mönnum. Keppendur tóku þátt sem einstaklingar en mynduðu einnig lið þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá. Skemmst er frá því að segja að keppendur frá Íslandspósti röðuðu sér í efstu sætin. Í rútukeppninni varð Mikael Jónsson hlutskarp- astur og Íslandspóstur vann liða- keppnina. Í trukkaflokki bar Finn- ur Trausti Finnbogason Íslandspósti sigur úr býtum og Ís- landspóstur hreppti liðaverðlaunin. Keppni Sigurvegarar með verðlaun sín. Íslandspóstur bar af Fundur verður haldinn um skulda- vanda ungs fólks í Sjóminjasafninu á Granda í kvöld kl. 20. Frummælendur verða: Þórólfur Matthíasson, Eva H. Baldursdóttir og Sverrir Bollason. Þau munu ræða um stöðuna í dag og hvernig megi leysa úr þeim vanda sem við blasir. „Lánsveðin hvíla sérstaklega á ungu fólki og aðstandendum þeirra. Aðgerðir stjórnvalda hafa ekki tekið að neinu marki tillit til þeirra sem tóku sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði 2004-2008,“ seg- ir í fundarboði. Er ungt fólk í þessari erfiðu stöðu sérstaklega hvatt til að mæta svo og foreldrar sem lánuðu börnum sínum veðrými í eignum sínum. Fundur um skuldavanda ungs fólks Miðvikudaginn 19. október verður haldið síðasta erindið í tilefni af út- komu bókar Sigríðar Víðis Jóns- dóttur Ríkisfang: Ekkert. Erindið er á vegum Alþjóða- málastofnunar og Forlagsins og verður haldið í Odda 101, frá klukkan 12:25-13:20. Sveinn H. Guðmarsson, frétta- maður Ríkisútvarpsins, mun rifja upp aðdraganda innrásarinnar í Írak 2003 og velta fyrir sér hvaða afleiðingar hún hefur haft á líf fólksins í landinu. Hverjir fengu völd í landinu og hvernig. Fundarstjóri er Ólafur Steph- ensen ritstjóri. Innrásin í Írak Matvæla- og næringarfræði- félag Íslands (MNÍ) heldur Matvæladag sinn í dag á Hilton Reykjavík Nor- dica hóteli. Mat- væladagurinn er árviss viðburður sem haldinn hefur verið frá árinu 1993 og er nú haldinn í nítjánda skipti. Ráðstefnan ber yfirskriftina Heilsutengd matvæli og markfæði. Megininntakið er vöruþróun, fram- leiðsla, rannsóknir og markaðs- setning á heilsutengdum matvælum og markfæði úr íslensku hráefni. Dagskráin stendur frá tólf á há- degi til átján að kvöldi. Matvæladagurinn haldinn í dag STUTT Í Rauðakrossvikunni sem haldin er 17.-22. október vek- ur félagið athygli á framlagi sjálfboðaliða Rauða kross- ins til samfélagsins á Evrópuári sjálfboðaliðans undir yfirskriftinni Tíminn er dýrmætur. Rauðakrossdeildir um allt land kynna verkefni sín þessa viku. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hrinti Rauðakrossvikunni úr vör í gærmorgun með heimsókn í Kópavogsdeild Rauða krossins, Hamraborg 11, þar sem hann hitti sjálfboðaliða í ungmennastarfi félagsins. Samkvæmt útreikningum Alþjóða Rauða krossins starfar einn af hverjum 30.000 sem sjálfboðaliði Rauða krossins eða Rauða hálfmánans. Á Íslandi starfa rúm- lega 3.000 sjálfboðaliðar með Rauða krossinum, eða einn af hverjum 100 Íslendingum. Um 10.000 manns nota reglulega þjónustu Rauða kross Íslands, en ætla má að um helmingi fleiri njóti góðs af starfi Rauða krossins óbeint, segir í tilkynningu frá félaginu. Ársframlag sjálfboðaliða Rauða krossins í klukkustundum talið er um 302.000 klst. eða 145 árs- verk sem framreikna má skv. meðallaunum allt að 700 milljónum króna. Þá tilheyra allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, Rauða krossi Íslands sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur. Heimsókn Ólafur Ragnar Grímsson hrinti Rauðakrossvikunni úr vör í gærmorgun með heimsókn í Kópavogsdeild Rauða krossins, þar sem hann hitti sjálfboðaliða í ungmennastarfi félagsins. 260 ungmenni eru þátttakendur. Þrjú þúsund sjálfboðaliðar - nýr auglýsingamiðill Verð 8.900 kr. Fleiri litir og tegundir Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Tvær í einni Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 Dömu kuldaskór loðfóðraðir Kuldastígvél Herra kuldaskór loðfóðraðir St. 37-42 Verð 18.995 St. 40-47 Verð 18.995 St. 40-46 Verð 11.995 Laugavegi 63 • S: 551 4422 ALLRA VEÐRA KÁPUR, vind og vatnsþéttar 20% AFSLÁTTUR skoðið sýnish . á laxdal.is Borgardekk Páll Hersteinsson pró- fessor lést á hjartadeild Landspítala við Hring- braut 13. október 2011. Páll fæddist í Reykja- vík 22. mars 1951. Hans sérfræðisvið var vistfræði spendýra. Hann var sonur hjónanna Margrétar Ásgeirsdóttur hús- móður, f. 27. janúar 1920 og Hersteins Páls- sonar ritstjóra f. 31. október 1916, d. 21. febrúar 2005. Systir Páls er Inga Hersteins- dóttir, verkfræðingur, f. 8. janúar 1947. Páll var kvæntur Ástríði Páls- dóttur sameindalíffræðingi, f. 2. apr- íl 1948 í Reykjavík. Hún lifir mann sinn. Synir þeirra eru Hersteinn Pálsson rafmagnsverkfræðingur og Páll Ragnar Pálsson tölvunarverk- fræðingur. Páll lauk B.Sc. (Honours) prófi frá Lífeðlisfræðideild Háskólans í Dun- dee í Skotlandi 1975 og doktorsprófi frá Dýrafræðideild Oxford-háskóla 1984. Doktorsverkefni Páls fjallaði um atferði og vistfræði íslenska mel- rakkans. Hann var veiðistjóri 1985-1995 en þá var hann ráðinn prófessor við Líf- fræðiskor Háskóla Ís- lands (nú Líf- og um- hverfisvísindadeild) og gegndi því starfi til dauðadags. Páll var af- kastamikill fræðimað- ur og eftir hann liggur fjöldi fræðigreina í ís- lenskum og erlendum tímaritum. Hann var ásamt öðrum ritstjóri fræðibóka um íslensk spendýr og um Þing- vallavatn, en sú bók kom út bæði á íslensku og ensku. Eftir hann liggur einnig bók um dvöl hans við refa- rannsóknir í Ófeigsfirði, smásagna- safn, gamanleikrit og myndabók með ítarlegri frásögn af ferli refa- rannsókna á Hornströndum. Auk starfa sinna sem prófessor sinnti Páll mörgum opinberum störf- um í þágu hins opinbera, háskóla, fagtímarita og fagfélaga, bæði hér- lendis og erlendis. Hann var virtur vísindamaður á alþjóðavísu og fékk ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Andlát Páll Hersteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.