Birtingur - 01.01.1957, Qupperneq 14

Birtingur - 01.01.1957, Qupperneq 14
meiri vinsældum að fagna um þessar mundir en yngri menn gera sér grein fyrir nú. Höfuðljóðskáldin voru óneitanlega Davíð frá Fagraskógi og Stefán frá Hvítadal. Þeir voru vissulega börn síns tíma, dýrkendur lífsins, boðendur frjálsra ásta, samúðarmenn smælingja, frjósemis-, moldar- og grasskáld, sjósóknar- og hetjurómantíkusar, og ofan á allt annað þræltrúaðir. Og kallaðir þjóðskáld, segi ég. Já, vissulega. Það leyfði sér enginn á þeirri tíð að efast um að þeir félagar væru listfengustu skáld þjóðarinnar síðan á dögum Jónasar og Bjarna. En Jóhannes úr Kötlum? Hann var um þessar mundir ungskáld, þótt hann væri enginn unglingur að árum, efnilegur en óráðinn ungmennafélagsróm- antíkus, bí bí og blaka, álftirnar kvaka, og mikill guðsorðasnakkur. Fyrstu bækurnar tvær bentu lítt til þess, að Jóhannes yrði eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar. Fram að þessu höfðu öll ljóðskáld þjóðarinnar verið sveitamenn, nema Einar Benediktsson og Stephan G., sem voru fyrst og fremst heimsborgarar, þótt sveitamenn væru að uppruna og uppeldi. Um þetta leyti vorum við Islendingar að uppgötva sjálfa okkur og stöðu okkar í heiminum. Hér voru mikil tíðindi að gerast í efnahagsmálum, þorp og bæir að myndast, höfuðborg að rísa. Þó má frekar segja að við værum að rumska en að við værum vaknaðir, hvað þá glaðvaknaðir einsog nú er orðið. Með átökum heimskreppunnar fékk hin unga íslenzka verkalýðshreyfing eldskírn sína, vinstri flokkar tóku völd í nágrannaríkjum, ráðstjórnarbyltingin var orðin að veruleika í Rússlandi, en Italía og síðar Þýzkaland og Spánn einvaldsríki fasista. Það var öllum hugsandi mönnum ljóst að mikil átök voru í vændum, enda rak hver stórviðburðurinn annan, unz heimsstyrjöldin og það sem henni fylgdi rak smiðshöggið á nýja heimsmynd, sem þó var og er sífellt að breytast frá degi til dags. Sú ljóðskáldakynslóð, sem var að vakna til hugsunar á árunum milli 1930—1940, mótaðist vissulega á miklum tímum. Yrkisefni sveitaskáldanna voru orðin úrelt. Það kom og til, að hjá yngri mönnum var tekið að gæta nokkurs leiða á okkar gamla hefðbundna ljóðformi. Um og eftir aldamót tók ljóðagerð í Evrópu — og þá um leið í Ameríku — miklum stakkaskiptum vegna nánari menningartengsla milli austur- og vesturlanda, auk þess sem ljóðlist hinna svonefndu frumstæðu þjóðflokka — negra og blámanna — í Ameríku, Afríku og Asíu varð nýstárlegt viðfangsefni ungum Evrópuskáldum til rannsóknar og eftirbreytni. Höfðu þessi kynni mjög frjóvgandi áhrif á ljóðagerð Frakka, Þjóðverja og Englendinga og síðar Svía, Finna, Dana og Norðmanna- Ein grein þessa skáldskapar voru indversku hálfkvæðin, sem Tagore, eða öllu heldur enskir þýðendur hans innleiddu hér á Vesturlöndum. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin 1913, ef ég man rétt. Hér birtust m. a. tvær bækur eftir hann nokkrum árum síðar, þýddar af Magnúsi Á. Árnasyni. Við þessa nýju landvinninga ljóðs og andlegra kynna breyttust mjög viðhorf manna til ljóðlistar; nýjar stefnur fóru eins og logi yfir akur fyrstu áratugi aldarinnar. Má sjá þessa glögg merki í ljóðum Jóhanns Sigurjónssonar, Jóhanns Jónssonar, í Heli Sigurðar Nordals og Flugum Jóns 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.